Blog records: 2018 N/A Blog|Month_5
31.05.2018 19:04
Togarinn Ottó N Þorláksson RE 203 kveður.
Ottó N
Þorláksson RE 203
seldur til Vestmannaeyja
HB Grandi hefur selt ísfisktogarann
Ottó N. Þorláksson RE 203 til Ísfélags Vestmannaeyja. Söluverðið er 150
milljónir króna og verður það greitt við afhendingu sem fer fram eigi síðar en
31. maí næstkomandi.
Ottó N. Þorláksson var smíðaður árið 1981 í Garðabæ og hefur skipið reynst
afburðar vel.
Af vefsíðu H.B. Granda hf. 29
desember 2017.
Aflaskip
kveður
Viðey RE tekur við
Ísfisktogarinn Ottó N. Þorláksson
RE kom til Reykjavíkur sl. sunnudag með fullfermi. Þetta var síðasta veiðiferð
þessa mikla aflaskips fyrir HB Granda en í stað þess kemur nýsmíðin Viðey RE. Af vefsíðu H.B. Granda hf. 29 maí
2018.
Ottó N. Þorláksson hefur verið farsælt aflaskip.
Það var smíðað í Stálvík í Garðabæ árið 1981. Skipstjóri hefur verið Jóhannes
Ellert Eiríksson en hann tók við togaranum fyrir 24 árum. Ottó N. Þorláksson er
nú í slipp í Reykjavík þar sem nýir eigendur taka við honum í vikunni.
Viðey hefur eftir komuna frá Tyrklandi í desember
sl. verið á Akranesi þar sem starfsmenn Skagans 3X hafa unnið að uppsetningu
nýs, sjálfvirks lestarkerfis, aðgerðaraðstöðu á millidekki og stillingu á ýmsum
tölvubúnaði. Er rætt var við Jóhannes Ellert skipstjóra var verið að taka
veiðarfæri um borð í Reykjavík en stefnt er að því að togarinn fari í
reynslusiglingu fyrir sjómannadag og svo á veiðar í framhaldinu.
27.05.2018 18:24
Farþegaskipið MSC Meraviglia.
Ægir gamli er ekki stór í samanburði við þennan risa.
Stærsta skemmtiferðaskip á
Íslandi
Stærsta skemmtiferðaskip sem til Íslands kemur í sumar
er væntanlegt til Reykjavíkur á laugardag. Skipið, sem ber nafnið MSC
Meraviglia, verður stærsta skemmtiferðaskip sem hingað hefur
komið. Meraviglia hefur sólarhringsviðdvöl við Skarfabakka og siglir
á brott á sunnudag. 4.526 farþegar koma með skipinu og 1.561 er í áhöfn skipsins,
segir í tilkynningu frá Gáru, dótturfélagi TVG-Zimsen sem þjónustar
skipið á meðan það er við höfn á Íslandi.
Í tilkynningunni segir að skipið sé hið glæsilegasta, 171.598 brúttótonn
að stærð, 315 metrar að lengd og 43 metrar að breidd. Félagið MSC Cruises er
eigandi skipsins og er fyrsta fyrirtækið í skemmtiferðaskipaiðnaði sem
hlýtur verðlaunin "7 perlur", en verðlaunin eru veitt þeim fyrirtækjum
sem huga vel að loftslags-, sjávar- og úrgangsmálum.
146.700 farþegar eru væntanlegir hingað til lands með skemmtiferðaskipum á
þessu ári, fleiri en nokkru sinni fyrr. Á þessu ári verða skipin 70 talsins
og hafa 165 sinnum viðkomu í Reykjavík.
Mbl.is 24 maí 2018.
27.05.2018 07:42
23. Baldur EA 12. TFSN.
Nýtt skip til
Dalvíkur
Á fimmtudaginn kom nýtt 102 tonna austur-þýzkt stálskip til
Dalvíkur. Eigandi er Aðalsteinn Loftsson, útgerðarmaður, sem einnig er eigandi
Baldvins Þorvaldssonar og hefur rekið útgerð á Dalvík um margra ára bil, haft
fiskmóttöku og verkað saltfisk og skreið. Viktor Jakobsson sigldi skipinu heim.
Skipstjóri á sildveiðum verður Kristján Jónsson. Ganghraði skipsins var 10
sjómílur á heimsiglingu. Vél skipsins er 400 ha. Mannheim.
Skipið verður með kraftblökk á síldveiðunum.
Dagur. 7 júní 1961.
23. Már GK 55. (C) Tryggvi Sigurðsson.
Már GK 55. Sennilega kominn á endastöð. (C) Tryggvi Sigurðsson.
Smíðaupplýsingar. Haukur Sigtryggur Valdimarsson á Dalvík.
26.05.2018 09:24
L. v. Óskar VE 286. LBCN.
Í þokunni
Það er víst mjög sjaldgæft, að menn hafi hjer átt jafnmiklum
þokum að venjast og raun hefir orðið á nú síðustu vikurnar. Hefir þokan tafið
mjög siglingu skipa hjer um fjörðinn og enda orðið þess valdandi, að nokkur
þeirra hafa strandað. Á laugardaginn var strandaði norska kolaskipið »Smaragd«
við Siglunes. Sama dag strandaði norska flutningsskipið "Jökul« á Þistlingunum,
fram af Látrum. Björgunarskipið »Geir« kom með það inn á höfnina á mánudaginn.
Þriðjudagsnóttina var, rann »Skallagrímur« á land við Hrísey, en komst þó
bráðlega á flot af eigin rammleik. Sömu nótt strandaði norska síldveiðaskipið
»Hareid« fyrir innan Látur. »Eggert Ólafsson hjálpaði því á flot, en sænska
síldveiðaskipinu »Asta« hjálpaði »Geir«. »Asta« hafði strandað við Hrísey á
þriðjudagsnóttina. Öll voru þessi skip óskemmd eða lítt skemmd nema »Smaragd«,
sem sagt er talsvert mikið skemmt.
