17.03.2019 08:31
M. b. Magni NK 68.
Magni NK 68 við Sverrisbryggjuna sumarið 1937. Til vinstri sér í athafnasvæði Sigfúsar Sveinssonar og Sigfúsarbryggjuna úti á Neseyrinni. Hún var byggð árið 1915. (C) Lára Ólafsdóttir.
Norðfirðingar
auka skipastól sinn
Í fyrradag kom hingað til Norðfjarðar frá Fredrikssund í
Danmörku eftir vikuferð með viðkomu á Shetlandseyjum og Færeyjum mótorbáturinn
Þráinn NK 70, tuttugu smálestir að stærð. Báturinn er smíðaður í Fredrikssund
og hefir 50-60 hestafla Tuxhamvél. Skipstjóri á uppsiglingu var Bjarni Jónsson
Fáskrúðsfirði, en eigandi bátsins er Ölver Guðmundsson útgerðarmaður. Einnig
kom hingað til Norðfjarðar í gær frá Molde í Noregi, eftir þriggja sólarhringa
ferð yfir hafið, og eins og hálfs sólarhrings töf í dimmviðri við Papey,
mótorbáturinn Magni NK 68, stærð 18 tonn með 24-25 hestafla Wichmanns mótorvél.
Hann er smíðaður í Molde og er eigandi hans Guðjón Eiríksson frá Dagsbrún og
félagar. Báðir bátarnir eru raflýstir og ágætlega útbúnir og hefir Norðfirski
flotinn þar með fengið álitlega viðbót.
Alþýðublaðið. 12 mars 1935.
Ytri bæjarbryggjan og þar upp af, Hafnarhúsið, nú safnahús Norðfirðinga. Bátarnir í fjörunni eru, Magni NK 68 nær og Þór NK 32. Grimsbytogari við bryggjuhausinn og aðrir bátar í flota Norðfirðinga liggja einnig við bryggjuna. (C) Björn Björnsson.
Mannskaðaveðrið
9 febrúar 1946
Síðastliðinn laugardag gerði aftaka veður á Suður og
Vesturlandi. Flestir bátar voru þá á sjó og hrepptu hið versta sjóveður og
komust margir við illan leik í land, eftir að hafa orðið fyrir línutapi og
fengið áföll, Fjögurra báta er saknað. Af þeim er vitað með vissu um afdrif
eins, m.b. Magna frá Norðfirði, en hann sást farast út af Garðskaga og líkur
benda til um sömu afdrif annars, m.b. Geirs frá Sandgerði, þvi farið er að reka
lóðabelgir og brak úr stýrishúsi hans á fjörunum skammt frá Sandgerði. Um
afdrif hinna bátanna tveggja, sem saknað er, er ekki vitað, en þeirra hefir
verið leitað af bátum og flugvélum árangurslaust. Þeir heita Max, frá
Bolungarvík, og Alda, frá Seyðisfirði. Þá tók út tvo menn af vélbátnum Hákon
Eyjólfsson, frá Garði. Alls er óttast um, að rúmlega tuttugu menn hafi farizt í
ofviðri þessu.
Vélbáturinn Magni frá Norðfirði var gerður út frá Sandgerði. Hann fór í róður
eins og allir hinir bátarnir, á föstudagskvöld. Var hann seint búinn að draga
línuna, eins og fleiri bátar, og var á leiðinni til lands, er honum hvolfdi
undan Garðskaga. Nærstaddur var þar báturinn Barði frá Húsavík og sá til
afdrifa Magna og fór á Vettvang. Þegar þangað kom flaut brak á sjónum og hélt
einn mannanna sér uppi á því og varð honum bjargað. Til annarra af
skipshöfninni sást ekki. Sá, sem komst af, var vélamaðurinn. Áhöfnin var alls
fimm menn. Frá hinum bátunum þremur, sem saknað er, hefir ekkert frétzt, þrátt
fyrir mikla eftirgrennslan, en vegna veðurofsans síðari hluta laugardagsins, er
talið ólíklegt, að nokkur þeirra sé ofansjávar, fyrst þeir eru ekki enn búnir
að ná landi. Áhöfn hvers báts hefir verið fimm menn og hafa því farizt 21 maður
i óveðrinu, svo vitað er um, 19 af bátunum fjórum, en auk þessa tók tvo menn út
af vélbátnum Hákoni Eyjólfssyni frá Garði, sem ekki náðust aftur.
