24.07.2019 21:06
1137. Barði NK 120 á toginu.
Skuttogari
til Neskaupstaðar
Skuttogarinn Barði NK 120 kom til Neskaupstaðar í gærmorgun
en togarann keypti Síldarvinnslan hf. þriggja ára frá Frakklandi án
siglingatækja fyrir 42 milljónir króna og sagði Ólafur Gunnarsson, frvstj.
Síldarvinnslunnar, Morgunblaðinu í gærkvöldi, að kostnaður við togarakaupin
væri áætlaður um 50 milljónir króna. Barði er 490 tonn, búinn 1200 hestafla
aðalvél og gekk á heimleið 12,5 mílur. Á heiimleiðinmi kom togarinn við í
Grimsby og tók þar veiðarfæri og í Stavanger voru settar um borð í nann vélar í
síldarniðursuðuverksmiðju, sem Síldarvinnslan hf. er að byggja. Ólafur sagði,
að nokkrar lagfæringa yrðu gerðar á togaranum í Neskaupstað en reiknað er með
að hann hefji veiðar síðari hluta janúarmánaðar næstkomandi Skipstjóri á Barða
er Magni Kristjánsson en alls verður áhöfn 14 manns.
Barði er fjórða skip Síldarvinnslunnar hf., hin
eru : Birtingur NK 119, Bjartur NK 121 og Börkur NK 122. Bjartur hefur
verið á veiðum við Suðurland undanfarið en hinir tveir eru nýkomnir heim úr
Norðursjó.
Morgunblaðið. 15 desember 1970.