Íslendingur. 20 ágúst 1915.
Óskar VE 286 með fullfermi af síld á Siglufirði. (C) Heimaslóð.
Línuveiðarinn
Óskar frá Vestmannaeyjum
strandar við Skagafjörð
Mannbjörg
Síðastliðinn þriðjudag voru tvö Skip frá Vestmannaeyjum við
kolaveiðar í Skagafirði. Var annað línuveiðarinn Óskar, um 152 smálesta
eimskip, eign Gísla Magnússonar, útgerðarmanns í Eyjum. Hitt var vjélbáturinn
Ágústa, einnig frá Vestmannaeyjum. Aflinn var settur í Óskar og átti hann að
fara með aflann til Englands. Aðfaranótt miðvikudags lögðust bæði skipin austan
við Lundey og ætluðu að liggja þar næturlangt. En um nóttina rak Óskar upp á
sker, sem er fyrir sunnan Lundey, brotnaði hann á skerinu og fylltist af sjó.
Skipsmenn komust allir yfir í vjelbátinn og þeir gátu náð farangri sínum
með , en öðru ekki. Næsta dag fóru þeir
aftur um borð í Óskar til þess að reyna að bjarga einhverju en , þá var skipið
komið á hliðina, og um sama leyti, tók það af skerinu og sökk. Er fjögra
faðma dýpi þar sem skipið sökk.
Nokkuð af fiski var í Óskari, er hann sökk. Skipið var
vátryggt í Sjóvátryggingarfjelaginu fyrir 50 þúsund krónur, en sú vátrygging
var lág, því nýlega hafði verið kostað miklu til skipsins. Er tjón eiganda
tilfinnanlegt.
Gísli Magnússon var sjálfur á skipinu þegar það strandaði, en skipstjóri var
Egill Jóhannsson, duglegur maður og sjógarpur hinn mesti. Ágústa flutti
strandmennina til Siglufjarðar, og koma þeir hingað með fyrstu ferð.
Morgunblaðið. 17 október 1930.
Magnús Hinriksson kafari með vélsímann úr Óskari VE. Mynd úr Feyki.
Fann flak
skips sem strandaði 1930
Magnús Hinriksson kafari á Sauðárkróki fann nýlega flak
skips sem strandaði við Lundey á Skagafirði á haustdögum 1930. Magnús náði
vélsímanum úr skipinu, nokkuð heillegum en að vonum hefur tækið látið ansi
mikið á sjá eftir að hafa legið í sjónum í tæp 67 ár. Það er nú til
meðhöndlunar í Minjahúsinu á Sauðárkróki hjá Sigríði Sigurðardóttir minjaverði.
Magnús sagðist í samtali við Feyki hafa vitað af flakinu þarna í nokkurn tíma
og verið ákveðinn í að finna það. Hafði hann viðað að sér upplýsingum varðandi
staðsetningu þess m.a. fengið lóranpunkta frá Ragnari Sighvatssyni
trillusjómanni á Sauð- árkróki, en hann festi ígulkeraplóg í því á sínum tíma.
Það var ansi erfitt að rogast með stykkið upp úr sjónum, en flakið var á 12
metra dýpi. Ég fann ekki akkerið frá bátnum sem ég var á, ætlaði að binda í
það, og var að verða súrefnislaus þegar ég kom upp", sagði Magnús. Hann
kvað afturhluta skipsins enn heillegan þar sem það lægi á hliðinni,
gufuketillinn væri upp úr botnleðjunni sem og skipsskrúfan. Það var 15. október
1930 sem línuveiðarinn Óskar VE-286 hraktist undan veðri inn á Skagafjörð og
steytti á skeri við Lundey. Skipverjunum var bjargað af áhöfn Ágústu VE sem var
skammt undan. Óskar, sem sökk daginn eftir, var 152 tonn að stærð, smíðaður í
Englandi 1890. Eigandi skipsins var Gísli Magnússon útgerðarmaður í
Vestmannaeyjum.
Feykir. 16 tbl. 7 maí 1997.
23.05.2018 18:37
Markus GR 6-373. OURN.
23.05.2018 08:25
Ísbjörn ÍS 15. LBDK / TFAI.
Ísbjörn ÍS 15 á Siglufirði. (C) Þorgeir Baldursson.
Bátar
samvinnufélagsmanna
Fjórir þeirra eru nú komnir hingað heilu og höldnu. Eru það
þessir: Sæbjörn kom 23. f. m, Ísbjörn kom 27. f. m., Ásbjörn kom 30 f. m. og
Vébjörn kom á nýársdagsmorgun. Fimmti báturinn Valbjörn sneri aftur til Noregs
vegna bilunar á olíugeymi. Var hann í Færeyjum á föstudaginn en var á leið
hingað. Af þessum bátum sem komnir eru var Sæbjörn lang fljótastur hingað. Hann
var sjö og hálfan sólarhring frá Risör til Ísafjarðar og eyddi 14 tonnum af
olíu, þó stansaði hann í 15 klst á leiðinni.
Skutull. 1 tbl. 6 janúar 1929.
Samvinnufélagsbátarnir við bryggjur á Siglufirði. (C) Haukur Sigtryggur Valdimarsson.
Áhöfnin á Ísbirni ÍS 15. Mynd úr sögu Ísafjarðar.
Þegar m/b
Ísbjörn strandaði
Aðfaranótt hins 7. marz s. l. strandaði mótorbáturinn
"Ísbjörn", Í. S. 15, austan við Skálavík í norðaustan stórviðri. Mannbjörg
varð og tókst hún mjög giftusamlega, en báturinn sjálfur eyðilagðist. Einn
skipsmannanna segir svo frá strandinu og björgun skipverja:
Um leið og skipið kenndi grunns, lagðist það mjög mikið á stjórnborðshlið.
