Blogghistorik: 2017 Visa kommentarer
31.07.2017 10:39
Huginn l ÍS 91. TFBK.
Huginn l ÍS
91
Huginn fyrsti. Svo heitir til bráðabirgða fyrsti bátur
útgerðarfélagsins Huginn hér í bænum. Er hann nú kominn til landsins og er
væntanlegur hingað í dag. Hefir hann þá verið viku á leiðinni frá Nyborg á
Fjóni, þar sem hann var byggður, Báturinn er 60 smálestir að stærð og hefir 130
- 160 hestafla vél. Skipstjóri er Ragnar Jóhannsson. Á hann að vera fullbúinn á
síldveiðar, þegar hann kemur, og mun leggja upp á Sólbakka, ef síldveiði helzt
hér vesturfrá. Annar bátur félagsins mun koma hingað í byrjun ágúst, og er hann
byggður í Korsör á Sjálandi.
Skutull. 27 júlí 1934.
Hekla og
Geysir sækja sjómenn
Báðar millilandaflugvjelar Loftleiða, Hekla og Geysir, fara
hjeðan vestur um haf árdegis í dag. Ferðinni er heitið til Nýfundnalands, en
þar bíða flugvjelanna rúmlega 50 sjómenn. Sjómenn þessir sigldu þangað fjórum
bátum Björgvins Bjarnasonar útgerðarmanns á Ísafirði, en þeir verða gerðir út
frá Nýfundnalandi í vetur og munu áhafnir þeirra vera þarlendir menn. Geysir
fer ekki lengra en til Gandarflugvallar á Nýfundnalandi og tekur þar um 40
farþega, en Hekla tekur þá sem eftir verða, er hún kemur til baka úr
áætlunarflugi til New York. Flugvjelarnar eru báðar væntanlegar úr þessari ferð
á laugardaginn.
Morgunblaðið. 20 október 1949.
30.07.2017 13:08
S. t. Northern Reward LO 168.
Nýr togari
kemur á morgun
Fyrir hádegi á morgun bætist eitt skip við í togaraflotann
íslenska. Togarinn Vörður, eign h.f. Vörður á Patreksfirði er þá væntanlegur
hingað til Reykjavíkur. Vörður er systurskip Gylfa, en þau eru bæði af
svonefndri "Sunligthgerð" Gísli Bjarnason skipstjóri flytur skipið hingað
heim. En frá Grimsby var lagt af stað s. l. laugardagsmorgun. H.f. Vörður hefir selt gamla Vörð til
Færeyja.
Morgunblaðið. 11 mars 1947.
Togarinn
Vörður ferst í hafi
Fimm menn
fórust, en 14 var bjargað
Enn hefur skarð verið höggvið í íslenska sjómannastjett.
Togarinn Vörður frá Patreksfirði fórst á sunnudagskvöld í hafi og með honum
fimm menn af 19 manna áhöfn. Með þessu slysi hafa fimm heimili, fjögur á
Patreksfirði og eitt í Tálknafirði, misst fyrirvinnu sína. Menn þessir láta
eftir sig 15 börn, þar af munu 13 barnanna ekki hafa náð 16 ára aldri.
Skipstjórinn á Verði, Gísli Bjarnason, meiddist er slys þetta bar að. Leið
honum eftir atvikum vel í gærkvöldi svo og öðrum skipsmönnum, en þeir voru væntanlegir
til Akraness árdegis í dag með togaranum Bjarna Ólafssyni, er bjargaði
Varðarmönnum, þeim er af komust.
Fjórir skipverjanna, sem fórust, voru búsettir á Patreksfirði, þeir:
Jens Viborg Jensson fyrsti vjelstjóri. Hann lætur eftir sig konu og tvær
uppkomnar dætur og sex ára fósturson. Hann var 41 árs.
Jóhann Jónsson annar vjelstjóri, 48. ára að aldri. Lætur hann eftir sig konu og
sjö börn. Þrjú þeirra eru innan fermingaraldurs. Hann átti aldraðan föður á
lífi, og er hann búsettur hjer í Reykjavík.
Guðjón Ólafsson annar stýrimaður. Hann lætur eftir sig konu og tvö börn og
aldraðan föður átti hann á lífi. Guðjón var 43 ára.
Halldór Guðfinnur Árnason, kyndari, 33 ára. Hann lætur eftir sig konu og þrjú
börn. Foreldrar hans eru báðir á lífi og búa á Ísafirði.
Ólafur Kristinn Jóhannesson háseti frá Hvammeyri í Tálknafirði. Hann var
yngstur þeirra er fórust, 32 ára. Hann var nýkvæntur og lætur eftir sig auk
konu sinnar, fósturföður og foreldra.
Frjettin um tildrög þessa hörmulega sjóslyss, voru mjög óljósar í gærkvöldi, en
vitað er að Vörður var staddur um 165 sjómílur suðaustur af Vestmannaeyjum er
hann sökk. Var togarinn á leið til Bretlands með fullfermi. Slæmt veður var er
Vörður sökk og illt í sjó, en togarinn mun hafa sokkið um klukkan sjö. Án þess
að geta nokkuð fullyrt um tildrög slyssins, eins og fyrr segir, þá er margt
talið benda til þess að það hafi borið að nokkuð skyndilega, því mennirnir 14,
er Bjarni Ólafsson bjargaði, voru sagðir hafa verið klæðlitlir er þeim var
bjargað.
