04.05.2018 18:31

2 m. Kt. Grímsey BA 8. LBTK.

Kútter Grímsey BA 8 var smíðuð í Cobholm Island í Great Yarmouth á Englandi árið 1885. Eik. 61 brl. Eigandi var Islandsk Handels & Fiskeri Kompagni (I.H.F) í Kaupmannahöfn frá 10 mars árið 1900. Skipið var selt 6 maí 1908, Pétri A Ólafssyni á Patreksfirði. Selt árið 1915, Guðmundi Bergsteinssyni kaupmanni og útgerðarmanni, Sigurði Jóhannssyni skipstjóra og Davíð Einarssyni í Flatey á Breiðafirði. Sigurður Jóhannesson frá Höfða í Eyrarsveit var lengi skipstjóri á Grímsey. Tvennar heimildir eru til um afdrif Grímseyjar. Sú sem ég hef undir höndum, segir skipið hafa sokkið á Flateyjarhöfn árið 1924. Í bókaflokknum Íslensk skip, l bindi, bls 54, segir að skipið hafi verið talið ónýtt og rifið árið 1930.


Kútter Grímsey BA 8 á siglingu á Patreksfirði.                                         (C) Sigfús Eymundsson.

   Islandsk Handels & Fiskeri Kompagni

Um og eftir aldamótin 1900 risu upp tvö stórfyrirtæki á Eyrum þ.e. Geirseyri og Vatneyri, Island Handels & Fiskeri Kompagni (I.H.F.) keypti Geirseyrareignir og rak verslun og útgerð þaðan. P.J. Thorsteinsson & Co. (Milljónafélagið) sem keypti Vatneyrareignir af Pétri Thorsteinssyni, hafði rekstur sinn þar. Bæði fyrirtækin voru dansk-íslensk og á vegum þeirra var rekin mikil þilskipaútgerð frá Patreksfirði og saltfiskverkun. Er þessi félög liðu undir lok tóku við umsvifum tveir einstaklingar sem mörkuðu merk spor í atvinnusögu staðarins. Pétur A. Ólafsson var verslunarstjóri hjá I.H.F. á Patreksfirði og keypti eignirnar á Geirseyri af félaginu 1906 og rak síðan verslun og útgerð á staðnum um 25 ára skeið. Ólafur Jóhannesson var verslunarstjóri hjá P.J. Thorsteinsson & Co. meðan félagið starfaði á Patreksfirði og festi hann kaup á Vatneyrarverslun og mannvirkjum öllum og miklum hluta Vatneyrarlands. Rak hann fyrst öfluga þilskipaútgerð og svo togaraútgerð sem hófst árið 1925 og stóð að heita óslitið til 1961. Í kringum togarana risu mörg atvinnufyrirtæki, hraðfrystihús, vélsmiðja, fiskimjölsverksmiðja og verslun. Eftir 1961 hefur sjávarútvegurinn byggst á afla vélbáta, smærri og stærri skipa og dagróðrabáta og atvinnustarfsemin að miklu leyti flust á Vatneyri þar sem höfnin er nú.

Úr atvinnumálastefnu fyrir Vestur Barðastrandasýslu 2004-2008.

Stýrimenn útskrifaðir frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík árið 1904 með hið meira stýrimannapróf. Yzt til hægri í næst efstu röð er Sigurður Jóhannesson frá Höfða í Eyrarsveit, fæddur 2. Febrúar árið 1880. Sigurður var skipstjóri með kútter Grímsey, sem var gerður út frá Flatey á Breiðafirði, en sú útgerð hleypti miklu lífi í athafnalíf í Flatey um skeið upp úr 1910.


Þorpið í Flatey á Breiðafirði.                                                                      (C) Þórhallur S Gjöveraa.


Höfnin í Flatey á Breiðafirði.                                                                       (C) Þórhallur S Gjöveraa.

 Þilskipaútgerð Guðmundar Bergsteinssonar

Þilskipaútgerð Guðmundar Bergsveinssonar jókst nú með hverju ári svo að aldrei hafði blómlegra atvinnulíf verið í Flatey en á þessu ári (1915) og næstu árum. Þegar þess er minnst að Guðmundur hóf saltfiskverkun í Flatey mátti segja að atvinna væri næg fyrir alla, karla, konur og börn og aldrei mun afkoma Flateyinga hafa verið betri þessa hálfu öld, en þennan annan tug aldarinnar.

Saga Flateyjarhrepps.


Flettingar í dag: 282
Gestir í dag: 17
Flettingar í gær: 767
Gestir í gær: 36
Samtals flettingar: 718103
Samtals gestir: 53374
Tölur uppfærðar: 18.4.2024 04:53:08