Brotsjóirnir gengu á það bakborðsmegin og sumir yfir það. Eftir skamma stund
kastaði stór brotsjór skipinu af boðanum og var það þá á floti, en mikill sjór
var kominn í það og hafði vélin stöðvazt þess vegna. Meðan þetta gerðist voru
allir skipverjar komnir á þiljur. Voru sumir þeirra settir að þilfarsdælunni,
til þess að dæla sjó úr skipinu, en hinir voru látnir vinda upp seglin. Þegar
seglin höfðu verið undin upp, kom í ljós að stýrið var farið af skipinu og varð
því engri stjórn viðkomið. Seglin voru nú tekin miðskips til þess að auka drift
skipsins inn í víkina (Skálavík). Meðan þessu fór fram, hafði sjór aukizt að
mun í skipinu, og var sýnilegt, að þess myndi skammt að bíða, að það sykki.
Var
nú lífbáturinn settur á sjó og tekinn yfir á stjórnborða (hléborða). Búið var
áður að binda sjö belgi innan í bátinn, til þess að auka burðarþol hans, ef
hann fyllti. Einnig var settur strengur undir kjöl bátsins aftan við hálsþóttu
og á hann festir tveir belgir á hvora hlið bátsins, þannig, að aðeins örlaði á
þá belgina, sem ofar voru á strengnum, þegar skipverjar voru komnir í bátinn.
Þegar lífbáturinn var vel laus frá skipinu, sökk það, og var klukkan þá 4,30 um
nóttina. Var nú haldið inn eftir víkinni, en það ferðalag sóttist seint, enda
gekk mikill sjór í bátinn. Lent var í suðausturhorni víkurinnar og tókst það
eftir atvikum, þar sem komið var mikið brim. Klukkan var 5,20 um morguninn,
þegar allir skipverjar voru komnir á land, ómeiddir og heilir á húfi, og heim
að bænum Meiribakka voru allir komnir eftir tíu mínútur frá því að á land var
komið. Fengu mennirnir þar hinar prýðilegustu viðtökur.
Öllum ber skipsbrotsmönnunum saman um það, að flotmagnsauki sá, er belgirnir
veittu, sem festir voru við lífbátinn, hafi orðið þeim til lífs, ásamt einbeittni
og röskleika skipstjórans.
Sjómannablaðið Víkingur. 13-14 tbl. 1 júlí 1940.
21.05.2018 11:25
792. Steinunn gamla KE 69. TFRC.
Steinunn gamla KE 69 á siglingu. (C) Hafsteinn Jóhannsson.
Sænskur
bátur til Hafnarfjarðar
Þeir Ólafur Einarsson, útgerðarmaður í Keflavík og Kristján
Sigurðsson, skipstjóri í Hafnarfirði, hafa keypt nýjan vélbát frá Svíþjóð og
kom hann til Hafnarfjarðar í gær. Bátur þessi verður gerður út frá Keflavík og
ber heitið "Steinunn gamla" GK 363. Hann er ekki gerður samkvæmt
teikningum þeim á fiskibátum, sem ríkisstjórnin hefir samið um við sænskar
skipasmiðastöðvar.
Vísir. 20 júní 1947.
Steinunn gamla KE 69 í endurbyggingu og lengingu í Keflavík árið 1963. (C) Emil Páll Jónsson.
2 menn
fórust er bátur sökk -
einn komst lífs af
Snemma á laugardagsmorgun sökk vélbáturinn Ver frá Sandgerði
aðeins um tvær mílur suður af innsiglingunni í Sandgerði. Tveir menn fórust með
bátnum, en þriðji maðurinn, Aðalsteinn Sveinsson, bjargaðist eftir að hafa
svamlað í sjónum í um hálfa klukkustund. Aðalsteinn hefur borið fyrir sjódómi í
Hafnarfirði, að Steinnnn gamla KE 69 hafi siglt á bátinn, og hafi hann brotnað
í spón við ásiglinguna. Þremenningarnir á Ver, sem var þrjú tonn að stærð,
höfðu verið á veiðum um nóttina. Höfðu þeir farið út á föstudagskvöld. Var
Björgvin Þorkelsson með í þessum róðri í stað bróður þeirra Gísla og
Aðalsteins, sem ekki hafði ætlað sér að róa í þetta sinn, en hefur annars verið
með bræðrum sínum á bátnum, sem þeir keyptu fyrir skömmu. Þegar báturinn kom á
miðin fór vikur í kælivatnsdælu, en tókst mönnunum að lagfæra það eftir nokkurn
tíma. Lítill fiskur var á þessum slóðum, sem báturinn var á, svo ákveðið var að
halda heim aftur. Á leiðinni komst báturinn á betri mið, og höfðu mennirnir
verið að dorga í um eina klukkustund, þegar þeir tóku eftir því að Steinunn
gamla frá Keflavík nálgaðist þá. Töldu þeir þó ekki vera hættu á ferðum, þar
sem skyggni var gott, og ratsjá Steinunnar í gangi. Aðalsteinn segir að hann
hafi heyrt bróður sinn Gísla hrópa upp, að þeir skuli kasta sér í sjóinn og um
leið hafi áreksturinn orðið. Aðalsteini tókst að ná í botn hlera, og sömuleiðis
rak til hans björgunarbelti, sem bróðir hans hafði verið búinn að blása upp að
nokkru leyti. Tókst honum að halda sér uppi á þessu tvennu, og hafði verið í
sjónum um hálfa klukkustund, þegar vélbátinn Báruna bar að, og tóku mennirnir,
sem voru á Báranni, Ásmundur Böðvarsson og Finnbogi Bjarnason eftir Aðalsteini
og gátu náð honum upp úr sjónum. Ekki sást til Gísla eða Björgvins þrátt fyrir
ítrekaða leit að þeim. Sigldi Báran með Aðalstein til Sandgerðis og síðan fóru
bátar út þaðan til þess að halda áfram leit að mönnunum tveimur en þeir fundust
ekki.
Gísli Sveinsson var 27 ára og Iætur eftir sig konu og tvö börn.
Björgvin Þorkelsson var 51 árs og lætur eftir sig konu og sjö börn.
