Blog records: 2020 N/A Blog|Month_7
26.07.2020 06:25
Síldveiðar togaranna.
Sjávarútvegurinn greinist í tvo aðalþætti, eins og hann er nú rekinn hér við land: Þorskveiðar og síldveiði. Eins og kunnugt er, hefir þorskaflinn brugðist mjög hin síðustu ár, auk þess sem markaðshrun hefir átt sér stað á þeirri útflutningsvöru á Spáni. Samfara þessum erfiðleikum hefir verið gert mikið átak í síldveiðunum, sem bætt hefir nokkuð upp þann fjárhagslega skaða, sem hlotizt hefir af þorskaflaleysinu og markaðshruninu. Stjórnarandstæðingar hafa á undanförnum árum kennt valdhöfunum um alla erfiðleika sjávarútvegsins eins og allt annað, sem ekki hefir farið að óskum manna. Nú eru fyrverandi stjórnarandstæðingar komnir í stjórnaraðstöðu. Áður sýndu þeir mátt sinn í orði. Nú gefst þeim færi á að sýna mátt sinn í verki. Aldrei hefir verið meiri þörf fyrir það en nú. Ástandið með þorskveiðar togaranna hefir aldrei verið jafn aumt og nú. Afli þeirra eftir nýafstaðna vertíð minni en nokkru sinni áður. Fiskurinn er horfinn af hinum venjulegu togaraslóðum. Fram undir þessa tíma hefir verið litið á Selvogsgrunn sem örugga gullkistu, er ekki gæti brugðizt fremur en gamalræktað tún hætti að gefa af sér töðu.
B.v. Arinbjörn hersir RE 1 að háfa síld. (C) Guðbjartur Ásgeirsson.
Þorskafli
togaranna minni en nokkru sinni áður
Vonirnar um bærilega afkomu beinast
nú að síldveiðunum
Á þessum einum af beztu fiskimiðum heimsins, sem kölluð hafa verið og það með
réttu, fæst nú varla uggi úr sjó. Þegar aflinn brást svo átakanlega á hinum
venjulegu fiskimiðum í vetur, sendi ríkisstjórnin með stuðningi
fiskimálanefndar 3 togara í fiskileit; leituðu þeir umhverfis landið og til
Grænlands, en því miður bar þetta engan árangur. Lítur út fyrir að hvergi sé
togfiskur hér við land, hvað sem því veldur. Þrátt fyrir þetta telja
fiskifræðingar og glöggskyggnir menn á þessa hluti enga ástæðu til að örvænta
um þessi efni fyrir framtíðina, fiskurinn komi von bráðar aftur eins og jafnan
áður, þegar aflaleysistímar hafi þrengt að kosti landsmanna. Ofan á aflaleysið
bætist svo það, að sölumöguleikar á Spáni sýnast alveg útilokaðir, þar sem
landið og þjóðin, sem það byggir, er flakandi í sárum eftir hina hræðilegu
styrjöld, er þar hefir geisað um nærfellt 3 ár. Hafa sendimenn verið gerðir út
héðan til Spánar í fisksöluerindum, en sú för engan árangur borið. Aftur á móti
hefir tekizt að selja nokkurn slatta af þessa árs framleiðslu saltfisks til
Ítalíu. Þegar á allt þetta er litið eru horfurnar um saltfiskveiðar og sölu
hinar ískyggilegustu nú sem stendur. Þessi höfuðútflutningsvara þjóðarinnar er
að mestu gengin okkur úr greipum um stundarsakir að minnsta kosti. Hefði slík
blóðtaka á þjóðarbúskapnum verið vituð fyrir nokkrum árum, myndu flestir eða
allir hafa verið þess fullvissir, að hún riði þjóðinni að fullu.
B.v. Garðar GK 25 á síldveiðum á Húnaflóa. (C) Guðbjartur Ásgeirsson.
