23.07.2017 21:10
69. Gullfaxi NK 6. TFCH.
Nýr Gullfaxi
Á annan páskadag kom hingað til bæjarins nýsmíðað fiskiskip,
Gullfaxi NK 6. Þetta er mikið skip, 180 tonn að stærð, smíðað úr eik í Djupvik
í Svíþjóð eftir teikningu Egils Þorfinnssonar. Eigandi Gullfaxa er samnefnt
hlutafélag, en aðalhluthafar eru Ármann Eiríksson og Þorleifur Jónasson, sem
sigldi skipinu til landsins og verður skipstjóri á því. Ólafur Eiríksson er
fyrsti vélstjóri. Aflvél skipsins er 585 ha. Deutz. Skipið er mjög vel búið að
öllu leyti og sýnilega ekkert til sparað að gera það sem bezt úr garði bæði
hvað snertir aðbúð áhafnar, öryggisútbúnað og hverskonar tækni útbúnað til
veiða og siglinga. Gullfaxi er næststærsta skip, sem nú er í eigu Norðfirðinga.
Sýnilegt er, að hann ber mjög mikið, t. d. af síld. Skipið er tilbúið til
síldveiða og mun í ráði, að það fari þegar á síld.
Austurland. 27 apríl 1962.
Þorlákshafnarbátur
gjöreyðilagðist í eldi
Engin slys á
mönnum
Vélskipið Ingvar Einarsson ÁR 14 stórskemmdist af eldi í
gær, en engin slys urðu þó á mönnum. Skipið var statt út af Vík í Mýrdal, er
eldurinn kom upp og fékk áhöfnin, 12 manns, við ekkert ráðið. Vélskipið Arnar
kom á vettvang og dró hið brennandi skip inn á Dyrhólaós, þar sem því var rennt
upp í fjöru. Þar slökkti Slysavarnadeildin Víkverji í skipinu, en kjarni
deildarinnar er jafnframt kjarni slökkviliðsins í Vík. Er jafnvel talið, að
Ingvar Einarsson sé gjörónýtur. Samkvæmt upplýsingum Hannesar Hafstein,
framkvæmdastjóra Slysavarnafélags Íslands, gerði Vestmannaeyjaradíó félaginu
viðvart um neyð skipsins. Var hið brennandi skip þá statt nokkuð djúpt úti af
Vík í Mýrdal, nánar tiltekið 12 sjómílur frá Reynisfjalli og 11 sjómílur frá Hjörleifshöfða.
Var þá mikill eldur um borð. Jafnframt var vitað að Arnar ÁR 55, en bæði þessi
skip eru gerð út frá Þorlákshöfn, var farinn áleiðis til Ingvars Einarssonar.
Eldurinn kom upp aftantil í skipinu og var hvað magnaðastur í vélarrúmi og
stýrishúsi.
Áhöfnin gat ekki hafzt þar við og urðu mennirnir að halda til
frammi í skipinu, þar sem þeir höfðu neyðartalstöð. Gátu þeir ekki við neitt
ráðið. Um klukkan 12,30 kom Arnar að Ingvari Einarssyni og fór þá áhöfn Ingvars
yfir í Arnar og hafði þá jafnframt verið komið fyrir dráttartaug milli
skipanna. Hélt Arnar svo af stað með bátinn til lands. Slysavarnafélagið lét
björgunarsveit sína, Víkverja í Vík, vita af þessu og var sveitin tilbúin á
ströndinni, ef á þyrfti að halda.
Þegar Arnar kom síðan upp undir land með
bátinn þá var sýnt, að ekki var unnt að koma línu milli lands og báts vegna
brims við ströndina. Var því ákveðið að fara með brennandi bátinn vestur fyrir
Reynisfjall og reyna við Dyrhólaósinn. Þangað var komið klukkan liðlega 14 í
gær, en þar voru þá komnir björgunarsveitarmenn úr Víkverja, sem jafnframt eru
í slökkviliðinu í Vík, með slökkvibíl, veghefil og bíl með drifi á öllum
hjólum. Var línu skotið út í bátinn og hann síðan dreginn upp í sandinn.
Komust
björgunarsveitarmenn um borð og slökktu eldinn. Klukkan 16 tilkynntu þeir
lóranstöðinni að eldurinn hefði verið slökktur. Strax og fréttist um eldsvoðann
sást frá Reynisfjalli til bátsins og var þá mikill eldur í bátnum og risu
miklar eldtungur frá honum, aðallega frá skut og miðskips. Þess má og geta að
Lóðsinn í Vestmannaeyjum lagði af stað með dælur strax og fréttist um
eldsvoðann, en hann náði ekki í tæka tíð. Vélbáturinn Ingvar Einarsson var
eikarbátur, smiðaður í Sviþjóð 1962, 140 brúttórúmlestir að stærð og hét áður
Gullfaxi VE 102 frá Vestmannaeyjum. Var báturinn í fyrsta flokks standi og hið
bezta skip, er eldurinn kom upp. Er hann nú gjörónýtur. Þá ber þess að geta, að
síðdegis í gær kom aftur upp eldur í bátnum, þar sem hann lá í Dyrhólaósi, en
fljótiega var slökkt í honum aftur. Arnar var í gærkvöldi væntanlegur með áhöfn
Ingvars Einarssonar til Þorlákshafnar.
Morgunblaðið. 12 desember 1974.