Sjópróf hófust í Hafnarfirði í dag.
Tíminn. 20 maí 1970.
Steinunn gamla KE 69 í upphaflegu útliti. (C) Snorri Snorrason.
Bát slítur
upp - annar sekkur
Skömmu eftir hádegi, sunnudaginn 23. sept. 1973, kom sunnan
úr hafi mjög djúp lægð, sem hélt siðan norður yfir landið. Um leið gerði hér
eitt mesta fárviðri, sem geysað hefur síðustu árin. Voru þetta eftirstöðvar
fellibylsins Ellenar, sem mikinn skaða gerði við strendur Ameríku. Stóð
veðurofsinn fram á mánudag, en lægði er leið á daginn. Í Reykjavík mældist
vindhraði 108 hnútar í mestu hryðjunum. Aðeins einu sinni hafði þá mælst jafn
mikill vindur í Reykjavík. Það var 1942, þá mældust 109 hnútar.
Til samanburðar má geta þess, að septemberveðrið mikla 1936, var aðeins
hálfdrættingur á við Þetta ofsaveður. Í verstu hryðjunum 1936, mældust í
Reykjavík, 65 hnútar. Sextíu og fjórir hnútar eru tólf vindstig. Í
septemberveðrinu 1936 fórst franska rannsóknarskipið Pourqui Pas? Veðrið 1973
olli tugum ef ekki hundruð milljóna króna tjóni, einkum á suður-, vestur- og
norðurlandi. Óveðursdagana var stórstreymt og því meiri hætta á ferðum. Sjómenn
voru því víðast við báta sína. Í Keflavíkurhöfn rak upp v.b. Snorra KE 131.
Hann var gamall átján lesta eikarbátur. Hann náðist fljótlega út og skemmdist
lítið. Í Sandgerði lágu þá átján bátar sem brotnuðu meira og minna. Aðeins sex
þeirra sluppu frá verulegum skemmdum. Steinunn gamla KE 69, lá þar í höfninni,
og sökk. Er hún náðist upp, var hún talin ónýt. Er veðrið skall á, var vindátt
í Sandgerði suðaustlæg en lítið skjól. Töldu þá sjómenn þar, að betur væri
kominn garðurinn í suðurhöfninni, sem til umræðu hafði verið í tiu til fimmtán
ár. En gerð garðsins, hófst rúmu ári eftir að óveður þetta geysaði.
Steinunn gamla KE 69, var 87 lestir, smíðuð úr eik í Svíþjóð 1946. Eigendur
hennar þá voru Ólafur E. Einarsson o.fl. í Keflavík. Báturinn gekk um árabil
frá Keflavík, ern síðustu árin frá Sandgerði. Var hann þá í eigu Miðness h.f.
Steinunn gamla var skrásett í Keflavik og er þess vegna getið hér í annálnum.
Sjóslysaannáll Keflavíkur.
Skúli Magnússon.
Faxi. 6 tbl. 1 september 1989.
20.05.2018 10:54
200. Stefán Ben NK 55. TFLX.
Stefán Ben NK 55 með fullfermi af síld við bryggju í Neskaupstað. (C) Gunnar Þorsteinsson.
Stefán Ben NK 55 við bryggju í Neskaupstað. (C) Gunnar Þorsteinsson.
Stefán Ben NK 55 við bryggju í Neskaupstað. Glófaxi NK 54 liggur utan á honum.
Úr safni Gunnars Þorsteinssonar.
Sæfaxi ll NK
123.
Garðar Lárusson, útgerðarmaður, hefur nú skipt um nafn á
Stefáni Ben. Heitir hann nú Sæfaxi II og ber einkennisstafina NK 123.
Austurland. 31 desember 1964
Sæfaxi ll NK 123 á sjómannadag í Neskaupstað. (C) Þórður M Þórðarson.
Nýr bátur
Stefán Ben NK 55
Eins og lesendum blaðsins er kunnugt, hafa þeir bræður
Ársæll og Þorsteinn Júlíussynir, átt bát í smíðum í Noregi. Í fyrravetur sökk
bátur þeirra, Langanes, við Vestmannaeyjar og réðust þeir þá í að láta smíða
þetta nýja skip, sem er nær þrisvar sinnum stærra. Stefán Ben er smíðaður eftir
sömu teikningu og v/s Guðrún Þorkelsdóttir á Eskifirði og að flestu leyti eins
búinn að tækjum. Var þeim báti nýlega lýst hér í blaðinu og gildir það, sem þar
var sagt einnig um Stefán Ben. Stefán Ben fékk slæmt veður fyrsta sólarhring
heimferðarinnar og reyndist hið ágætasta sjóskip. Að undanförnu hafa menn verið
að vakna til meðvitundar um að Norðfirðingar þyrftu að eignast báta af svipaðri
stærð og þessi er, til að afla fiskjar með heimalöndun fyrir augum. Stefán Ben
er fyrsta skipið, sem Norðfirðingar eignast af þessari stærð, og það er trú
mín, að síðar verði litið svo á, að með komu hans hafi verið mörkuð merk
tímamót í útgerðarsögu þessa bæjar. Og það er von allra, að fleiri bátar af
svipaðri stærð komi á eftir og þá frekar fyrr en síðar. Stefán Ben verður
gerður út með línu, á útilegu og síðan net héðan að heiman í vetur og á væntanlega
eftir að flytja mikla björg að landi. Atvinnuhorfur í vetur batna til mikilla
muna við komu þessa skips. Frá því Stefán Ben kom, hefur verið unnið af kappi
að því að búa hann á veiðar og mun hann fara í fyrstu veiðiferðina í dag.
Skipstjóri á bátnum er Einar G. Guðmundsson, stýrimaður Birgir Sigurðsson og 1.
vélstjóri Freysteinn Þórarinsson. Austurland óskar þeim bræðrum til hamingju
með bátinn og Norðfirðingum öllum til hamingju með þessa þýðingarmiklu viðbót
við flotann og þau merku tímamót sem koma Stefáns Ben táknar í útgerðarsögu
staðarins.
