16.09.2019 19:54

M. b. Hjörtur Pétursson SI 80.

Vélbáturinn Hjörtur Pétursson SI 80 var smíðaður í Nyköbing Mors ? í Danmörku árið 1931 fyrir Elimund Ólafsson útgerðarmann í Keflavík, hét þá Björgvin GK 343. 19 brl. 76 ha. Tuxham vél. Seldur 12 mars 1932, Fiskimjöli hf í Reykjavík, sama nafn og númer. Seldur árið 1933 Birni Benediktssyni og Sigvalda Sveinbjarnarsyni í Reykjavík, sama nafn og númer. Seldur 4 júlí 1933, Sigurði Hallbjarnarsyni útgerðarmanni á Akranesi, hét Bára MB 32. Seldur 23 nóvember 1939, Vilhjálmi Hjartarsyni kaupmanni á Siglufirði, hét þá Hjörtur Pétursson SI 80. Báturinn fórst í Faxaflóa í miklu óveðri 27 febrúar árið 1941 með allri áhöfn sex mönnum.


Vélbáturinn Hjörtur Pétursson SI 80 við bryggju á Siglufirði.                        Ljósmyndari óþekktur.

 Óttast um vélbátinn Hjört Pétursson

Óttast er um afdrif vjelbátsins "Hjartar Pjeturssonar" frá Siglufirði, sem gerður er út frá Hafnarfirði og fór þaðan í róður s.l. miðvikudag. Talstöð bátsins var biluð, er hann lagði af stað, og hefir hann ekki komið fram, en hinsvegar hefir rekið úr honum bjarghringi og dufl í Garði. Sex menn voru á bátnum, formaður Eiríkur Þorvaldsson. Eigandi bátsins er Vilhjálmur Hjartarson á Siglufirði.

Morgunblaðið. 1 mars 1941.

     Fárviðri við Faxaflóa veldur miklu
           skipatjóni og mannskaða

     Vélbáturinn Hjörtur Pétursson frá
   Siglufirði ferst með sex manna áhöfn

Vélbáturinn Hjörtur Pétursson frá Siglufirði fórst með allri áhöfn í fyrradag sunnanvert á Faxaflóa. Á bátnum voru sex menn:
Eiríkur Þorvaldsson, formaður, Helgadal við Kringlumýri. Hann var kvæntur og átti 3 börn, hið elzta 9 ára.
Unnar Hávarðsson, stýrimaður. Hann var Eskfirðingur, ókvæntur.
Helgi Oddsson, vélstjóri frá Siglufirði. Hann var ókvæntur.
Jón Stefánsson, háseti, frá Siglufirði. Hann var kvæntur og átti 1 barn.
Andrés Ágústsson, háseti, frá Siglufirði. Hann, var kvæntur og átti 1 barn.
Viktor Knútsson, háseti, Laugaveg 70 B. Hann var ókvæntur.
Báturinn var 20 tonn að stærð og eign Vilhjálms Hjartarsonar kaupmanns á Siglufirði. Hann var gerður út frá Hafnarfirði. Á miðvikudagskvöld fór báturinn í róður frá Hafnarfirði og mun hafa lagt lóðina 30-40 mílur norðvestur af Hafnarfirði. Í fyrradag fór að reka ýmislegt úr bátnum í Garði, þar á meðal tvo bjarghringi, skilrúm af dekki og úr lest.
Þeir sem fórust voru allir á bezta aldri.

Þjóðviljinn. 1 mars 1941.



Flettingar í dag: 717
Gestir í dag: 58
Flettingar í gær: 1186
Gestir í gær: 63
Samtals flettingar: 725249
Samtals gestir: 53794
Tölur uppfærðar: 26.4.2024 16:00:40