Bjarni Ólafsson var á leið heim frá Bretlandi og var nærstaddur er slysið varð,
en um björgunarstarfið, sem annað í sambandi við sjóslysið, var ekkert vitað í
gærkvöldi. Bjarni Ólafsson hjelt sig á slysstaðnum nokkrar klukkustundir eftir
að slysið varð í þeirri von að finna lík þeirra, sem fórust. Fann hann þó
aðeins eitt þeirra, og mun það hafa verið lík Jóhanns Jónssonar. Í gærkvöldi um
kl. 10,30 var Bjarni Ólafsson staddur skammt sunnan Reykjaness og var þar hið
versta veður. Þá átti forstjóri útgerðar hans, tal við Jónmund Gíslason,
skipstjóra á Bjarna Ólafssyni. Sagðist Jónmundur ekki geta rætt málið við
forstjórann um talstöðvar samband, enda mjög slæm skilyrði. En Jónmundur
skipstjóri lagði á það áherslu að skipsmönnunum af Verði liði vel og Gísla
Bjarnasyni skipstjóra, sæmilega eftir atvikum.
Togarinn Vörður BA 142, var þýskbyggður af svonefndri Sunlightgerð. Hann var
smíðaður í Bremerhaven 1936, 620 rúmlestir. Hann var rúmlega 57 m. á lengd og
tæplega 9 m. á breidd. - Vörður var með stærstu togurum flotans og kom hingað
til lands árið 1947. Eigandi Varðar var samnefnt fjelag, er Garðar Jóhannesson
veitir forstöðu.
Morgunblaðið. 31 janúar 1950.
Sáputogararnir
seldir.
Svo sem kunnugt er, voru að styrjöldinni Iokinni keyptir
hingað til lands frá Englandi þrír þýzkbyggðir togarar, af svokallaðri
"Sunlight" gerð. Tveir þessara togara voru keyptir til Patreksfjarðar, en
H/f Alliance keypti þann þriðja. Annar Patreksfjarðartogarinn, Vörður, fórst í
hafi í vetur, en hinn, Gylfi, hefur nú verið seldur til Þýzkalands og einnig
Kári, togari sá, er Alliance átti.
Ægir. 1 mars 1950.
27.07.2017 17:54
774. Sleipnir SU 382.
23.07.2017 21:10
69. Gullfaxi NK 6. TFCH.
Nýr Gullfaxi
Á annan páskadag kom hingað til bæjarins nýsmíðað fiskiskip,
Gullfaxi NK 6. Þetta er mikið skip, 180 tonn að stærð, smíðað úr eik í Djupvik
í Svíþjóð eftir teikningu Egils Þorfinnssonar. Eigandi Gullfaxa er samnefnt
hlutafélag, en aðalhluthafar eru Ármann Eiríksson og Þorleifur Jónasson, sem
sigldi skipinu til landsins og verður skipstjóri á því. Ólafur Eiríksson er
fyrsti vélstjóri. Aflvél skipsins er 585 ha. Deutz. Skipið er mjög vel búið að
öllu leyti og sýnilega ekkert til sparað að gera það sem bezt úr garði bæði
hvað snertir aðbúð áhafnar, öryggisútbúnað og hverskonar tækni útbúnað til
veiða og siglinga. Gullfaxi er næststærsta skip, sem nú er í eigu Norðfirðinga.
Sýnilegt er, að hann ber mjög mikið, t. d. af síld. Skipið er tilbúið til
síldveiða og mun í ráði, að það fari þegar á síld.
Austurland. 27 apríl 1962.
Þorlákshafnarbátur
gjöreyðilagðist í eldi
Engin slys á
mönnum
Vélskipið Ingvar Einarsson ÁR 14 stórskemmdist af eldi í
gær, en engin slys urðu þó á mönnum. Skipið var statt út af Vík í Mýrdal, er
eldurinn kom upp og fékk áhöfnin, 12 manns, við ekkert ráðið. Vélskipið Arnar
kom á vettvang og dró hið brennandi skip inn á Dyrhólaós, þar sem því var rennt
upp í fjöru. Þar slökkti Slysavarnadeildin Víkverji í skipinu, en kjarni
deildarinnar er jafnframt kjarni slökkviliðsins í Vík. Er jafnvel talið, að
Ingvar Einarsson sé gjörónýtur. Samkvæmt upplýsingum Hannesar Hafstein,
framkvæmdastjóra Slysavarnafélags Íslands, gerði Vestmannaeyjaradíó félaginu
viðvart um neyð skipsins. Var hið brennandi skip þá statt nokkuð djúpt úti af
Vík í Mýrdal, nánar tiltekið 12 sjómílur frá Reynisfjalli og 11 sjómílur frá Hjörleifshöfða.
Var þá mikill eldur um borð. Jafnframt var vitað að Arnar ÁR 55, en bæði þessi
skip eru gerð út frá Þorlákshöfn, var farinn áleiðis til Ingvars Einarssonar.
Eldurinn kom upp aftantil í skipinu og var hvað magnaðastur í vélarrúmi og
stýrishúsi.
Áhöfnin gat ekki hafzt þar við og urðu mennirnir að halda til
frammi í skipinu, þar sem þeir höfðu neyðartalstöð. Gátu þeir ekki við neitt
ráðið. Um klukkan 12,30 kom Arnar að Ingvari Einarssyni og fór þá áhöfn Ingvars
yfir í Arnar og hafði þá jafnframt verið komið fyrir dráttartaug milli
skipanna. Hélt Arnar svo af stað með bátinn til lands. Slysavarnafélagið lét
björgunarsveit sína, Víkverja í Vík, vita af þessu og var sveitin tilbúin á
ströndinni, ef á þyrfti að halda.
Þegar Arnar kom síðan upp undir land með
bátinn þá var sýnt, að ekki var unnt að koma línu milli lands og báts vegna
brims við ströndina. Var því ákveðið að fara með brennandi bátinn vestur fyrir
Reynisfjall og reyna við Dyrhólaósinn. Þangað var komið klukkan liðlega 14 í
gær, en þar voru þá komnir björgunarsveitarmenn úr Víkverja, sem jafnframt eru
í slökkviliðinu í Vík, með slökkvibíl, veghefil og bíl með drifi á öllum
hjólum. Var línu skotið út í bátinn og hann síðan dreginn upp í sandinn.