Vegna ötullar
bjargráðastarfsemi á öðrum sviðum hefir þó raunin orðið önnur og mun enn svo
verða. Enn hafa menn þá bjargföstu trú, að síldin í sumar bjargi öllu og bæti
úr þeirri neyð, sem aflaleysið á togurunum á síðustu vertíð hlýtur að valda.
Útlit er fyrir, að þátttakan í síldveiðunum í sumar verði meiri en nokkru sinni
fyrr. Talið er, að vegna gengisbreytingarinnar fari mörg skip á síldveiðar sem
ella hefðu að líkindum legið við landfestar, þar á meðal flestir togararnir.
Talið er og, að verð á síld til söltunar hækki nokkru meira en
gengisbreytingunni nemur, og verð á bræðslusíld hækkar að verulegum mun.
Stjórn síldarverksmiðja ríkisins hefir gert þá tillögu til atvinnumálaráðherra,
að verð á bræðslusíldinni í sumar verði kr. 6.70 á mál. Er þetta verð með því
hæsta, sem verið hefir. Í fyrra var verðið kr. 4.50 á mál. Árið 1937 var það 8
kr., en tap var á verksmiðjunum það ár. Árið 1936 var verðið kr. 5.30 á mál.
Geta má þess, að þetta verð, kr. 6.70, er fasta verðið, sem greitt er, ef
síldin er keypt. Hinsvegar hafa útgerðarmenn heimild til samkv. lögunum um
rekstur síldarverksmiðjanna að taka hið svonefnda vinnsluverð fyrir síldina.
Verður þeim þá greitt 85% af áætlunarverðinu við afhendingu, en endanlegt verð
síðar, þegar rekstursreikningar ársins liggja fyrir uppgerðir. Enga
fyrirframsamninga um sölu matjessíldar frá þessu sumri mun Síldarútvegsnefnd
enn hafa gert. En gert hefir nefndin út tvo menn, þá Jóhann Jósefsson og Erlend
Þorsteinsson, til utanfarar, til þess að annast sölu matjessíldar. Fara þeir
til Póllands og Þýzkalands. Aftur á móti hafa einstakir saltendur gert
talsverða fyrirframsamninga um sölu á saltsíld og kryddsíld. Útlitið um
síldarsöluna í Svíþjóð er sízt talið verra en verið hefir.
B.v. Surprise GK 4 með fullfermi af síld. (C) Kjartan Traustason.
Í Mið-Evrópu er allt
í óvissu, vegna ófriðarblikunnar, sem þar er sífellt á lofti. Frá Ameríku hafa
enn ekki borizt fregnir um markaðsútlit, en Vilhjálmur Þór mun vinna að sölu vestra
fyrir Síldarútvegsnefndina eins og undanfarin ár. Mikill og margþættur
undirbúningur er þegar hafinn fyrir síldveiðarnar. Ýmsir búast við, að síldin
komi snemma að þessu sinni, þar sem mikil áta sé þegar komin í sjóinn.
Ríkisstjórn, Síldarútvegsnefnd og stjórn síldarverksmiðjanna hafa hrundið af
stað ýmsum ráðstöfunum, til þess að greiða fyrir veiðinni. Þannig var sú
ákvörðun tekin, að varðbáturinn Óðinn færi til Norðurlands í þessum mánuði í
sildarleit og áturannsóknir. Þá er og í ráði að fá flugvélina T F Örn í
síldarleit um tveggja mánaða tíma, meðan á síldveiðum stendur. Er gert ráð
fyrir að kostnaðurinn við för varðbátsins og síldarleit flugvélarinnar verði
alls um 35 þús. kr., og er ætlazt til að ríkissjóður, síldarútvegsnefnd,
ríkisverksmiðjurnar og einkaverksmiðjur greiði þann kostnað að jöfnum hlutum.
