12.11.2017 15:28
Fiskaklettur GK 130. TFPK.
Farsæll GK 8 á leið í línuróður. (C) Gunnar Þorsteinsson.
Nærstaddur línubátur bjargaði áhöfninni
Í morgun var vélbáturinn Farsæll KE 27 á sjó og sem aðrir
línubátar frá Keflavík. var hann langt komin að leggja línu sína, þegar leki
kom að bátnum. Fyrst í stað höfðu dælur við, en lekinn ágerðist mjög svo að í
óefni var komið og náði Farsæll þá sambandi við vélbátinn Vilborgu, sem var þar
skammt frá og kom hún upp að Farsæl og var þá lekinn orðinn óviðráðanlegur svo
báturinn var yfirgefinn og sökk hann skömmu síðar. Mennirnir komust heilu og
höldnu yfir í Vilborgu sem hvarf að því að draga línu sína, en hún hafði lokið
lagningu nokkru áður en slysið bar að. Því næst dró Vilborg línu þeirra á
Farsæl, en þeir höfðu lagt um ¾ línu
sinnar eða 30 bjóð áður en báturinn sökk. Af þessum sökum kemur Vilborg ekki
til hafnar fyrr en undir miðnætti. Veður var gott, sléttur sjór og logn og kom
því ekki til neinna vandræða.
Vélskipið Farsæll er byggt úr eik í Hobro í Danmörku 1930, en hefir verið
endurbætt síðan. Það hét áður Fiskaklettur. Það er 52 brúttólestir að stærð,
eign Páls H. Pálssonar í Keflavík, sem jafnframt er skipstjóri.
Morgunblaðið. 20 febrúar 1964.
Sigldi á
fullri ferð á miðin
Um kl. 23:30 í kvöld kom vélskipið Vilborg með
skipbrotsmennina af Farsæl, sem sökk í morgun á línumiðum Suðurnesjabáta NV af
Garðskaga, fjögurra tíma siglingu. Fréttaritari blaðsins hitti skipstjórann af
Farsæl, Pál H. Pálsson, og sagðist hann ekki geta gefið neinar frekari
upplýsingar að svo komnu máli, nema að leki kom að bátnum, sem ágerðist mjög
svo að ekki varð við neitt ráðið og voru þá nærstaddir þar vélbátarnir Vilborg
og Sigurbjörg, báðir frá Keflavik, og komu þeir upp að bátnum og var það
örðuleikalaust, því veður var mjög gott. Við urðum að horfa á bátinn síga í
hafið svo við fengum við ekkert ráðið, sagði Páll skipstjóri. Og erum nú hingað
komnir á Vilborgu, þótt sárt sé að skilja við bátinn sinn svona. Frekari
rannsókn mun svo fara fram á aðdraganda þessa óhapps svo sem venja er, en meira
hef ég ekki um þetta að segja, sagði skipstjórinn. Farsæll var áður
Fiskaklettur, gerður út frá Hafnarfirði, en síðan endurbyggður og búinn nýrri
vél, sem gengur 9-10 mílur og sigldi ég honum á miðin á fullri ferð, svo sem
venja er, en á þessu stigi get ég ekki sagt um hvers vegna þessi bráði leki kom
að bátnum, sagði Páll skipstjóri að lokum. Sem fyrr segir var blíðuveður á
miðum bátanna. Er björgun fór fram gengu menn úr Farsæli yfir í Vilborgu þurrum
fótum, brugðu sér jafnvel um borð í Farsæl aftur eftir að þeir höfðu yfirgefið
hann til að sækja það sem þeir áttu þar eftir.
Morgunblaðið. 20 febrúar 1964.