Austurland. 29 janúar 1960.
13.05.2018 09:27
2 m. Kt. Kiðey BA 11. LBVT / KBRN.
Kiðey BA 11. Þessi mynd er tekin árið 1932, sennilega á Íslandsmiðum. Skipið er komið í eigu Færeyinga þarna og heitir Thor VA 135. Það sést vel á myndinni að það er reytingsafli hjá þeim á færin. (C) Jákup Pauli í Eyðunarsstovu. www. vagaskip.dk
Skipverjarnir á Thor á handfæraveiðum. (C) Jákup Pauli í Eyðunnarsstovu. www.vagaskip.dk
Skutu niður
þýska Heinkel sprengjuvél
12 júní árið 1941 var kútter Thor VA 135 á heimleið frá
Aberdeen í Skotlandi og voru komnir norður fyrir Rattray Head, að skipverjar
urðu varir við þýska sprengjuflugvél af Heinkel lll gerð. Flaug vélin lágt yfir
Thor og hóf skothríð á skipið. Vélin gerði síðan aðra tilraun til að sökkva
skipinu, flaug í um fimmtán metra hæð yfir siglutoppunum. Þá greip
skipstjórinn, Georg Joensen til vélbyssu sem skipverjar höfðu til að verja sig
með og náði að skjóta Heinkel vélina niður og hvarf hún í hafið og sökk þegar. Enginn
mun hafa slasast í þessari skotárás, nema Georg skipstjóri sem fékk smá skeinu
af kúlubroti og var hún föst við jakkaermina hans
Georg skipstjóri var síðar heiðraður af bretum sem "Member of the British
Empire" og fékk afhenta fallega silfurmetalíu fyrir þetta afrek sitt.
Heimild: www.vagaskip.dk
Kútter Stag GY 732 frá Grimsby. (C) George Race
Íslands bezti þilskipafloti til sölu hjá Islandsk Handels & Fiskeri
Kompagni fást eftirfylgjandi skip keypt
Nafn
skips. Sigling. Register tons. Hvenær byggt. Byggingarefni. Verð.
Arney Kútter. 59 brl. 1872. Eik. 8.000.
Bjarney. Kútter. 43 brl. ? Eik. 6.000.
Drangey. Kútter. 53 brl. 1885. Eik. 8.500.
Engey. Kútter. 57 brl. 1871. Eik. 11.000.
Flatey. Skonnorta. 32
brl. 1875. Eik og fura. 5.000.
Grímsey. Kútter. 61 brl.
1885. Eik. 9.000.
Hvanney. Kútter. 50 brl. 1883. Eik. 8.000.
Jómsey. Kútter. 60 brl. 1884. Eik. 10.000.
Kiðey. Kútter. 78 brl. 1878. Eik. 12.000.
Langey. Kútter. 43 brl. 1873. Eik. 7.600.
Málmey. Kútter. 52 brl. 1881. Eik. 8.500.
Skipunum hefir verið vel við haldið frá því þau voru keypt og nú síðustu árin,
1903/05. hafa þau hvert af öðru fengið grandgæfa viðgerð (frá 400- 500 kr.
hvert skip) og þá allt tekið burt, sem nokkuð þótti athugavert við. hátt og
lágt, og nýtt sett í staðinn. Skipum þessum er því nú hægt að halda út í fleiri
ár, án nokkurs viðgerðarkostnaðar, og það mun ýkjulaust mega fullyrða að þau
sjeu í lang fremsta flokki af íslenzkum fiskiskipum, hvað gæði og allan útbúnað
snertir. Skipin ganga til fiskiveiða frá Patreksfirði og má þar sjá þau af og
til í sumar, en að loknum fiskiveiðum, í ágúst lok, fást þau til kaups, og
verða til sýnis á Patreksfirði og í Flatey, frá septemberbyrjun. Af því
fjelagið hefir í hyggju að hætta þilskipaútveginum, fást skipin með vægara
verði og betri skilmálum en nokkurs staðar annars staðar er hægt að fá jafngóð
og vel útbúin skip fyrir. Frekari upplýsingar hjá undirrituðum aðalerindreka
fjelagsins hjer á landi.
Patreksfirði, 1. maí 1905.
Pjetur A Ólafsson.
Vestri. 16 desember 1905.
12.05.2018 11:26
395. Eyjaberg VE 130. TFMD.
Eyjaberg VE
130
Fyrsti 95
lesta stálbáturinn smíðaður í
A-Þýzkalandi fyrir Íslendinga kominn
Kominn er til landsins fyrsti 95 lesta stálbáturinn af
allmörgum jafnstórum, sem smíðaðir eru fyrir íslendinga í Þýzka lýðveldinu.
Báturinn heitir Eyjaberg VE 130, eigandi Sigurður Þórðarson útgerðarmaður í
Vestmannaeyjum. Kom báturinn til heimahafnar sinnar s.l. fimmtudagskvöld og í
gærmorgun sigldi hann inn á Reykjavíkurhöfn. Fréttamaður Þjóðviljans fór um
borð í bátinn í gærmorgun, skömmu eftir að hann hafði lagzt að verbúðabryggju
við Grandagarð og hitti að máli skipstjórann Jón Guðjónsson, héðan úr bænum.
Við vorum 5 saman, sem fórum utan til að sækja Eyjaberg, sagði skipstjórinn;
vorum 4 sólarhringa og 20 klukkustundir frá Kaupmannahöfn til Vestmannaeyja.