Þá er ætlazt til, að síldarverksmiðjur ríkisins verði tilbúnar til þess að taka
á móti síld í bræðslu 10.-15. júní. Af öllu þessu er það ljóst að hátt er reitt
til höggs gagnvart síldveiðunum í sumar og er vonandi að árangurinn verði eftir
því. Veitir sannarlega ekki af úrbótum á hinum fádæma rýra afla togaranna á
síðustu vertíð. Að lokum skal þess getið, að þó afli togaranna að þessu sinni
væri enn rýrari en áður, þá er samt heildaraflinn dálítið ríflegri en hann var
í fyrra. Munurinn er nálægt 4 þús. smálestum.
Dagur. 25 maí 1939.
12.07.2020 11:08
E. s. Katla l. TFKB.
Eimskipið Katla var smíðuð hjá Burmeister & Wain í
Kaupmannahöfn árið 1911 fyrir A/S D/S Manchionel O & A. Irgens í Bergen í
Noregi. Hét þá Manchioneal. 1.400 ha. 2 þennslu B & W gufuvél. Smíðanúmer 278. Skipið var selt 19 maí 1934,
Eimskipafélagi Reykjavíkur hf, hét Katla. Selt í maí 1945, hf. Eimskipafélagi
Íslands, hét þá Reykjafoss. Skipið var selt í maí 1949, Kisinbay Biraderlev Ltd
í Tyrklandi, hét þá Nazar. Selt 1958, Zeki Ve Ziya Sönmes Izzet Kirtil í
Istanbul í Tyrklandi, hét Cerrahazade. Skipið var selt árið 1967, Avram Kohen
Ve Ortaklari í Istanbul til niðurrifs.
E.s. Katla l í erlendri höfn. Gaman væri að vita hvar myndin er tekin. Mynd úr safni mínu.
E.s. Katla
hið nýja skip Eimskipafélags Reykjavíkur, er 1650 smálestir
og var keypt í Noregi. Skipið hét áður Manchioneal og var smíðað í
Kaupmannahöfn árið 1911. Skipstjóri á E.s. Kötlu verður Rafn Sigurðsson.
Vísir. 23 maí 1934.
E.s. Reykjafoss l. Skipið var í eigu hf Eimskipafélags Íslands frá 1945 til 1949. Mynd úr safni mínu.
E.s. Katla
keypt
Eimskipafélag íslands hefur nýverið fest kaup á e/s Kötlu,
sem verið hefur eign Eimskipafélags Reykjavíkur h/f. Katla var smíðuð í
Kaupmannahöfn 1911 og er 1657 rúml. brúttó. Lestarrúm hennar er 92 þús.
teningsfet, og er það svipað lestarrúm og er í Fjallfossi. Síðastliðinn vetur
fór mikil viðgerð fram á Kötlu og kostaði hún 800-900 þús. kr. Eimskipafélagið
keypti skipið fyrir 2 350 þús. kr. Katla hefur fengið nýtt nafn og heitir nú
Reykjafoss.
Ægir. 1 júní 1945.
Reykjafoss
seldur úr landi
Eimskipafélag Íslands hefur ákveðið að selja e.s. Reykjafoss
(áður Katla). Skipið er 1656 brúttó smál. að stærð, byggt í Kaupmannahöfn 1911.
Einnig er ákveðið að selja e.s. Lagarfoss til niðurrifs. Skipið braut oxulinn í
hafi fyrir nokkrum dögum, og þykir ekki borga sig að gera við það. Lagarfoss
var byggður 1904 og keyptur af E. Í. skömmu eftir að fyrsta skip þess,
Goðafoss, hafði farizt hér við land. Stjórn E. Í. hefur ákveðið að hið nýja
farþegaskip félagsins, en kjölurinn að því var lagður 8. janúar s.l., skuli
heita Gullfoss.
Sjómannablaðið Víkingur. 1 maí 1949.
04.07.2020 22:39
Landað úr B.v. Svalbak EA 2 á Akureyri á árum áður.
Landað úr togaranum Svalbak EA 2 á Akureyri. Ljósmyndari óþekktur.
- 1