30.01.2020 22:02

2890. Akurey AK 10 á útleið úr Reykjavíkurhöfn.

Ég tók þessar myndir af togaranum Akurey AK 10 þegar hann hélt í veiðiferð í veðurblíðunni í gær úr Reykjavíkurhöfn. Akurey er fallegt skip og hefur fiskað vel undanfarið eins og skipið hefur alla tíð gert síðan það kom heim nýsmíðað frá Tyrklandi.


2890. Akurey AK 10 á útleið úr Reykjavíkurhöfn í gær.














Haldið skal til hafs á ný var kveðið hér forðum.                 (C) Þórhallur S Gjöveraa. 29 janúar 2020.
Flettingar í dag: 562
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 1765
Gestir í gær: 36
Samtals flettingar: 2113522
Samtals gestir: 96132
Tölur uppfærðar: 20.12.2025 05:12:34