02.01.2016 10:39

183. Sigurður ÍS 33. TFMR.

Sigurður ÍS 33. TFMR. Smíðaður hjá A/G Weser Werk Seebeck í Bremerhaven í Þýskalandi árið 1960 fyrir Ísfell h/f á Flateyri. 987 brl. 2.300 ha. Werkspoor díesel vél. Frá febrúar 1969 er skráður eigandi Ísfell h/f í Reykjavík og fær skipið þá skráninguna RE 4. Árið 1976 var skipið yfirbyggt og endurmælt,mældist þá 914 brl. Árið 1978 var sett í skipið 2.400 ha. Nohab díesel vél. Frá mars 1985 er skráður eigandi Hraðfrystistöð Vestmannaeyja. Skipið var umskráð í maí 1992, heitir þá Sigurður VE 15. Skipið var selt í brotajárn í ágúst 2013 og sigldi af landi brott í síðasta sinn, 28 ágúst sama ár eftir farsælan feril í ein 53 ár og oftast með aflahæstu skipum, hvort sem er á botnvörpu sem síðutogari eða seinna sem nótaskip.


183. Sigurður ÍS 33 við Ingólfsgarð.                                                         (C) Mynd: Karl Kristjánsson.

Hér fyrir neðan er grein úr morgunblaðinu frá 27 september árið 1960.;


B.v. Sigurður er glosilegt skip Núna fyrir helgina bættist nýr togari í skipastól landsmanna. Er það "Sigurður", sem er eign Isfells hf. - Hann er smíðaður í skipasmíðastöðinni A.G. "Weser" Werk Seebeck, Bremerhaven. Um smíðina var samið í ágústmánuði árið 1959. Hófst smíðin 17. febr. á þessu ári og lauk 20. þ. m.  Á sunnudaginn var fjölda gesta boðið að skoða togarann, og voru menn á einu máli um að hann væri hinn fullkomnasti í alla staði.  Bv. Sigurður er fimmti togarinn, sem skipasmíðastöð þessi smíðar fyrir lslendinga síðan 1956. Hinir eru Jupiter (áður Gerpir), Þormóður goði, Maí og Freyr. Togarinn, sem er hinn glæsilegasti í alla staði, er 987 brúttó lestir, 210 fet á lengd. Lestin er 760 rúmmetrar, öll klædd aluminium og með kæliútbúnaði. Hún rúmar 500 lestir af ísfiski. Engin lifrarbræðslutæki eru í skipinu, en hins vegar geymir fyrir 40 lestir af lifur. Enn fremur er geymir fyrir 50 lestir af slori.  Aðalvélin er Werkspoor-díselvél 2300 hestöfl við 280 snúninga. Vélin er með skiptiskrúfu. Hjá!parvélar eru tvær.  Í Sigurði eru að sjálfsögðu öll fullkomnustu siglingatæki og fiskileitartæki, svo sem tvær ratsjár af Kelvin Huges-gerð, og draga þær 50 sjóm. Fiskileitartæki er af Atlas-gerð. Sími og kallkerfi er um allt skipið, einnig hátalarar í hverju herbergi.  Íbúðir eru allar mjög vandaðar, mest fjögurra manna herbergi. Þá er einnig sjúkraherbergi miðskips. Björgunarbátur er fyrir 48 menn, og stendur hann í vinduuglu. Getur einn maður hæglega komið honum fyrir borð. Sex gúmmíbjörgunarbátar eru fyrir 72 menn. Þá er frammastrið með rörastögum en ekki venjulegum vöntum. Yfirbyggingin er þrjár hæðir. Stefnið er framhallandi og perulagað. í fáum orðum sagt er bv. Sigurður, sem hefur einkennisstafina ÍS-33, hinn vandaðasti og mjög fulJkominn. Hann fór í reynsluferð 16,58 sjómílur.  Skipstjóri er Pétur Jóhannsson, 1. stýrimaður Jón Óli Gíslason og Sumarliði Mosdal 1. vélstjóri.

Flettingar í dag: 396
Gestir í dag: 29
Flettingar í gær: 1186
Gestir í gær: 63
Samtals flettingar: 724928
Samtals gestir: 53765
Tölur uppfærðar: 26.4.2024 06:20:27