Komust
björgunarsveitarmenn um borð og slökktu eldinn. Klukkan 16 tilkynntu þeir
lóranstöðinni að eldurinn hefði verið slökktur. Strax og fréttist um eldsvoðann
sást frá Reynisfjalli til bátsins og var þá mikill eldur í bátnum og risu
miklar eldtungur frá honum, aðallega frá skut og miðskips. Þess má og geta að
Lóðsinn í Vestmannaeyjum lagði af stað með dælur strax og fréttist um
eldsvoðann, en hann náði ekki í tæka tíð. Vélbáturinn Ingvar Einarsson var
eikarbátur, smiðaður í Sviþjóð 1962, 140 brúttórúmlestir að stærð og hét áður
Gullfaxi VE 102 frá Vestmannaeyjum. Var báturinn í fyrsta flokks standi og hið
bezta skip, er eldurinn kom upp. Er hann nú gjörónýtur. Þá ber þess að geta, að
síðdegis í gær kom aftur upp eldur í bátnum, þar sem hann lá í Dyrhólaósi, en
fljótiega var slökkt í honum aftur. Arnar var í gærkvöldi væntanlegur með áhöfn
Ingvars Einarssonar til Þorlákshafnar.
Morgunblaðið. 12 desember 1974.
23.07.2017 09:30
488. Guðrún ÍS 97.
Tvö nýbyggð
skip hjá Marselíusi
Nýlega eru hlaupin af stokkunum í skipasmíðastöð Marselíusar
Bernharðssonar, tvö skip, Sigurgeir, 62 smálestir, og Guðrún, 10 smálestir.
Sigurgeir er Phönix gamli "aukin og endurbætt útgáfa", og er skipið eign
Ólafs Guðmundssonar í Keflavík. Guðrúnu á Vísir í Súðavík. Þá er fullsmíðuð ný
Dís fyrir Njörð, og heitir hún Jódís. Á að fara að setja í hana vélina. Þá er
Marselíus að smíða tvo 16 smálesta báta og í þann veginn að hefja smíði á 45
smálesta skipi. Hefir hann dregið að sér geysimikið af efni í skip, svo að ekki
mun hann skorta það fyrst um sinn.
Skutull. 18 september 1942.
Nauðstöddu
skipi komið til hjálpar
Í hádegisútvarpi í gær sendi Slysavarnafélagið tilkynningu
til skipa er væru nærri Horni um að vélskipið Guðrún ÍS 97 frá Súðuvík væri
hjálparþurfi 4 sjómílur norðaustur af Horni. Guðrún hefur talstöð og gerði
loftskeytastöðinni á Ísafirði aðvart, en þá var enginn bátur í landi, sem gat
farið út henni til hjálpar. En skip sem var að koma norðan frá Eyjafirði, nafn
þess vissi skrifstofa Slysavarnafélagsins ekki, heyrði útvarpstilkynninguna,
kom Guðrúnu til aðstoðar og dró hana til Ísafjarðar.
Þjóðviljinn. 22 ágúst 1947.
22.07.2017 11:18
538. Hagbarður TH 1. TFVO.
M.b.
Hagbarður TH 1
M.b. Hagbarður, er
Slippfélagið í Reykjavík hefur smíðað fyrir Húsavíkurkaupstað, og var báturinn
fullgerður fyrir yfirstandandi síldarvertíð. Það er ekki nein nýlunda lengur að
sjá ný og glæsileg fiskiskip bætast við skipastólinn, og því hætta á að hverjum
nýjum bát sé ekki nægilega mikill gaumur gefinn, en þessum nýja bát frá
Slippfélaginu er vert að veita athygli, því hann mun vera eitt vandaðasta skip
sinnar tegundar, sem smíðað hefur verið hér á landi, hvað allan útbúnað og
frágang snertir. Vistarverurnar í bátnum eru allar þiljaðar með póleruðu birki
og mahogany. Niðurgangur í hásetaklefann er afþiljaður og er þar skápur fyrir
hlífðarföt. Í hásetaklefanum eru rúmgóðar hvílur fyrir átta menn. Til þæginda
er innbyggður klæðaskápur og þvottaskál með rennandi vatni.
Úr hásetaklefanum
er innangengt í afþiljað eldhús með olíukynntri eldavél. Eldhúsið er vel útbúið
með skápum. Báturinn er 47 brúttósmálestir að stærð með 160 ha. Lister diesel
vél. Þá er báturinn búinn sérstrakri Ijósavél, talstöð, dýptarmæli og
vökvastýrisútbúnaði. Lyftingin á bátnum er straumlínulöguð og er herbergi
skipstjóra þar aftan við stjórnklefann. En þar undir og aftan við vélarúmið er
herbergi fyrir 6 menn, hvorutveggja hið vandaðasta. Báturinn er smíðaður úr
valdri eik og mjög rammbyggður, enda ekkert til hans sparað.
Skuturinn fyrir
ofan þilfar er úr stáli og er það nýlunda og gerir auðveldara að koma við
viðgerðum ef afturendi bátsins verður fyrir hnjaski eins og oft vill verða, en
það hefur viljað verða dýrt spaug á bátum þar sem böndin ganga langt niður í
skip, fyrir utan hvað slíkt er oft orsök til leka sem erfitt er að ráða við og
oft verður ekki vart við fyrr en seint og síðar meir þegar allt er orðið fúið.
Járnfestingar í bátnum eru úr galvaniseruðu járni eða stáli, og borðin í
vistarverunum eru brydduð með ryðfríum stálgjörðum, og annað er eftir því.
Sérstaka athygli hefur vakið, hvað segla og reiðaútbúnaður bátsins er vandaður
og vel frá honum gengið, og hefur Óskar Ólafsson hjá Slippfélaginu annast
uppsetningu á því. Þá er allt fyrirkomulag í bátnum til mestu fyrirmyndar og
til mikils sóma fyrir Slippfélagið og þá sérstaklega yfirsmiðinn þar, Peter
Wigelund, sem teiknað hefur bátinn og séð um smíðina á honum.