Meðalhraði í heimferðinni var 10 sjómílur, en báturinn gekk 11 sjómílur í
reynsluferð. Hvernig reyndist báturinn á heimleiðinni? Prýðilega. Að vísu fengum við gott veður á
leiðinni og reyndi því ekki mjög á sjóhæfnina, en mér lízt mjög vel á bátinn,
segir skipstjórinn, öllu virðist haganlega fyrir komið og vistarverur skipverja
eru sérstaklega skemmtilegar. Sem fyrr segir er Eyjaberg VE 130 fyrsti 95 lesta
báturinn af allmörgum samskonar, sem smíðaðir eru úr stáli fyrir íslendinga í
Austur-Þýzkalandi. Fimm bátanna munu verða tilbúnir eða afhentir eigendum á
þessu ári og fara tveir þeirra til Vestmannaeyja, auk Eyjabergs, og tveir til
Ísafjarðar.
Bátarnir eru allir smíðaðir eftir teikningu Hjálmars Bárðarsonar
skipaskoðunarstjóra í skipasmíðastöðinni í Brandenburg í Þýzka lýðveldinu.
Aðalaflvél Eyjabergs er 400 hestafla Mannheim-vél, en hjálparvélin er 25
hestafla.
Þjóðviljinn. 2 desember 1959.
Eyjaberg VE 130. Líkan. (C) Hjálmar R Bárðarson.
Eyjaberg VE 130. Líkan. (C) Hjálmar R Bárðarson.
Fyrirkomulagsteikning skipa smíðuðum í Brandenburg. (C) Hjálmar R Bárðarson.
Eyjaberg VE 130 á strandstað á Faxaskeri í mars 1966. (C) Sigurgeir Jónasson.
Eyjaberg VE
strandaði á Faxaskeri
Skipshöfnin komst yfir í Lóðsinn
Í gærkvöldi strandaði Vestmannaeyjabáturinn Eyjaberg VE 130
á vestanverðu Faxaskeri, sem er rétt norðan við Heimaey. 7 menn voru á bátnum
og komust þeir á gúmmíbát yfir í Lóðsinn. Eyjaberg var heilt á strandstað er
skipverjar yfirgáfu það, en búizt við að það mundi höggva sig niður í nótt og
eyðileggjast. Þetta gerðist kl. 19.40, er Eyjaberg var að koma úr róðri með 12
tonn af fiski eftir daginn. Fór Eyjabergið venjulega siglingaleið inn milli
Heimaeyjar og skersins eða um Faxasund, ásamt fleiri bátum. Dimmt var yfir og
slydduhríð. Tilkynntu skipverjar hvernig komið var og fór Lóðsinn út til
þeirra. Komust þeir í gúmmíbát sínum yfir í Lóðsinn, allir heilir, enda ágætt
sjóveður. Skipstjóri á Eyjabergi er Sigurður Guðmundsson. En eigandi hans er
Sigurður Þórðarson útgerðarmaður. Fréttaritari blaðsins náði snöggvast tali af
skipstjóranum, er hann var kominn heim til sín. Hann vildi lítið um þetta segja
umfram það sem vitað var.
Sagði að þeir hefðu verið að koma úr róðri vestan við Eyjar og farið venjulega
siglingaleið. Hafi þeir séð að þeir mundu vera full nærri Faxaskerinu og ætluðu
að beygja frá áður en þeir komu að því, en þá hafi stýrisútbúnaður ekki virkað.
Báturinn var á fullri ferð og var strandi því ekki afstýrt. Skipstjórinn sagði
að gott hefði verið í sjóinn og fóru skipverjar í gúmmíbátinn, eftir að þeir
höfðu gert aðvart. En þar sem myrkur og slydduhríð og viðbúið að báturinn mundi
höggva sig niður, þá þótti ekki ráðlegt að þeir væru þar um kyrrt. Höfðu þeir
taug í gúmmíbátnum, sem föst var í Eyjaberginu og slepptu henni ekki fyrr en
þeir höfðu náð Lóðsinum. En þangað létu þeir sogið bera sig og réru sjálfir.
Varð þeim ekki meint af, enda steinsnar inn til Vestmannaeyjarkaupstaðar. Faxasker er lágt sker, og enginn gróður á því. En þar
er skipbrotsmannaskýli.
Eyjaberg er stálbátur, 94 lestir að stærð, byggður í Austur- Þýzkalandi árið
1959.
Morgunblaðið. 8 mars 1966.
10.05.2018 14:21
460. Morgunstjarnan GK 532. TFUM.
"Morgunstjarnan"
G . K. 532
Laust fyrir miðjan júlí var nýjum bát hleypt af stokkunum í
skipasmíðastöð Júlíusar Nýborg í Hafnarfirði. Bátur þessi heitir
"Morgunstjarnan" og hefur einkennisstafina G. K. 532. Hann er 43 rúmlestir
að stærð, smíðaður úr eik og hefur 171 ha. Buda-Lanova dieselvél. Alls eru í
bátnum 16 hvílur; 9 hvílur í hásetaklefa, 6 í káetu og 1 í skipstjóraklefa.
Allar vistarverur eru fóðraðar innan með lakksmurðum krossvið, vatnsþéttum. Er
þetta fyrsti báturinn, sem þannig er gengið frá. Byrjað var á smíði þessa báts síðastliðið
haust, en skriður komst ekki á verkið fyrr en í byrjun þessa árs. Júlíus Nyborg
teiknaði bátinn og sá um smíði hans. Járnsmíði og niðursetningu vélar annaðist
Vélsmiðja Hafnarfjarðar h/f. Raflagnir annaðist h. f. Ekko í Hafnarfirði, en
Guðmundur Hróbjartsson kom fyrir miðstöðvarlögnum. Sören Valentínusson í
Keflavík bjó til segl og reiða. Togvinda er í bátnum og smíðaði hana Vélsmiðjan
Keilir í Reykjavík. Auk þess unnu Blikksmiðjan Dvergasteinn h/f í Hafnarfirði
og Hannes Sigurjónsson húsgagnabólstrari við smíði bátsins.
Eigandi "Morgunstjörnunnar" er nýstofnað hlutafélag í Hafnarfirði, sem
heitir "Hafstjarnan h. f." Framkvæmdastjóri þess er Magnús Guðjónsson í
Hafnarfirði, en hann átti fyrr vélbátinn Njál. Skipstjóri á Morgunstjörnunni er
Guðvarður Vilmundsson úr Hafnarfirði. Báturinn hefur verið á síldveiðum í
sumar.
