30.03.2018 06:38

B. v. Úranus RE 343. TFUG.

Nýsköpunartogarinn Úranus RE 343 var smíðaður hjá Alexander Hall & Co Ltd í Aberdeen í Skotlandi árið 1949. 656 brl. 1.000 ha. 3 þennslu gufuvél. Smíðanúmer 725. Eigandi var Júpíter h/f í Reykjavík frá 2 apríl sama ár. Úranus kom til heimahafnar sinnar, Reykjavíkur hinn 5 apríl árið 1949. Úranus RE 343 landaði síðast í Reykjavík 7. marz árið 1974 og fór til Spánar hinn 17. apríl sama ár með Marz RE 261 í togi þangað sem þeir voru seldir í brotajárn og var tekinn af skrá 20 maí árið 1974.
Ýmsar breytingar voru gerðar á teikningu togarans, s.s. settur á skipið pólkompás sem staðsettur var framan á brúnni, pokabómur festar upp undir salningu. Þær vísuðu þá lárétt út þegar pokinn var hífður út og náði lengra en venjulegar bómur sem vísuðu skáhallt upp og voru festar neðarlega á mastrið. Úranus var jafnframt fyrsti togarinn sem smíðaður var með hærri lunningar sem náðu aftur að svelgnum. Áður höfðu togarar Tryggva, Neptúnus og Marz fengið hækkaðar lunningar en þær náðu aðeins aftur fyrir vantinn.
Ég hef fengið í hendurnar mikið safn mynda sem Atli Michelsen fyrrum skipverji á Úranusi tók þar um borð af skipsfélögum sínum og mörgu öðru. Eru þetta ómetanlegar heimildir um sögu Nýsköpunartogaranna. Ég mun birta þær hér á síðunni á næstunni. Þakka ég Atla kærlega fyrir afnot myndanna.


215. Úranus RE 343 í Reykjavíkurhöfn.                                                            (C) Atli Michelsen.

        Úranusi hleypt af stokkunum

Í gær var hleypt af stokkunum í skipasmíðastöð Alexander Hall í Aberdeen, nýsköpunartogaranum Úranus RE 343. "Úranus" er af minstu gerð nýsköpunartogaranna, 175 fet á lengd. Eigandi hans er h.f. Júpíter hjer í Reykjavík, en framkvæmdastjóri fjelagsins er Tryggvi Ófeigsson. Var hann viðstaddur athöfnina, ásamt dóttur sinni, Herdísi, er Skýrði skipið.

Morgunblaðið. 6 október 1948.


B.v. Úranus RE 343 í smíðum hjá Alexander Hall í Aberdeen veturinn 1949.
Mynd úr safni Hafliða Óskarssonar.


B.v. Úranus RE 343 nýsmíðaður hjá Alexander Hall í Aberdeen.                   Ljósmyndari óþekktur.

               Úranus kemur í dag

Í dag kemur nýsköpunartogarinn Úranus hingað til lands. Er þetta næst síðasti togarinn, sem samið var um smíði á. Úranus er eign h.f. Júpíters hér í Reykjavík. Skipstjóri er hinn kunni aflamaður Bjarni Ingimarsson. Einn togari, utan tveggja dieseltogara, er enn í smíðum í Englandi og er það Svalbakur, sem bojarútgerð Akureyrar á.

Vísir. 5 apríl 1949.


B.v. Úranus RE 343 að landa afla sínum í Hull.                                               (C) Hull Daily Mail.

      Úranus seldi í gær í fyrsta sinn

Nýjasti eimtogari Íslendinga, Úranus, seldi afla sinn í fyrsta sinn í Englandi gær. Afli togarans var 4.715 kit eftir 15 daga veiðiför hér við Iand og seldist fyrir 15.241 sterlingspund. Skipstjóri á Úranusi er Bjarni Ingimarsson, einn fengsælasti skipstjóri togaraflotans. Markaður í Englandi er lélegur um þessar mundir á karfa og ufsa, en góður á öðrum fisktegundum. Í þvi sambandi má geta þess, að í byrjun desember á s.l. ári féll fiskverðið í Englandi og Þýzkalandi um 2/6 sh. Þýðir það nálægt 600 punda lægri sölu á sama magni og Úranus seldi að þessu sinni. Lætur nærri, að ef togararnir ganga allt árið, þýði þessi lækkun um 200 þúsund króna lægri sölur.