Sjómannablaðið Víkingur. 9 tbl. 1 september 1946.
Hagbarður SF
15 snarfyllti og sökk
Hagbarður SF 15 sökk um 15 sjómílur vestur af Ingólfshöfða
um kl. 23 á sunnudagskvöld eftir að báturinn hafði rekizt á eitthvað í sjónum
með þeim afleiðingum að óstöðvandi leki kom að skipinu. Mannbjörg varð.
Hagbarður, sem var 45 tonn að stærð, smíðaður 1946, var á vesturleið, þegar
slysið varð. Fjórir menn voru á bátnum og voru tveir þeirra sofandi frammi í
lúkar þegar óhappið varð, en hinir voru á vakt. 1 vélstjóri var sofandi í
lúkarnum, en hann vaknaði við áreksturinn og fór samstundis aftur í vélarrúm.
Þá þegar var vélin farin að ausa yfir sig sjó og sýnt var, að dælurnar mundu
ekki hafa undan. Var þá strax sent út neyðarkall og svöruðu Fylkir NK og
Hornafjarðarradíó strax. Fylkir var með trollið úti að toga, en sleppti þegar
úr pokanum og hífði trollið inn til þess að geta haldið á slysstaðinn.
Skipverjar á Hagbarði losuðu annan gúmmíbátinn og fóru um borð í hann.
Tóku
þeir með sér skipsskjölin og handtöskur ásamt neyðartalstöð, en aðeins liðu
nokkrar mínútur frá því áreksturinn varð og þar til mennirnir voru komnir í
björgunarbátinn, og nokkrum mínútum síðar sáu þeir Hagbarð sökkva í djúpið.
Fylkir náði að miða björgunarbátinn út og eftir tvær klukkustundir fann hann
bátinn, en þokusúld var á. Skipverjar voru þá nokkuð blautir og kaldir, en
Fylkir kom með þá hingað til Hafnar í Hornafirði, snemma í morgun og voru
sjópróf í dag. Ekki er vitað á hvað Hagbarður rakst, en mögulegt er að það hafi
annaðhvort verið rekadrumbur eða hvalur.
Morgunblaðið. 15 október 1974.
22.07.2017 10:06
Huginn SU 448.
20.07.2017 18:15
Kveldúlfur ÍS 397.
Báta vantar
Í fyrrakvöld vantaði þrjá vjelbáta úr róðri, einn af Sandi,
annan úr Ólafsvík og hinn þriðja af Akranesi. Bátarnir frá Ólafsvík og Sandi
komu fram í gærmorgun, en Akranesbáturinn ekki. Hann heitir "Kveldúlfur".
Sást það seinast til hans í fyrrakvöld úti á miðum, að hann var að draga
línuna, en hún slitnaði, og fór báturinn þá að leita að hinni uppistöðunni. Í
gærdag fékk Slysavarnafjelagið togarann ,Kóp' til þess að leita að bátnum.
Ennfremur er saknað vjelbáts að austan, sem Valur heitir. Lagði hann á stað frá
Fáskrúðsfirði 19. janúar og ætlaði til Vestmannaeyja. Á honum eru fjórir menn.
Varðskipið "Þór" var fengið til þess að leita að bátnum í gær.
Morgunblaðið. 22 janúar 1933.
V.b.
"Kveldúlfur" talinn af með 6 mönnum.
Eins og getið var í blaðinu á sunnudaginn, var á laugardag
hafin leit að vjelbátnum "Kveldúlfi" frá Akranesi. Var leitað þann dag
allan og eins um nóttina og á sunnudaginn. Tóku þátt í leitinni togararnir
Kópur, Skallagrímur, Snorri goði, línuveiðarinn Ólafur Bjarnason og fleiri
skip, en leitin bar engan árangur. Þegar seinast sást til bátsins á
föstudagskvöld var hann að draga línuna, en hún slitnaði og lagði hann þá á
stað og ætluðu menn að hann mundi ætla að taka duflið á hinum endanum og draga
þaðan. En annað- hvort hefir hann ekki fundið duflið, eða ekki komist að því,
því að leitarskipin fundu það og línuslitrið. Veður var hvasst um kvöldið,
skafningsrok, en alveg sjólaust, svo að litlir bátar, sem úti voru og höfðu
fullt þilfar af fiski, misstu enga bröndu út. Í gær var leitinni að bátnum enn
haldið áfram og tóku þátt í henni þrír togarar og línuveiðiskip, en leitin bar
engan árangur og er talið vonlaust að báturinn sje ofansjávar.
Á bátnum voru 6 menn.
Skafti Jónsson, formaður
Einar Jónsson, bróðir hans,
Guðmundur Jónsson,
Indriði Jónsson,
Helgi Ebeneserson og unglingspiltur, sem sagt er að hafi heitið Þorbergur
Guðmundsson. Þeir Skafti og Einar voru eigendur bátsins, menn á besta aldri og
mestu dugnaðarmenn, báðir ókvæntir.
Guðmundur Jónsson ætlaði innan skamms að halda brúðkaup sitt og ganga að eiga
systur þeirra bræðra. Indriði Jónsson var kvæntur maður og átti 2 börn. Helgi
Eheneserson var kvæntur maður.
Morgunblaðið. 24 janúar 1933.