Ægir. 8 tbl. 1 ágúst 1944.
08.05.2018 17:35
2770. Brimnes RE 27 selt til Rússlands.
Brimnes RE
27 selt og 40 manna áhöfn sagt upp
Útgerðarfélagið
Brim hefur selt frystitogarann Brimnes RE eða öllu heldur samþykkt kauptilboð í
skipið, segir Guðmundur Kristjánsson forstjóri Brims. Tveimur áhöfnum skipsins
var sagt upp í morgun með þriggja mánaða uppsagnarfresti.
Í áhöfnunum eru 40 manns. Guðmundur segir að reynt verði að útvega þeim áfram
vinnu hjá Brimi. Kaupandi togarans er rússneskur. Kvótinn verður áfram hjá
Brimi. Guðmundur segir ástæðuna fyrir sölunni vera þá að kauptilboðið hafi
verið gott. Örfáar vikur eru síðan Brim hf. keypti um þriðjungshlut í HB Granda
hf. og hefur Guðmundur tekið sæti í stjórn HB Granda. Frystitogarinn Brimnes
hefur verið með aflahæstu skipum flotans og var aflahæst 2016. Guðmundur segir
að frystitogurum hafi verið að fækka mikið, nú sé orðið miklu hagkvæmara að
vera með landvinnslu en í frystitogurunum.
Rúv.is 8
maí 2018.
08.05.2018 09:37
2861. Breki VE 61. TFMA.
Breki VE
kominn til Eyja
Fjölmenni tók í dag á móti Breka VE, nýju skipi
Vinnslustöðvarinnar, sem komið er til heimahafnar eftir fimmtíu daga
siglingu frá Kína. Lagt var frá bryggju í borginni Shidaho í Kína 22. mars
en þaðan og til Íslands eru 11.300 mílur.
Heimsiglingin gekk að óskum en systurskipin Breki og Páll Pálsson, sem
Hraðfrystihúsið Gunnvör fékk, voru í samfloti á leiðinni. Það var í júní
2014 sem Vinnslustöðin hf. í Vestmannaeyjum og Hraðfrystihúsið-Gunnvör
í Hnífsdal sömdu um smíði skipanna og var miðað við að þau kæmu til
landsins á miðju ári 2016. Miklar tafir urðu hins vegar á afhendingunni.
Togararnir eru hannaðir af verkfræðistofunni Skipasýn og eru 50 metra
langir og 13 metra breiðir.
Magnús Ríkarðsson er skipstjóri á Breka og skipstjóri á nýjum Páli Pálssyni
er Páll Halldórsson. Átta manns voru í áhöfn Breka á heimleiðinni og sjö
manns í áhöfn Páls Pálssonar. Kaupverð hvors skips var um 1,2 milljarðar
króna.
Mbl.is 6 maí 2018.
Systurskipin
Breki og Páll Pálsson lögð af stað heimleiðis
Systurskipin Breki VE og Páll
Pálsson ÍS eru loks lögð af stað heimleiðis frá Kína, þar sem þau voru smíðuð.
Afhending þeirra hefur tafist svo mánuðum skiptir og er búist við að
heimsiglingin taki allt að sex vikur. Áhafnirnar hafa búið sig undir mikinn hita
á hluta heimleiðarinnar og var settur sérstakur kælibúnaður í brú, vistarverur
og vélarrúm skipanna svo að þar verði líft.
Þá eiga skipin eftir að sigla um tvö svæði þar
sem sjórán eru tíð, en að líkindum munu þau þá slást í för með örðum skipum og
njóta verndar. Snemma í morgun voru skipin um 150 sjómílur norð- norðvestur af
Shanghai.
Vísir.is 23 mars 2018.
06.05.2018 11:28
Síldveiðar og vinnsla á Norðfirði.
Síldargengd
Þokan grúfði yfir fjarðarbotninum, þegar horft var ofan af
Oddskarði. Þegar niður kom, blandaðist hún reyknum úr verksmiðjunni. Fyrstu
húsin komu í ljós eins og vörður við veginn. Byggðin fór að þéttast og
síldaranganin magnaðist og nú var blaðamaður Vísis kominn í velferðarríkið
Neskaupstað sem í kyrrð sinni bar keim af mokafla af síld og sleltulausri vinnu
dag og nótt vikum saman undanfarið. Á söltunarstöðinni Ás var unnið langt fram
eftir nóttu. Síldardömurnar virðast hafa vakað langtímum saman, en kappið var
óskert. Þráinn NK rennir upp að bryggju með góðan afla. Freyfaxi KE frá
Keflavík er nýbyrjaður á síldveiðum. Um morguninn hafði verið saltað úr honum,
og voru þeir á leið út aftur. Síldin er uppi í landssteinum aðeins 4 til 5
tímar á miðin SSA af Gerpi. Þarna er allur flotinn að veiðum sennilega um 200
skip, fá ekkert smáræði í einu kasti, 3.000 mál, jafnvel barst orðrómur um, að
eitt þeirra hefði fengið 4.000 mál. Um morguninn hafði verið saltað, en nú var
lát á vegna þess að verið var að landa síld í flutningaskipið "Stavnes".
Um kvöldið hófst löndun úr tveimur skipum við planið Ás, Barða NK með 1.200 mál
og Bjarti NK með 1.800 mál, sem hvort tveggja eru aflaskip (með um og yfir 30
þúsund mál). Ekki var vinnuaflið mikið á þessu plani, en alvarlegur hörgull á
fólki til síldarvinnu er þarna fyrir austan á aflatíðinni.
