02.08.2020 08:01
M. b. Hersir RE 162.
M.b. Hersir RE 162 í Reykjavíkurhöfn. (C) Magnús Ólafsson.
"Hersir"
talinn af
Það er nú talið víst, að vélbáturinn »Hersir« frá Sandgerði
muni hafa farist í rokinu 21. janúar. »Geir« og fleiri skip hafa leitað hans um
flóann, en hvergi hefir hans orðið vart. Á bátnum voru 5 menn. Formaðurinn hét
Snæbjörn Bjarnason og átti hann heima á Hverfisgötu hér í Reykjavík. Lætur hann
eftir sig ekkju og 4 börn.
Ólafur Sigurður Ólafsson, nýlega kvæntur maður, og bróðir hans Sigurbjörn
Ólafsson, ókvæntur. Áttu þeir bræður heima á Hólabrekku á Grímstaðaholti, og er
þar móðir þeirra hrum af elli. Fjórði maðurinn hét Ólafur Gíslason, ókvæntur,
og átti heima á Grettisgötu 37. Fimmti maðurinn hét Sveinbjörn Guðmundsson frá
Tjarnarkoti (Miðnesi). Allt voru þetta dugandi menn á bezta aldri. Það er ætlun
manna, að bátinn hafi fyllt undir þeim, sjór gengið yfir hann meðan þiljugáttin
var opin. Klukkan fjögur um daginn hafði annar bátur tal af »Hersi«, og var
hann þá að draga lóðina og átti eftir fjögur bjóð ódregin. En þá var komið
versta veður og skafrok. Bátinn áttu þeir Jón Guðjónsson, Daniel Magnússon í
Lykkju á Kjalarnesi og Snæbjörn Bjarnason, formaðurinn.
Ægir. 1-2 tbl. 1919.