16.07.2017 08:19
462. Glófaxi NK 54. TFIM.
Glófaxi NK 54 var smíðaður hjá Frederikssund Skibsverft í Frederikssund í Danmörku árið 1955. 64 brl. 260 ha. Alpha díesel vél. Eigandi var Sveinbjörn Á Sveinsson skipstjóri og útgerðarmaður í Neskaupstað frá 17 desember sama ár. Kom til heimahafnar á jóladag 1955. Glófaxi var lengdur í Dráttarbrautinni í Neskaupstað árið 1961. Mældist eftir það 74 brl. Skipið var selt 12 desember 1969, Eskey h/f á Höfn í Hornafirði, hét Eskey SF 54. Ný vél (1970) 431 ha. Caterpillar díesel vél, 313 Kw. Selt 18 október 1982, Geir h/f og Árna Helgasyni á Þórshöfn, hét Geir ÞH 150. Frá 20 desember 1988 var Þór h/f á Þórshöfn eigandi skipsins. 31 desember 1989 er skráður eigandi Geir h/f á Þórshöfn, hét þá Guðrún Björg ÞH 60. Árið 1997 er skipið skráð í eigu Flóka ehf á Húsavík, sama nafn og númer. Skipið var selt árið 2002, Eyjanesi ehf í Garði, hét Eyjanes GK 131. Selt 2003, Kolsvík ehf á Patreksfirði, hét Brokey BA 336. Skipið sökk í Reykjavíkurhöfn 1 desember 2007 en náðist upp aftur en var ónýtur eftir. Skipið var rifið í Gufunesi árið 2008, en ekki tekinn af skipaskrá fyrr en 29 desember árið 2011.
Glófaxi N.K. 54
Á jóladag kom hingað frá Danmörku nýr fiskibátur, sem hlotið hefur nafnið Glófaxi og einkennisstafina N. K. 54. Glófaxi er smíðaður í Fredriksund 64 brúttólestir að stærð með 240-260 hestafla Alpha-dísilvél. Báturinn er hinn sterklegasti og vandaðasti að sjá og er búinn öllum þeim öryggis og siglingartækjum sem tíðkast í bátum af þessari stærð. Ganghraði bátsins á leið til landsins reyndist 9 sjómílur á klukkustund. Hreppti hann misjafnt veður og féll skipverjum hið bezta við bátinn. Glófaxi verður í vetur gerður út frá Keflavík. Eigandi hans, Sveinbjörn Sveinsson, verður sjálfur skipstjóri. Austurland býður Glófaxa velkominn í norðfirzka bátaflotann og óskar Sveinbirni til hamingju með þennan myndarlega bát. Þess má geta, að Norðfirðingar eiga í smíðum í Danmörku tvo báta af sömu stærð og gerð og Glófaxi er. Mun annar koma ekki löngu eftir áramótin, en hinn að vori.
Austurland. 30 desember 1955.
Glófaxi stækkaður
Vélbáturinn Glófaxi NK 54 er nú kominn í slipp hér í Neskaupstað. Á að stækka bátinn og verður það gert á þann hátt, að hann verður sagaður sundur í miðju og aukið í hann tveim til tveim og hálfum metrum. Við þetta mundi burðarþol bátsins líklega aukast um nálægt 15 tonn og Glófaxi þá eftir stækkunina verða um 80 tonn. Ekki er gert ráð fyrir að þessi stækkun geri vélaskipti nauðsynleg og mun litið draga úr ganghraða bátsins. Þess er vænzt, að stækkuninni verði lokið fyrir vertíð. Astæðan fyrir því, að eigandi Glófaxa, Sveinbjörn Sveinsson, skipstjóri, ræðst í að láta stækka bátinn, er einkum sú, að hann telur hann full lítinn fyrir kastblökk til síldveiða, en þau tæki koma vafalaust í flesta báta á næstunni. Glófaxi er aðeins fárra ára gamall, smíðaður í Danmörku.
Austurland. 15 september 1961.
15.07.2017 08:32
902. Vísir GK 70. TFAO.
M.b. Vísir
GK 70
Eins og áður hefur verið getið um hér í blaðinu var stofnað
Útgerðarfélag Keflavíkur h.f., að tilhlutan hreppsnefndarinnar skömmu eftir
áramótin í fyrra. Tekin var ákvörðun um að láta byggja einn bát ca. 55
smálesta. Allar skipasmíðastöðvar voru önnum kafnar, þó tókst að semja um smíði
bátsins við Skipasmíðastöð Marsilíusar Bernharðssonar á Ísafirði.
Báturinn átti
að vera tilbúinn í vertíðarbyrjun og mun smíði hans þá að mestu hafa verið
lokið, en nokkur töf varð á sumum vélarhlutum og seinkaði það afhendingu
bátsins. 8. febrúar, þegar sólin var hæst á lofti (kl. 12), skreið skeiðin,
fánum prýdd stafna á milli, inn í höfnina í Keflavík. Hafði báturinn þá hlotið
nafnið Vísir, en einkennisstafir hans eru G. K. 70. M.b. Vísir er allra
fegursta fley, vandað að öllum frágangi og öllu haganlega fyrirkomið, að því er
séð verður við fljóta yfirsýn. Hann er 54 smálestir að stærð og drifin af 200
hestafla June Munktell vél. Hann gengur um 9 mílur. Í bátnum er dýptarmælir,
talstöð og útvarpstæki, og ráðgert að setja fljótlega miðunarstöð í hann.
Skipstjóri á Vísi er Árni Þorsteinsson en vélstjóri Sigurður B. Helgason.
Útgerðarfélag Keflavíkur h.f., sem er eigandi Vísis, var stofnað með almennri
þátttöku Keflvíkinga. Keflavíkurhreppur á 1/10 hluta af innborguðu hlutafé en
það eru um 100 þúsund. Gert er ráð fyrir að auka hlutaféð upp í 1/2 milljón.
Framkvæmdastjóri félagsins er Albert Bjarnason en Ragnar Guðleifsson gjaldkeri.
Fyrsta róðurinn fór Vísir sama kvöldið, er hann kom til Keflavíkur, en sneri
við vegna slæms veðurútlits, og slapp þannig við aftakaveðrið 9. febrúar. Á
leiðinni heim bilaði vélin, en þó komst hann heilu og höldnu að landi. Nú er
hann búinn að fara marga róðra og hefur fiskað ágætlega.