Fólkið á plönunum var orðið þreytt af vökum og striti. Komið hefur fyrir, að
það hefur unnið 40 stundir í strikklotu, án þess að festa blund. Tunnurnar hlaðast
upp jafnt og þétt, og síldin berst að landi á Norðfirði eins og á færibandi,
demantssíld, millisíld, blönduð síld, síld, sem breytist í peninga, ósvikinn
gjaldeyri. Sárafá skip voru inni í gær og í fyrradag á Norðfirði þrátt fyrir
uppgripsveiðina. Þrærnar voru fullar, þar sem annars staðar á austfirzku
síldarstöðvunum. Á Rauða torginu, en svo kallast miðin, kennd við rússneska "vininn"
er alltaf krökt af skipum, sem biða eftir kvöldinu, en þá taka þau síldina á um
20- 25 faðma dýpi, og það gengur ævintýri næst, hvað aflast mikið í hvert sinn.
Glöggir menn fyrir austan eru farnir að spá því, að þessi aflahrota haldist
lengi, jafnvel fram yfir nýár.
Vísir. 7 október 1965.
05.05.2018 11:34
Fram GK 328. TFJO.
Fram G. K.
328
Í ágústmánuði 1945 samdi Eggert Kristjánsson stórkaupmaður
við Fredrikssund Skibsværft, en hann er umboðsmaður þeirrar skipasmíðastöðvar
hér á landi, um smíði á alls 15 bátum, 35-60 rúmlestir. Verð bátanna er um 5000
kr. pr. rúmlest, ásamt aðalaflvél. Bátar þessir eru flestir væntanlegir hingað
til lands á þessu ári. Af þeim fara 3 eða 4 til Hafnarfjarðar, en hinir til
Húsavíkur, Patreksfjarðar, Sandgerðis og Akraness. Fyrsti báturinn, sem heitir
Fram og hefur einkennisstafina G. K. 328, kom til Hafnarfjarðar 1. apríl. Hann
er 60 rúmlestir að stærð og hefur 200 hestafla Tuxham-dieselvél. Annars verða
sumir bátarnir af þessari stærð með 240 hestafla vél.
Eigandi Fram er Hlutafélagið Stefnir í Hafnarfirði, en framkvæmdarstjóri þess
er Guðmundur Guðmundsson. Bátur þessi er smíðaður með styrk frá Bæjarútgerð
Hafnarfjarðar. Félag þetta hefur samið um kaup á tveimur slíkum bátum til
viðbótar frá Fredrikssund og verður Bæjarútgerð Hafnarfjarðar einnig hluthafi í
þeim.
Ægir. 4 tbl. 1 apríl 1946.
Fram GK 328 á siglingu. Mynd úr Íslensk skip.
Fram GK 328 á strandstað á Hópsnesi við Grindavík. (C) Sigurjón Vigfússon.
Fram GK 328 á strandstað. (C) Sigurjón Vigfússon.
Vb.
Fram strandaði við Grindavík í gærkvöldi
Björguðust
til lands á gúmbáti
Laust eftir kl. 9 í gærkvöldi strandaði vélbáturinn Fram frá
Hafnarfirði í brimi og stormi, rétt við innsiglinguna til Grindavikur. Á honum
var 11 manna áhöfn, og björguðust allir mennirnir í land í gúmmíbáti. Munu
flestir skipbrotsmannanna hafa komið til Hafnarfjarðar laust eftir miðnætti í
gærkvöldi. Í gærkvöldi var með öllu óvíst um örlög Fram, en mikið brim var þá í
Grindavík. Báturinn var á leið inn til Grindavíkur þegar þetta gerðist. Í það
grynnsta var að fara inn ósinn fyrir svo djúpristan bát sem Fram, en hann er 65
lestir að stærð, og brim var mikið, sem fyrr segir, og braut yfir leiðina inn.
Var hann kominn inn undir ytri bryggjuna í Grindavík, er hann tók niðri í
hælinn, en við það hrökk stýrið upp af standinum. Skipstjóranum, Jóhanni
Frímanni, tókst þó að ná bátnum út úr ósnum aftur. Fór nú vélbáturinn
Arnfirðingur, sem lá í Grindavíkurhöfn, út til þess að aðstoða Fram og tókst að
koma yfir í hann dráttartaug. En þegar Arnfirðingur ætlaði að fara að draga
Fram af stað, vildi svo óheppilega til, að festingin á tauginni bilaði,
einhverra orsaka vegna. Skipti það nú engum togum, að Fram rak upp á flúðir,
sem eru inn af Djúpsundinu, en svo nefnist aðalinnsiglingarleiðin til
Grindavíkur; sat báturinn þar fastur og braut á honum.
Mbl. átti í gærkvöldi tal við Sigurð Þorleifsson, símstöðvarstjóra í Grindavík,
sem er jafnframt formaður slysavarnadeildarinnar þar. Skýrði hann svo frá, að
björgun áhafnarinnar af Fram hefði gengið ágætlega, en reyndar komust mennirnir
til lands af eigin rammleik, eins og fyrr er getið. Fyrst fóru 8 menn af áhöfninni í gúmmíbátinn,
en þeir þrír, sem eftir voru, héldu í kaðal, sem festur var í hann, og gáfu
síðan eftir, unz félagar þeirra höfðu náð landi. Þá drógu þeir þremenningarnir
bátinn aftur til sín og lögðu síðan í honum til lands. Gekk það að óskum.
Lágsjávað var í gærkvöldi, er þessir atburðir gerðust, en mjög óttuðust
Grindvíkingar, að á næturflóðinu mundi brimið berja mjög á bátnum og ef til
vill brjóta hann. Skipstjórinn á Fram, er eins og fyrr segir Jóhann Frímann, en
framkvæmdastjóri útgerðarfélagsins er Guðmundur Guðmundsson. Þess má geta hér,
að um fyrri helgi var Fram nokkuð hætt kominn, er hann fékk net í skrúfuna,
þegar hann var að leggja út af Hafnarnesi. Var hann kominn mjög nærri landi, er
vélbáturinn Viktoría frá Þorlákshöfn kom honum til hjálpar.
Morgunblaðið. 24 mars 1959.
- 1
- 2