Blogghistorik: 2018 N/A Blog|Month_10
31.10.2018 16:12
1131. Bjarni Sæmundsson RE 30 að koma til hafnar í dag.
Höfum
eignazt fullkomið hafrannsóknaskip
"Bjarni Sæmundsson" kominn
Skipið er 776.6 brúttólestir að stærð og 49 metrar milli lóðlína. Vistarverur skipsins eru allar einkar snyrtilegar bæði fyrir skipshöfn og leiðangursmenn. Sú nýbreytni er einnig í þessu skipi að á því er hvorki kjölur né veltikylir. Botninn er ávalur og er það gert til þess að fiskileitartæki og önnur tæki sem hafa sendistöðvar í botni starfi mákvæmar, en þau vilja verða fyrir truflunum af kjölnum í veltingi. Í kjalar stað er sérbyggður veltitankur, sem gegnir sama hlutverki og kjölur og veltikylir, en þar kemur til vatnsmótora í þessum tanki. Skipið er byggt sem skuttogari með vökvadrifinni togvindu og er hún engin smásmíði, því á henni eru 1.300 faðmar af vír. Vindan samanstendur af tveimur tromlum og er hægt að knýja hvora þeirra fyrir sig eða báðar saman. Sérstakur stjórnklefi er fyrir vindurnar af afturþiljum og þar eru einnig vindur fyrir fleiri gerðir af vörpum. Þannig er frá gengið akkerisvindu að nota má hana við hringnótaveiðar og eins ef liggja þarf á miklu dýpi við straummælingar. Er þá hægt að skjóta inn sérstökum vír til lengingar. Sérstakar skrúfur hafa um nokkurt skeið verið notaðar til að auðvelda stjórn skipanna sérstaklega ef snúa þarf þeim við lítið rýrmi, eða halda þeim frá veiðarfærum. Á þessu skipi er Skrúfa á sjálfu stýrinu, sem auðveldar snarvendingu og auk þess er hægt að leggja stýrið 90 gráður í borð, sem er sjaldgæft mjög. Þá er skipið einnig búið bógskrúfu á sénstökum hæl, sem hægt er að renna niður úr botni skipsins að framan og snúa þar í alllar áttir til að auðvelda stjórn skipsins. Skipið mun í dag formlega verða afhent Hafrannsóknarstofnunni.
Morgunblaðið. 18 desember 1970.
31.10.2018 09:29
Bátar í höfn.
1271. Fram KE 105. Eik og fura. 11 brl. 98 ha. Powa Marine vél. Báturinn var smíðaður fyrir Benedikt B Guðmundsson í Keflavík 1972. Talinn ónýtur og tekinn af skrá 6 apríl 1992.
30.10.2018 08:16
1345. Blængur NK 125 á Akureyri.
Blængur NK með góðan túr og síðan í slipp
Frystitogarinn Blængur NK kom til
Neskaupstaðar í gær að aflokinni 40 daga veiðiferð en hann millilandaði á
Akureyri 27. september sl. Aflinn í veiðiferðinni var 900 tonn upp úr sjó eða
29.000 þúsund kassar. Aflaverðmætið er 225 milljónir króna. Hér er um að ræða
stærsta túr Blængs á Íslandsmiðum en uppistaða aflans var ufsi og karfi.
Theodór Haraldsson var skipstjóri fyrstu tíu
daga veiðiferðarinnar en síðan tók Bjarni Ólafur Hjálmarsson við. Að sögn
Bjarna Ólafs var jöfn og góð veiði allan tímann.
Að löndun lokinni mun Blængur halda til Akureyrar
þar sem skipið fer í slipp. Áformað er að gera nokkrar breytingar á millidekki
skipsins og eins verður skipt um togspil. Gert er ráð fyrir að skipið verði í
slipp í fjórar vikur.
Facebooksíða
Síldarvinnslunnar hf
15 október 2018.
