07.04.2017 18:04

2889. Engey RE 91. TFJG. Móttökuathöfn og skipinu formlega gefið nafn.

Engey RE 91 var smíðuð hjá Celiktrans Shipyard í Istanbúl í Tyrklandi árið 2016. 1.827 bt. 2.500 ha. MAN 6L27/38 vél, 1.795 Kw. Engey er 54,75 metrar á lengd og 13,5 á breidd. Skipið kom til landsins hinn 25 janúar s.l. eftir 15 sólahringa siglingu frá Tyrklandi. Síðan þá hefur verið unnið við að koma vinnsludekki og karaflutningakerfi í skipið á Akranesi. Móttökuathöfn fór fram við Norðurgarðinn í Örfirisey í dag og að athöfn lokinni bauðst gestum og gangandi að skoða skipið og þiggja veitingar í boði útgerðarinnar. Sjón er sögu ríkari, enda glæsilegt og vel búið skip Engey RE 91.


Móttökuathöfn í Örfirisey.


Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sjávarútvegsráðherra gefur skipinu formlega nafn.


Hjálmar Jónsson Dómkirkjuprestur blessar skip og áhöfn.


Sjálfvirka karakerfið sem flytur allann fiskinn í lestina.


Sníglatromlur sem flytja fiskinn frá aðgerðaraðstöðu í krapa.


Flokkunarband frá aðgerðaraðstöðu að ég held.


Í þessum tromlum er fiskurinn fluttur fram að karaaðstöðunni.


Aðgerðarborð. Tók eftir að ekki er gert ráð fyrir örvhentu fólki við aðgerð.


Böndin frá móttökunni og aðgerðaraðstaðan.


Veit ekki hvað þessi græja gerir, enda ekki nema von. Margt þarna sem ég hef aldrei séð.


Kristinn Helgi Guðjónsson 1 vélstjóri í kaffipásu.


Stakkageymslan.


Stjórnarformaður H.B. Granda, Kristján Loftsson til vinstri í setustofu skipsins.


Friðleifur Einarsson skipstjóri í gula vestinu í borðsalnum.


Nikkan þanin í brúnni fyrir gesti.                                           (C) Þórhallur S Gjöveraa. 7 apríl 2017.

       MÓTTÖKUATHÖFN ENGEYJAR Í DAG

Engey RE 91, nýr ísfisktogari HB Granda, kemur til hafnar í Reykjavík í dag frá Akranesi. Engey kom til landsins 25. janúar sl. að lokinni 15 sólarhringa siglingu frá Celiktrans skipasmíðastöðinni í Istanbúl í Tyrklandi þar sem skipið var smíðað. Frá komu skipsins til landsins hefur sjálfvirku lestarkerfi ásamt búnaði á vinnsludekk verið komið fyrir í skipinu á Akranesi. Búnaðurinn, sem er sá fyrsti sinnar tegundar, hefur fyrirtækið Skaginn 3X hannað, þróað og smíðað á Akranesi og á Ísafirði. Búnaðurinn mun stórbæta vinnuumhverfi sjómanna um borð auk þess sem hann mun auka afkastagetu skipsins og hámarka virði afurða úr afla þess.
,,Við erum afar ánægð og stolt að taka á móti Engey RE 91 sem er glæsilegur ísfisktogari og án efa eitt tæknivæddasta fiskiskip landsins. Við munum taka á móti tveimur ísfisktogurum, Akurey og Viðey, í flotann á næstu mánuðum en þau skip verða með sama búnaðinum og er í Engey. Við reiknum með að Engey fari í sína fyrstu veiðiferð í lok apríl," segir Vilhjálmur Vilhjálmsson, forstjóri HB Granda.
,,Um að ræða stærsta þróunarverkefni sem ráðist hefur verið í um borð í fiskiskipi hérlendis. Þessi nýja tækni grundvallast fyrst og fremst á nýjum aðferðum við meðhöndlun fisksins og aukinni sjálfvirkni í vinnslukerfinu sem flýtir aðgerð og frágangi á afla sem skilar mun betri gæðum. Með nýrri myndavélatækni er hver einasti fiskur myndaður, tegundagreindur og stærðarflokkaður. Myndavélatæknin heldur utan um allan feril fisksins allt þar til að löndun lokinni. Með þessu erum við komin með möguleika á rekjanleikakerfi sem á sér enga hliðstæðu allt frá veiðum til neyslu, ef menn kjósa svo," segir Ingólfur Árnason, framkvæmdastjóri Skaginn 3X, en fyrirtækið fékk á dögunum Nýsköpunarverðlaun Íslands fyrir þennan nýja búnað.
,,Þetta er annað skipið sem er búið hinu byltingakennda SUB-CHILLINGT kerfi, sem gerir kleift að kæla fiskinn niður að -1°C án þess að frysta hann. Með þessari tækni er hægt að geyma fiskinn í körum án þess að nota ís. Skaginn 3X hefur sótt um sex ný einkaleyfi fyrir vinnslubúnaðinn sem settur var um borð í Engey," segir Ingólfur ennfremur.
Nautic ehf. sá um hönnun skipsins. Samtals eru klefar fyrir 17 manns um borð í skipinu, 15 eins manns klefar og einn tveggja manna klefi. Móttökuathöfn verður við Norðurgarð í Reykjavíkurhöfn klukkan 14 í dag. Engey verður síðan almenningi til sýnis á morgun, laugardag frá kl. 13-16.

Vefsíða H.B. Granda hf. 7 apríl 2017.




Flettingar í dag: 149
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 1058
Gestir í gær: 85
Samtals flettingar: 725739
Samtals gestir: 53826
Tölur uppfærðar: 27.4.2024 01:28:17