Vélbáturinn
Geir frá KeflavíK réri þaðan á föstudagskvöldið og vissu menn það síðast til
hans á laugardag, að hann var að draga lóðir sínar. Síðan hefir ekkert til hans
spurzt, nema hvað farið er að reka úr honum skammt frá Sandgerði. Hefir rekið
bjóð og lóðabelgi og einnig brak úr stýrishúsi og aftursigla. Líkur benda því
til, að báturinn sé ekki lengur ofansjávar. Til vélbátsins Max frá Bolungarvík
hefir ekkert spurzt síðan hann fór í róður á föstudagskvöld. Lóðir bátsins fundust
á sunnudaginn um 10 sjómílur undan Deild. Þann dag leituðu sex bátar að Max í
allgóðu veðri og góðu skyggni, en sú leit bar engin árangur. Fjórði báturinn,
sem saknað er, er vélbáturinn Aldan frá Seyðisfirði, sem rær frá Hafnarfirði.
Til hans hafði ekkert spurzt í gærdag. Margir bátar frá verstöðvum við Faxaflóa
og vestanlandi komust við illan leik til hafnar og voru sumir hætt komnir. Allt
lauslegt tók fyrir borð á mörgum bátum, rúður brotnuðu og einnig urðu nokkrar
aðrar skemmdir á bátum vegna sjógangs. Lóðatap er mikið, fæstlr bátar gátu
dregið allar lóðir sínar og nokkrir sáralítið af þeim. Vera má þó, að nokkuð af
bátum finni lóðir sínar aftur, enda reru flestir bátar við Faxaflóa aftur á
sunnudagskvöldið. Vélbáturinn Freyja hélt uppi björgunarstarfsemi á Faxaflóa
ofviðrisdaginn í stað Sæbjargar og hjálpaði þremur bátum til hafnar, Bjarna
Ólafssyni, Eini og Faxa. Þá fór linuveiðarinn Ólafur Bjarnason, sem var á
Akranesi, er ofviðrið skall á, bát til hjálpar, sem var með bilaða vél og
virtist mundi reka upp á Mýrar. Var það vélbáturinn Særún frá Siglufirði, en
skipverjum tókst að koma vélinni í lag og náði báturinn þvi heilu og höldnu til
lands hjálparlaust. Þrjá menn tók út af vélbátnum Ófeigi frá Vestmannaeyjum og
náðust þeir allir inn aftur og má það teljast hraustlega gert í slíkum
veðurofsa og sjógangi. Skipstjóri á Ófeigi er Angantýr Elíasson. Báturinn
Hermóður af Akranesi varð fyrir vélbilun, er hann var að fara frá bryggju til
legufæra sinna á laugardagskvöldið, og rak hann á land upp í kletta hjá
Sólmundarhöfða við Langasand. Mannbjörg varð, en líklegt er talið, að báturinn
hafi orðið fyrir verulegum skemmdum og muni ekki nást út, nema sjór kyrrist
fljótlega.
Þeir sem fórust með Magna NK 68 voru:
Sigurður Samsonarson skipstjóri Neskaupstað.
Steingrímur Jónsson háseti Neskaupstað.
Halldór Sigurðsson háseti Neskaupstað.
Erlingur Þorgrímsson háseti Selnesi við Breiðdalsvík.
Skipverjinn sem bjargaðist hét Ríkharður Magnússon (Gæi í Baldurshaga)
vélamaður Neskaupstað.
Tíminn. 12 febrúar 1946.