Faxi. 2 tbl. 1 mars 1946.
4 mönnum
bjargað úr sjávarháska
Nökkvi VE 65
strandaði vestur af Ingólfshöfða í gærmorgun
Í gærmorgun strandaði vélbáturinn Nökkvi VE 65 frá
Vestmannaeyjum rúmar þrjár sjómílur vestur af Ingólfshöfða. Fjórir menn voru á
bátnum og tókst björgunarsveitum að bjarga þeim úr bátnum skömmu eftir hádegið
í gær. Var báturinn að koma af veiðum, þegar skyndilega skall á ofsaveður, sem
bar hann upp á rif. Það var um ellefu leytið í gærmorgun, sem
Hornafjarðarradíói barst tilkynning um að vélbáturinn Nökkvi væri strandaður
vestur af Ingólfshöfða. Þá var allhvasst á þessum slóðum, vindátt á norð-austan
og níu vindstig. Báturinn hafði lent á rifi sem er vestur af Ingólfshöfða og
braut mikið á honum. Sigldu nokkrir bátar á strandstað auk þess sem
björgunarsveitir frá Hornafirði og Öræfum lögðu af stað þangað. Á flóðinu
skömmu eftir strandið tók bátinn upp af rifinu og rak hann inn fyrir grunnbrot,
þannig að sjór braut ekki lengur á honum.
Þá hafði einn bátanna á strandstað
náð sambandi við björgunarsveitina og var þá björgunarsveitin í Öræfum komin á
staðinn. Var hafist handa við að koma björgunarlínu út í bátinn og tókst það
fljótt og vel. Var ákveðið að taka mennina fjóra strax í land, þar sem báturinn
var farinn að liðast í sundur og sjór kominn í hann. Var björgunaraðgerðum
lokið um tvöleytið í gærdag. Ekki var í gær útlit fyrir að hægt yrði að bjarga
bátnum. Veður var slæmt og í dag var spáð hvassviðri á þessum slóðum.
Nökkvi VE 65 er 53 lestir að stærð. Hann var smíðaður á Ísafirði árið 1946.
Tíminn. 10 maí 1980.
Arndís
Pálsdóttir eiginkona skipstjórans á Nökkva
"Ég átti
þrjú mannslíf á bátnum"
"Ég átti þarna þrjú mannslif, svo ég hugsaði auðvitað mitt,
þegar mér barst fregnin um strandið", sagöi Arndis Pálsdóttir, eiginkona
Georgs Stanley Aðalsteinssonar skipstjóra á Nökkva VE 65, en Georg er jafnframt
eigandi bátsins. Með honum voru tveir synir þeirra hjóna, annar tuttugu og eins
árs, en hinn tuttugu og tveggja ára svo og Kári Sólmundarson. "En ég varð ekki
eins hrædd og ég hefði ef til vill átt að verða", sagði Arndis. "Þetta eru
nú einu sinni börnin okkar, en það spilar ef til vill inn í, að ég hef aldrei
verið hrædd um manninn minn þegar hann hefur verið á sjó. Við megum sannarlega
vera þakklát fyrir að ekki fór verr".
Tíminn. 10 maí 1980.
13.07.2017 06:53
Einar þveræingur EA 537.
Einar þveræingur EA 537 var smíðaður af Steinþóri
Baldvinssyni á Akureyri árið 1930. Eik og fura. 12 brl. 20 ha. Union vél.
Eigendur voru Magnús Gamalíelsson og Guðbjartur Snæbjörnsson á Ólafsfirði frá 2
desember 1930. Ný vél (1939) 40 ha. Union vél. Báturinn var lengdur árið 1943
og mældist þá 18 brl. Báturinn brann og sökk út af Hraunhafnartanga 24 júlí
árið 1947. Áhöfnin bjargaðist í nótabátinn og þaðan um borð í Gaut EA 669.
Einar þveræingur EA 537. (C) Gunnar Óli Björnsson.
Einar þveræingur EA 537. Líkan Gríms Karlssonar skipstjóra. (C) Þórhallur S Gjöveraa.
"Einar
Þveræingur"brennur
Skipverjar á m.b. Einar Þveræingur, urðu að yfirgefa skipið
er eldur kom upp í því seinnipart dags í gær. Einar Þveræingur (eldra skipið),
var á siglingu út af Melrakkasljettu, er eldur kom upp í því. Breiddist hann
óðfluga út og gátu skipverjar ekki við hann ráðið. Varð skipið alelda á
tiltölulega skammri stundu og urðu skipverjar að yfirgefa skipið í nótabát
sínum. Enginn þeirra mun hafa slasast, en giskað er á að áhöfnin hafi verið 8
til 10 menn. Frjett þessi barst til Morgunblaðsins skömmu áður en blaðið fór í
pressuna og er því ekki kunnugt um hvað af skipverjum varð.
Morgunblaðið. 25 júlí 1947.
Útblástursrör
kveikti í "Einari þveræing"
Nánari frjettir hafa nú borist af því, er mb. Einar
Þveræingur brann og sökk út af Melrakkasljettu í fyrrakvöld. Báturinn sökk um
kl. 1 í fyrrinótt um það bil 4 til 5 sjómílur út af Hraunhafnartanga. Einar
Þveræingur var annar um nót við m.b. Gaut. Eldsupptök eru talin stafa frá
útblástursröri vjelarinnar.
Morgunblaðið. 26 júlí 1947.
12.07.2017 06:26
815. Sveinn Guðmundsson AK 70. TFOR.
Nýr 70
smálesta bátur til Akraness
Í fyrradag kom nýr bátur til Akraness byggður í
Friðrikssund. Bátur þessi sem er eign Haraldar Böðvarssonar & Co,, heitir
,Sveinn Guðmundsson" og er 65-70 smálestir. Í bátnum er 225 hestafla
June-Munktel-vél. Hingað heim sigldi bátnum Elías Benediktsson, en skipstjóri á
honum verður Þórður Sigurðsson. Báturinn fer strax norður á síld.
