17.11.2015 11:27
Grímsnes. LBQM.
Grímsnes var smíðað hjá Great Grimsby Coop.Box & Fish Carr.Co Ltd í Grimsby árið 1891.Hét áður Brazilian GY 888.Stærð ókunn en hafði 50 ha.Triple Expansion vél.Kom til landsins árið 1899.Eigandi var Fiskeri & Handels Aktieselskabet Isafold í Reykjavík (Vídalínsútgerðin) kennd við Jón Vídalín konsúl.Togarinn var seldur J.R.Oswald í Milford Haven á Englandi árið 1900.
Ljósmyndari óþekktur.(C) mynd: Þórhallur S Gjöveraa.
Vídalínsútgerðin var stærst í sniðum þeirra útgerðarfyrirtækja,sem stofnuð voru með erlendu fjármagni á Íslandi árið 1899.Félagið var stofnað 5 apríl 1899 og hét á Dönsku,Fiskeri & Handels Aktieselskabet Isafold en var oftast kallað Vídalínsútgerðin,stundum þó Ísafoldarfélagið.Félagið gerði út 6 togara þegar mest var og mun þessi útgerð hafa gengið brösulega samkvæmt heimildum.Skipin hétu Akranes,Brimsnes,Enganes,Fiskines og Grímsnes.En nafnið á því sjötta veit ég ekki.Togarinn Enganes mun hafa strandað við Grindavík,3 október 1899 og eyðilagst.Aðeins hafa tvö útgerðarfélög rekið fleiri skip í einu á Íslandi,það var h/f Kveldúlfur á árunum milli stríða og Bæjarútgerð Reykjavíkur eftir síðari heimstyrjöld.
Skrifað af Þórhalli S Gjöveraa.
Flettingar í dag: 576
Gestir í dag: 34
Flettingar í gær: 1224
Gestir í gær: 13
Samtals flettingar: 2032977
Samtals gestir: 94982
Tölur uppfærðar: 28.10.2025 13:41:47