Vísir. 30 apríl 1949.


Landað úr togaranum Úranusi RE á sjötta áratugnum. Hluti aflans er verið að spyrða á bryggjunni.


B.v. Úranus RE 343 með trollið á síðunni. Á myndinni sést hvað pokabóman var staðsett hátt í mastrinu. (C) Sigurgeir B Jónasson.

   Óttast er um "Úranus" á Nýfundnalandsmiðum
        Síðast heyrðist til hans á sunnudagskvöld

         Ofsaveður hamlar leit skipa og flugvéla

Tekið  er að óttast um Reykjavíkurtogarann Úranus, sem að undanförnu hefur verið að veiðum á Nýfundnalandsmiðum, en þangað fór hann 28. desember. Á Úranusi er 28 manna áhöfn, skipstjóri er Helgi Kjartansson , en eigandi togarans er Júpiter h.f. Ekki hefur heyrzt til togarans síðan á sunnudagskvöld . Hafði togarinn Þormóður goði samband við Úranus síðast klukkan 10. Engir aðrir íslenzkir togarar voru þá á Nýfundnalandsmiðum, en togararnir Pétur Halldórsson og Þorsteinn Ingólfsson sigldu fyrir nokkru áleiðis þangað vestur, en sneru við er þeir áttu 200 mílur ófarnar á miðin vegna slæmrar veðurspár og frosta. Þeir Úranus og Þormóður goði héldu heimleiðis af miðunum á laugardagskvöld. Þormóður var í gær rúmlega hálfnaður heim, því kl. 2 í gær barst Bæjarútgerð Reykjavíkur skeyti frá honum þar sem sagði, að skipið væri þá komið 664 mílur áleiðis, en því miðaði hægt vegna veðurs.
Kanadiski flugherinn var beðinn aðstoðar og er hann þess albúinn að hefja leit að Úranusi. Bandaríska strandgæzlan hefur líka sent skip á vettvang. Þá hefur Upplýsingaþjónusta Bandaríkjanna hér greint frá, að allar herflugvélar Bandaríkjamanna á leið milli Keflavíkur og Bandaríkjanna muni hlusta vel í loftskeytatæki sín og þær, sem verði yfir leitarsvæðinu í björtu muni svipast um eftir togaranum. Í gærkveldi símaði fréttaritari Mbl. í St. Johns á Nýfundnalandi, eftirfarandi: Bandaríska strandgæzluskipið "Half Moon" er að nálgast aðalleitarsvæðið, um 70 mílur undan norðausturströnd Nýfundnalands, eða 100 mílur fyrir norðan Gander. Aðeins eitt annað skip er á þessum slóðum, eftirlitsskipið "Charlie", einnig frá strandgæzlunni. Enn er beðið veðurs svo að leit geti hafizt úr lofti, því veðrið á leitarsvæðinu er enn slæmt. Vindhraðinn í dag var þar 65 mílur á klst. og sagður stórsjór. Í dag voru öll skip á nálægum slóðum látin vita af leitinni og flugvélar úr björgunardeild kanadíska flughersins stóðu til taks í herstöðvunum Argentia og Torbay á Nýfundnalandi og Goose Bay á Labrador.
Talið er að síðast hafi heyrst frá Úranusi sunnudaginn 10. janúar kl. 4,50, (Nýfundnalandstími), en þá sagði hann að veðrið væri mjög slæmt.

Morgunblaðið. 13 janúar 1960.


B.v. Úranus RE 343 á toginu.                                                              (C) Sigurgeir B Jónasson.