Akranessbátarnir eru nú að verða tilbúnir á síldveiðar og fóru þrír norður í
fyrradag, og aðrir eru alveg á förum. Alls munu 10-12 bátar frá Akranesi verða
gerðir út , á síldveiðar, auk Ólafs Bjarnasonar og Sindra.
Alþýðublaðið. 5 júlí 1947.
Bjargaði 4
mönnum eftir að bátur þeirra sökk
Vélbáturinn Haukur SU 50 frá Djúpavogi sökk 22 sjómílur SA
af Stokksnesi um kl. 20.30 í gærkvöldi. Fjórir menn voru á bátnum og komust
þeir um borð í gúmbjögunarbát og var bjargað um borð í skuttogarann Skinney frá
Hornafirði litlu síðar. Var Skinney væntanleg til Hafnar í Hornafirði um
miðnæturleytið með skipbrotsmennina. "Björgun mannanna tókst ágætlega, þeir
voru búnir að vera í gúmmíbátnum í um það bil hálfa klukkustund, þegar við
komum að þeim," sagði Þorleifur Dagbjartsson, skipstjóri á Skinney er Mbl.
hafði samband við hann í gærkvöldi. "Þeir voru fjórir í öðrum bátnum en hinn
höfðu þeir bundið samsíða.
Þegar við áttum eftir 8 mílur í Hauk sáum við hann á
ratsjánni, en stuttu síðar hvarf hann. Leið svo nokkur stund, en þá sáum við
hvar flugeldum var skotið á loft frá gúmmíbátnum, og eftir það gekk allt
vel." Hannes Hafstein framkvæmdastjóri Slysavarnafélags Íslands sagði að
Tilkynningaskyldunni hefði borizt orðsending frá loftskeytastöðinni á Höfn um
að leki væri kominn að Hauki og var það um kl. 19.15 og var síðan haft samband
við skip úti af Stokksnesi. Brátt kom í ljós, að Skinney SF 20 var nærstödd og
sagðist skipstjóri togarans sjá bátinn í átta sjómílna fjarlægð. Fylgdust
skipverjar á Skinney með Hauki í ratsjánni þar til hann sökk, síðast heyrðist
frá bátnum kl. 19.30.
Morgunblaðið. 26 nóvember 1975.
11.07.2017 06:39
569. Hjalti SI 12.
Hjalti SI 12 var smíðaður af Antoni Jónssyni skipasmið á
Akureyri árið 1916. 9 brl. 10 ha. Hein vél. Hét fyrst Hjalti EA 360. Eigandi
var Einar Einarsson á Akureyri frá sama ári. Seldur 2 desember 1930, Anton
Jónssyni á Siglufirði, báturinn hét Hjalti SI 15. Seldur 7 september 1931,
Þorbirni Áskelssyni á Grenivík, hét Hjalti TH 272. Ný vél (1933) 35 ha. June
Munktell vél. Báturinn var lengdur árið 1936, mældist þá 11 brl. Ný vél (1939)
50 ha. June Munktell vél. Seldur 19 sept 1948, Hlutafélaginu Hjalta á Siglufirði,
báturinn hét Hjalti SI 12. Ný vél (1957) 66 ha. Kelvin díesel vél. Hjalti var
talinn ónýtur og tekinn af skrá 18 janúar árið 1979.
Hjalti SI 12 við bryggju á Siglufirði. (C) Þór Eyfeld Magnússon.
Hjalti SI 12. (C) Már Jóhannsson.
Hjalti SI 12 á siglingu. (C) Þjóðbjörn Hannesson.
Hjalti SI 12. Líkan Gríms Karlssonar. (C) Þórhallur S Gjöveraa.
Borgarísjaki
út af Siglufirði
Mikil og
tignarleg sjón
Fréttaritari blaðsins á Siglufirði, Steingrímur Kristinsson
fór á m.b. Hjalta út að borgarísjaka, sem var 7-8 sjómílur frá landi, og tók
með fylgjandi myndir af honum. Það var mikil og tignarleg sjón að sjá þetta
ferlíki gnæfa 20-40 metra hátt yfir sjávarmál og 100-150 m. á breidd, þar sem
jakinn er breiðastur, segir Steingrímur. Og þó er þetta sennilega aðeins 1/9
hlutinn af jakanum, hitt mun vera neðansjávar. Hann segir svo frá ferðinni: -
S. l. laugardag sá ég fyrsta borgarísjakann á minni 30 ára ævi, en þá var
jakinn eins og smádepill úti við sjóndeildarhringinn. Á mánudag var sami jaki
staddur út af Siglufirði, ásamt öðrum minni 1-2 sjómílur utar. Hafði sá stóri á
sunnudag verið á hraðri ferð austur með landinu, þrátt fyrir austan kalda og
sjó, en á mánudag var farið að hvessa meira og jakinn snúinn við og hélt í
vestur undan veðrinu, ásamt minni jakanum. Sást vel til jakans bæði á sunnudag
og mánudag frá Siglufjarðarkaupstað. Bar hann yfir Siglunesið eins og stór
snjóhvít eyja, glæsileg að sjá. Utan af ströndinni sást hann betur og var mikil
umferð um veginn úteftir. Bílar fóru með fólk með sjónauka, sem vildi virða
þessa tignarlegu og sjaldgæfu sjón fyrir sér.
Borgarísjakinn út af Siglufirði. (C) Steingrímur Kristinsson.
Og nú fór ljósmyndari okkar af stað. Hann leigði sér mótorbátinn Hjalta SI 12.
