15.08.2021 11:39

B.v. Neptúnus RE 361 á toginu yfir úfinn sæ.

Systurskipin Neptúnus og Marz voru 183 ½ ft. (55,89 m.) eða 8 ½ feti lengri en hinir nýsköpunartogararnir sem voru 175 ft. (54 m.) Kom lengdin miðskipa sem jók burðarþol skipanna verulega. Ýmsar aðrar breytingar voru gerðar á þeim, t.d. hækkaðar lunningar um 18 tommur rétt aftur fyrir vant til að byrja með, en voru svo síðar lengdar aftur fyrir svelg. Það var svo Úranus RE 343 sem var sá fyrsti sem smíðaður var með þær aftur fyrir svelginn árið 1949. Einnig var komið fyrir lýsistank aftast í skipið, aftur í "skotti", undir lifrarbræðslunni, eins og Tryggvi orðaði það sjálfur. Lifrinni var síðan dælt með sérútbúinni dælu og lögnum frá dekkinu í lýsistankin og dælt svo þaðan upp í lifrarbræðsluna. Sú nýbreytni var að lestar skipanna voru einangraðar með lofti, en klæðning í lestunum var Oregon Pine viður. Neptúnus var sá nýsköpunartogarinn sem best var gert úr og mikil synd að hann skildi ekki vera varðveittur því hann var í góðu ástandi þegar hann hélt af landi brott í síðasta sinn, undir eigin vélarafli.


B.v. Neptúnus RE 361 á toginu yfir úfinn sæ.                                        (C) Shetland museum.


Neptúnus RE 361 sennilega við Ægisgarð.                                          (C) Peter Kidson.


B.v. Neptúnus RE 361. Þarna kominn með pólkompásinn framan á brúnna. (C) Ásgrímur Ágústsson.

    B.v. Neptúnus GK 361. TFMC.

Nýsköpunartogarinn Neptúnus GK 361 var smíðaður hjá John Lewis & Sons Ltd í Aberdeen í Skotlandi árið 1947 fyrir h.f Júpíter í Hafnarfirði. 684 brl. 1.000 ha. 3 þennslu gufuvél. Smíðanúmer 205. Kom í fyrsta sinn til heimahafnar sinnar, Hafnarfjarðar hinn 27 desember sama ár. Um áramótin 1947-48 flytur Tryggvi útgerð sína til Reykjavíkur og fær þá togarinn skráningarnúmerið RE 361. Í maí 1948 setti Neptúnus heimsmet í aflasölu í Grimsby. Seldi togarinn 356 tonn fyrir 19.069 sterlingspund og stóð það met í ein 13 ár að ég held. Í desember sama ár kom upp mikill eldur í kyndistöð togarans í Grimsby en þar hafði hann selt afla sinn nokkru áður. Miklar skemmdir urðu á honum og var hann dreginn til Aberdeen í Skotlandi. Tók sú viðgerð um 8 mánuði og fór hún fram í smíðastöð skipsins, hjá John Lewis & Sons Ltd. Hinn 28 ágúst árið 1964 kom upp eldur í einangrun undir katli togarans og breiddist hann hratt út í vélarúminu að ekki var neitt viðlit fyrir skipverja að ráða niðurlögum hans. Var því ákveðið að skipið yrði yfirgefið og áhöfnin, 32 menn, færu í björgunarbátana og færu um borð í varðskipið Albert sem komið var á staðinn. Neptúnus var þá á veiðum um 20 sjómílur norðvestur af Garðskaga. Miklar skemmdir urðu á togaranum og tók þó nokkurn tíma að gera við hann. Neptúnus var alla tíð mikið afla og happaskip og var lengst af undir stjórn Bjarna Ingimarssonar frá Hnífsdal. Togarinn var seldur í brotajárn til Spánar eftir að hafa legið í nokkur ár við Ægisgarð, og sigldi hann þangað undir eigin vélarafli hinn 6 október árið 1976.

Flettingar í dag: 843
Gestir í dag: 48
Flettingar í gær: 1170
Gestir í gær: 69
Samtals flettingar: 720740
Samtals gestir: 53524
Tölur uppfærðar: 20.4.2024 11:50:34