 Úranus fundinn og skipshöfn hans heil á húfi
            Senditæki togarans voru biluð

Úranus er fundinn. Ég var að hlusta á samtal björgunarflugvélarinnar við Þormóð goða núna á stundinni. Það er allt í lagi hjá þeim á Úranusi nema talstöðin. Þeir eru á leiðinni heim. Þannig frétti Mbl. hin miklu gleðitíðindi kl. rúmlega 5 í gær. Togari, sem ekkert hafði heyrzt til síðan á sunnudagskvöld var kominn fram og var á heimleið með skipshöfn sína heila á húfi. Það var Karl Sigurðsson, aðstoðarbryti á Gullfossi, sem hringdi fréttina til blaðsins. Hann hafði setið við útvarpstæki sitt og reynt að fylgjast með fréttum af leitinni af Úranusi.
Rétt á eftir bárust blaðinu fregnir af samtölum milli skipverja á Þormóði goða og vandamanna heima í Reykjavík. Þormóður goði: Þeir eru búnir að finna hann. Kona í Reykjavík: Eru þeir búnir að finna hann, guði sé Iof. Þormóður goði: Já, hann er tæpum 200 mílum á eftir okkur. Konan: Ó, hvað það er dásamlegt. Þormóður goði: Það voru eitthvað biluð hjá honum senditækin og hann getur ekki látið til sín heyra, en það virðist allt vera í lagi hjá honum. Konan: Almáttugur guð, hvað maður er búinn að vera hræddur.
Slík voru fyrstu viðbrögð fólksins í landi við gleðitíðindunum. Heit fagnaðarbylgja fór um alla Reykjavík, þegar fregnin barst út um bæinn. Í hinum gamla sjómannabæ ríkti síðara hluta dags í gær djúp og þakklát gleði meðal almennings. Á heimilum sjómannanna á Úranusi snérist nagandi kvíði og óvissa upp í einlægan fögnuð og tilhlökkun til heimkomu ástvina, frænda og vina. Það var flugvél frá varnarliðinu, sem fann skipið kl. 16.45 í gær, en með henni voru tveir menn frá Landhelgisgæzlunni, Guðmundur Kærnested og-Guðjón Jónsson. Var skipið þá um 195 mílum á eftir Þormóði goða, statt á 57,58 gr. norður breiddar og 33,45 gr. vestur lengdar. Voru loftskeytatæki skipsins í ólagi, en skipverjar gáfu merki um að allt væri í lagi, og óskuðu ekki aðstoðar. Úranus var síðdegis í gær, er hann fannst, í norðurjaðri storm svæðisins á þessum slóðum, en þaðan og heim var hæg austanátt. Mun skipið hafa verið ca. 490 mílur frá Reykjanesi og kemur væntanlega heim á föstudag eða laugardag. Er skipið fannst, hafði ekki náðst samband við það í hátt á þriðja sólarhring. Kl. 22.30 á sunnudagskvöld hafði Þormóður goði samband við Úranus, en þá voru bæði skipin komin á heimleið af Nýfundnalandsmiðum. Veður fór þá vaxandi, komin 10 -11 vindstig.
Er Þormóður goði náði ekki sambandi við Úranus á mánudag, var loftskeytastöðinni tilkynnt um það og bandaríska strandgæzlan og kanadíski flugherinn beðinn um aðstoð. Hófu strandgæzluskip og síðan flugvélar leitina, en leitarskyggni fyrir flugvélar var slæmt. Var leitað miklu vestar en togarinn reyndist vera, þar eð fyrst og fremst var svipazt um eftir honum þar sem síðast hafði til hans heyrzt. Hafði Úranus lagt að baki meira en helming leiðarinnar heim síðdegis í gær. Flugvélar á leið yfir hafið höfðu einnig hlustað í loftskeytatæki sín, og Hekla, flugvél Loftleiða var búin að búa sig undir að leggja lykkju á leið sína og svipast um eftir Úranusi í gær. Skipshöfnin á Úranusi í þessari veiðiferð voru:
Helgi Kjartansson, skipstjóri, Holtsgötu 22.
Jóhannes Sigurbjörnsson, 1. stýrimaður, Víðimel 23.
Ægir Egilsson, 2. stýrimaður, Stangarholti 16.
Viggó E. Gíslason, 1. vélstjóri, Mávahlíð 24.
Sveinbjörn Helgason, 2. vélstj., Mánagötu 19.
Hlöðver Magnússon, 3. vélstj., Knoxbúðum E-22.
Þórður Jónasson, loftskeytamaður, Nökkvavogi 3.
Hálfdán Ólafsson, 1. matsv., Bergstaðastræti 45.
Ægir Gíslason, 2. matsveinn, Skúlagötu 64.
Einar Sigurðsson, kyndari, Múlabúðum 20.
Þorbjörn Friðriksson, kyndari, Vesturgötu 26.
Kristinn Guðmundsson, bátsmaður, Ásgarði 53.
Birgir Egilsson, netamaður, Stangarholti 16, bróðir Ægis, 2. stýrimanns.
Haraldur Ragnarsson, netamaður, Snorrabraut 40.
Joachim Kaehler, þýzkur maður til heimilis í Þjóðminjasafnsbyggingunni.
Hreiðar Einarsson, háseti, Barmahlíð 37.
Ólafur Jónsson, háseti, Stykkishólmi.
Pétur Hraunfjörð, háseti, Heimahvammi, Blesugróf.
Sigurður Jóhannsson, háseti, Bakkag. 2.
Halldór Magnússon, háseti, Mel, Breiðholtsvegi.
Hörður ívarsson, háseti, Vesturgötu 26A.
Ágúst Guðjónsson, háseti, Akurgerði 3.
Bræðurnir Guðmundur og Ívar Steindórssynir, Teigi, Seltjarnarnesi.
Jurgen Scheffer, háseti, Laugavegi 68.
Uwe Eggert, háseti, Selás 6.
Konrad Braun, til heimilis í Aachcen, V-Þýzkalandi.