Með hann eru svokallaðir Kambsbræður, Grímur og Gunnar Helgasynir, sem fyrr
hafa dugað okkur vel, lentu t.d. í sögulegu ferðalagi á sínum tima í hvassviðri
við að koma til okkar myndum af tunnuverksmiðjubrunanum. Steingrímur
ljósmyndari tók sem sagt sjóveikitöflu og lagði í hann. En 7-8 vindstig voru,
talsverður sjór og þar á ofan kröpp vindbára, og rak veðrið alla undir þiljur
áður en 20 mínútur voru liðnar og ekki var liðin klukkustund, þegar Ægi var
fórnað gómsætum signum fiski ásamt nýjum kartöflum. Eftir hálfs annars tíma
siglingu í bansettum hamagangi, höggum og veltingi, miður þægilegum fyrir
höfuð, maga og hnjáliði, sló vélstjórinn á Hjalta, Gunnar Helgason, af og
andæfði, segir Steingrímur. Mikið var um smáísrek, jakar höfðu brotnað úr
borgarísnum og þurfti að vara sig á þeim. Ekki var hægt að "stíga á land",
bæði vegna sjógangs og brattra hliða jakans. Taldi Grímur Helgason, skipstjóri
ekki ráðlegt að fara mjög nærri, því ekki er gott að átta sig á hvort brotið í
kring um jakann stafar af sogi, sem myndast af grynningum, t.d. ef sá hluti
jakans sem er neðansjávar, skagar mikið út undan. En árangur ferðarinnar sést á
meðfylgjandi myndum, sem Steingrímur tók af jakanum.
Morgunblaðið. 17 september 1964.
10.07.2017 11:51
333. Bjarni Ólafsson GK 200. TFXM.
Bátur
brennur á Hvammstanga
Um kl. 7 árdegis í gærmorgun urðu skipverjar á Glað HU 67
varir við að reyk lagði upp úr mb. Fróða HU 10, þar sem hann lá við bryggju á
Hvammstanga. Við nánari eftirgrennslan kom í ljós að eldur var laus í vélarrúmi
bátsins og var slökkvilið staðarins kallað út. Endanlega hafði tekizt að ráða
niðurlögum eldsins, sem einungis var neðan þilja, á tólfta tímanum en við
slökkvistarfið var beitt froðu og vatni. Báturinn er verulega skemmdur og óvíst
hvort hann fer aftur á veiðar. Eldurinn var einungis í vélarrúmi bátsins og
brann vélarrúmið að innan en eldsupptök eru ókunn. Einn maður svaf frammi í
bátnum, þegar eldurinn kom upp, en hann sakaði ekki. Fjórir bátar hafa að
undanförnu stundað rækjuveiðar frá Hvammstanga og var Fróði einn þeirra.
Rækjuveiði hefur gengið fremur illa og hjálpast þar að ógæftir og lélegri veiði
heldur en verið hefur undanfarin ár.
Morgunblaðið. 12 desember 1975.
09.07.2017 20:41
1274. Páll Pálsson ÍS 102 í slippnum í Reykjavík.
1274. Páll Pálsson ÍS 102. Upphaflegt útlit, nema búið er að hækka lunningar aftur fyrir skorsteinshús.
Farsæl 44 ár
hjá Páli Pálssyni ÍS 102
Skuttogarinn Páll Pálsson ÍS 102 landaði í morgun í
síðasta sinn afla til vinnslu hjá Hraðfrystihúsinu - Gunnvöru hf. í Hnífsdal,
en eins og kunnugt er hefur skipið verið selt til Vinnslustöðvarinnar hf. í
Vestmannaeyjum. Í nær fjörutíu og fimm ár hefur Páll verið gerður út frá
Hnífsdal og verið burðarás í landvinnslu fyrirtækisins. Í haust tekur
síðan nýr Páll Pálsson ÍS 102, við keflinu en unnið er að lokafrágangi hans í
Kína.
Páll var einn af fyrstu skuttogurum Íslendinga þegar hann kom nýr til landsins
í febrúar 1973 frá Japan þar sem hann var smíðaður. Ýmsar nýjungar fylgdu
komu skuttogaranna, t.d. gjörbreyttist öll aðstaða fyrir áhöfn og byrjað var að
ísa aflann í plastkassa um borð. Síðar komu fiskkerin og öflugri og betri
kæling til sögunnar en skipið fór í endurbætur og lengingu árið 1988 í
Póllandi. Aflasæld hefur fylgt skipinu alla tíð og hefur það borið að
landi um 220 þúsund tonn af fiski sé miðað óslægðan afla uppúr sjó.
Aflaverðmætið þessi fjörutíu og fimm ár á núverandi verðlagi er um 45
milljarðar króna.
Slíkum árangri er ekki hægt að ná nema með góðu skipi og vel mannaðri áhöfn.
Mannabreytingar hafa verið mjög litlar í áranna rás, sem sést best á að meðalstarfsaldur áhafnarinnar er yfir 20 ár. Meðal þeirra sem nú eru í
áhöfn hefur Guðmundur Sigurvinsson vélstjóri verið lengst eða í 36 ár samfleytt
á Páli en hann hefur ákveðið að nú sé komið gott og fer í land. Aðeins
þrír skipstjórar hafa verið á skipinu, Guðjón Arnar Kristjánsson sótti Pál til
Japans og var skipstjóri í 19 ár, Kristján Jóakimsson var skipstjóri í 4 ár,
en lengst hefur Páll Halldórsson verið skipstjóri en hann hefur verið við
stjórnvölinn síðastliðin 22 ár. Nú styttist í að Páll haldi til Kína til þess
að sækja nýjan og glæsilegan Pál Pálsson.
Við þessi tímamót vilja stjórnendur Hraðfrystihússins-Gunnvarar hf, þakka
núverandi og fyrrverandi skipverjum Páls Pálssonar samstarfið og óska þeim
velfarnaðar.
- 1
- 2