30.09.2021 15:50

B.v. Eiríkur rauði RE 23. LBND.

Botnvörpungurinn Eiríkur rauði RE 23 var smíðaður hjá Cochrane & Sons Ltd í Selby á Englandi árið 1925 fyrir Firmað Geir & Th Thorsteinsson í Reykjavík. 412 brl. 700 ha 3 þennslu gufuvél. 44,84 x 7,76 x 3,67 m. Smíðanúmer 991. Eiríkur rauði var töluvert frábrugðinn öðrum íslenskum togurum þessa tíma. Hann var mun stærri og brúin var mun lengri. Fyrir aftan stjórnpallinn var loftskeytaklefi stjórnborðsmegin og bakborðsmegin var sérstakur kortaklefi. Möstur skipsins voru miklu hærri en áður var, voru heil upp úr þannig að ekki þurfti sérstakar loftskeytastangir. Togarinn strandaði á Mýrartanga, austan Kúðafljótsóss á Meðallandssandi 2 mars 1927. Björgunarmönnum úr Álftaveri og frá Kirkjubæjarklaustri björgaðu áhöfninni, 19 mönnum á land. Skipið eyðilagðist á strandstað. Eiríkur rauði var til þess að gera, nýtt skip, rúmlega eins árs gamalt. Hafði komið til heimahafnar, Reykjavíkur hinn 8 desember 1925. Togarinn var að koma úr söluferð til Englands og var fulllestaður af kolum.


B.v. Eiríkur rauði RE 23 á veiðislóð.                                                  (C) Guðbjartur Ásgeirsson. 

 

            Eiríkur rauði RE 23

Eiríkur rauði heitir nýr botnvörpungur, sem Geir Thorsteinsson og fleiri hafa látið smíða í Englandi. Hann er nú á leið hingað og búist við, að hann komi hingað í kveld kl. 9 ½ , ef ekki hamlar veður.

Vísir. 8 desember 1925.


B.v. Eiríkur rauði RE 23 á toginu.                                              (C) Guðbjartur Ásgeirsson.


B.v. Eiríkur rauði RE 23.                                                                  (C) Guðbjartur Ásgeirsson.
 

  Eiríkur rauði strandar við Kúðaós

Seint í fyrra kvöld fjekk Geir Thorsteinsson, útgerðarmaður, loftskeyti frá skipstjóranum á togaranum Eiríki rauða, þar sem skipstjórinn skýrði frá því, að skipið væri strandað, en vissi ekki glöggt hvar, sennilega á Mýratanga, vestan við Kúðaós. Varðskipið Óðinn, sem var staddur við Vestmannaeyjar, náði einnig loftskeytum frá Eiríki rauða og fór strax austur á strandstaðinn. Óðinn kom á strandstaðinn kl. 3 í fyrrinótt. Hann var í stöðugu skeytasambandi við togarann. Þegar birti í gærmorgun sáu skipverjar á Óðni menn í fjörunni, og þeir sáu einnig menn um borð í togaranum. Vegna brims gat Óðinn ekkert samband haft við togarann, nema gegn um loftskeytin meðan þau voru í lagi. Þegar leið fram á morgun (gærmorgun) sápu skipsmenn á Óðni menn á togaranum hópast fram á hvalbakinn og um sama leyti voru dregin upp flögg á togaranum, sem gáfu til kynna að nú yfirgæfu mennirnir skipið. Nokkru síðar sáu skipverjar á Óðni marga menn uppi í fjöru, einnig hesta, og mennirnir dreifðu sjer um fjöruna.
Þetta eru einu fregnirnar er borist höfðu af strandinu í gærkvöldi. Eins og sjest á fregnunum, höfðu skipsmenn á Óðni ekki getað náð tali af skipsmönnum á togaranum og þeir höfðu ekkert samband við menn úr landi. Skipsmenn á Óðni vissu því ekki hvernig skipverjar úr togaranum björguðust á land og ekki hvort allir hefðu bjargast, eða hvort nokkurt slys hefði orðið. Nánari fregnir af þessu öllu geta fyrst komið hingað í dag.
Í skeytinu frá skipstjóranum á Eiríki rauða, segir, að hann haldi að þeir hafi strandað á Mýratanga, vestan við Kúðaós. En eftir þeim upplýsingum, sem Mbl. fjekk í gær frá Vík í Mýrdal, er sennilegra að strandið sje austan við Kúðaós. Maður hafði komið til Víkur í gær, austan úr Álftaveri, og sagði hann frá því, að þeir Álftveringar hefðu sjeð merki þess í fyrrakvöld, að eitthvað var að hjá skipi við  sandana, en þeir álitu það vera fyrir austan Kúðaós, á Meðallandsfjörum. Enda er þetta sennilegra, þar eð í gærkvöldi hafði enginn sendimaður komið til Víkur til þess að tilkynna sýslumanni strandið. Hafi strandið orðið fyrir vestan Kúðaós, þá hefði sendimaður átt að vera kominn til Víkur seinnipartinn í gær, en sje strandið fyrir austan ósinn, þá var ekki hægt að búast við sendimanni fyrri en seint í gærkvöldi eða fyrripartinn í dag.
Eiríkur rauði  var nýtt skip, smíðaður 1925 í Selby í Englandi. Hann var með stærstu togurum hjer, 144.84 fet á lengd og var 412 smál. brúttó, 174 smál. nettó. Skipið var vátryggt hjá Samtryggingu íslenskra botnvörpuskipa. Skipstjóri var Guðmundur Sveinsson. Skipið var að koma frá Englandi, fullfermt af kolum.

Morgunblaðið. 4 mars 1927.

Flettingar í dag: 881
Gestir í dag: 255
Flettingar í gær: 655
Gestir í gær: 243
Samtals flettingar: 737302
Samtals gestir: 55131
Tölur uppfærðar: 6.5.2024 15:39:54