Morgunblaðið. 14 janúar 1960.


B.v. Úranus RE 343 heldur til hafs úr Reykjavíkurhöfn.                                Ljósmyndari óþekktur.

B.v. Úranus RE 343 við bæjarbryggjuna í Neskaupstað sennilega árið 1973. Lengst til vinstri sést í skorstein 1137. Barða NK 120. Utan á bryggjunni er 1278. Bjartur NK 121 sem nýlega er kominn heim eftir 49 sólarhringa siglingu frá Niigata í Japan.       Ljósmyndari óþekktur.


B.v. Úranus RE 343 eftir brotið sem hann fékk á sig suðaustur af Færeyjabanka í febrúar árið 1962. Mynd úr safni Hafliða Óskarssonar.

           Íslenskir togarar í óveðri
Brotsjór tók bátana og laskaði Úranus

Norðaustan stormur og óveður hefur geisað suðaustur af Færeyjabanka, eins og skýrt hefur verið frá í blaðinu og skip lent þar í miklum erfiðleikum. Nokkrir íslenzkir togarar hafa verið á ferðinni á þessum slóðum og þremur þeirra hlekkzt á. Úranus missti bátana í brotsjó og fleira brotnaði ofanþilja, stýrið á Júní skemmdist er það var á leið norsku skipi til hjálpar og smávægileg bilun varð hjá Skúla Magnússyni. Ekki er getið um í skeytum að neitt hafi orðið að mönnum og öll eru skipin á heimleið. Ekkert mun hafa orðið að öðrum togurum á þessum slóðum. Veðrið var í gær að ganga niður.Kl. 6 á föstudagsmorgun fékk Úranus á sig brotsjó, er skipið var statt 250 sjómílur suðaustur af Færeyjum á heimleið. Í skeyti til útgerðarfélagsins, sem var 12 tíma að komast til viðtakanda, var sagt að Úranus hefði misst báða björgunarbátana, og tvo gúmmíbáta, allar bátauglur séu stórskemmdar og ónýtar, loftventill yfir kyndistöð gjörónýtur, reykháfur mikið doldaður, ein plata á vélarrist dælduð, en aðrar sýnilegar skemmdir ekki stórvægilegar. Útgerðarfélagið Júpiter h.f. sendi Úranusi fyrirspurn um það hvernig veður væri. Kom svar í fyrrinótt, þar sem sagði að veður færi batnandi og Úranus væri kominn á Færeyjabanka og virtist allt í lagi með ferð skipsins. Jafnframt lét Júpiter skipaskoðun ríkisins vita um atburðinn svo og skoðunarstjóra Lloyds. Þess má geta að Úranus mun enn hafa tvo 12 manna gúmmíbáta um borð.

Morgunblaðið. 18 febrúar 1962.


Flettingar í dag: 1032
Gestir í dag: 61
Flettingar í gær: 906
Gestir í gær: 50
Samtals flettingar: 719759
Samtals gestir: 53468
Tölur uppfærðar: 19.4.2024 21:23:35