29.10.2018 12:37
414. Fjalar VE 333. TFPE.
V.b. Fjalar
VE 333
Fjalar, annar þeirra fiskibáta, sem Helgi Benediktsson hefur
látið byggja í Svíþjóð kom til Vestmannaeyja 22. febrúar s. l. eftir viðkomu í
Færeyjum vegna leiðréttingar á áttavita. Fjalar er að öllu af sömu gerð og
Frosti, sem kom fyrir áramótin. Báturinn er byggður í Raa með 180 hk. June
Munktell aðalvél, sem búin er olíudrifinni gangskrúfuskiptingu, auk ljósavélar.
Í bátnum er olíudrifin línu og netavinda, M. P. Petersen talstöð og
miðunarstöð, dýptarmælir ásamt öllum þeim fullkomnustu og beztu tækjum sem
notuð eru í fiskibátum. Gísli J. Johnsen, stórkaupmaður í Reykjavík, hafði
milli göngu um samning um byggingu bátsins, en báturinn er byggður samkvæmt
smíðalýsingu og miðbandsuppdrætti er Brynjólfur Einarsson skipasmíðameistari í
Vestmannaeyjum gerði, og mun vera bezt gerða og nákvæmasta smíðalýsing, sem
samin hefir verið af íslenzkum manni. Yfirbygging bátsins er úr létt málmi og
íbúðir skipverja mjög vistlegar og vel frágengnar. Umsjón með byggingu bátsins
annaðist Stefán Helgason, er nú er nýkominn heim eftir dvöl í Svíþjóð frá því í
októbermánuði, en eftirlitsmaður af hálfu Skipaskoðunar ríkisins var Hans
Hansson, skipstjóri í Gautaborg. Skipstjóri á heimsiglingunni var Sævaldur
Runólfsson, sem verður skipstjóri á bátnum í vetur, en Bogi Sigurðsson stýrimaður.
Vélstjórar voru Ingólfur Kristjánsson og Rafn Sigurbergsson. Fjalar kom fullbúinn til fiskiveiða.
Framsókn. 4 tbl. 4 mars 1955.
28.10.2018 09:40
476. Guðjón Einarsson GK 161. TFZU.
Nýr bátur
til Grindavíkur
Nýlega bættist nýr bátur í flota Grindvíkinga. Er það sex
ára eikarbátur með nýrri vél, sem keyptur er þangað frá Danmörku. Báturinn er
48 lestir að stærð og hefir hlotið nafnið Guðjón Einarsson. Þessi bátur, sem
gerður verður út frá Grindavík er búinn ágætum siglingatækjum og þægindum við
skipstjórn t.d. er talsími úr stýrishúsi fram í bústað áhafnar.
Tíminn. 16 desember 1955.
25.10.2018 09:54
839. Sæljón RE 317. TFLI.
Nýlega bættist reykvíska vélbátaflotanum nýr og glæsilegur
farkostur, v.b. Sæljón, RE 317. Þetta er nýsmíðaður eikarbátur, byggður við
Esbjerg Skibsværft í Danmörku, myndarlegt skip, rúmar 60 lestir að stærð.
Eigandi hans og skipstjóri er Gunnar Guðmundsson, útgerðarmaður, Miðtúni 3 hér
í bæ. Fréttamaður Vísis átti tal við Gunnar og Magnús Ó. Ólafsson stórkaupmann,
sem útvegaði bátinn, og fékk að skoða þenna prýðilega farkost, en hann var á
förum norður til síldveiða. Skipið er með alúminíumstýrishúsi, en vélarreisn úr
stáli. 200-240 hestafla GM diesel-vél knýr skipið, sem allt er búið hinum
nýtízkustu tækjum, svo sem Simrad-dýptarmæli með "útfærzlu", eins og það
er nefnt, móttöku- og senditækjum frá hinu kunna danska fyrirtæki, M. P. Pedersen,
svo og talstöð. Þá er vélinni að sjálfsögðu stjórnað að öllu leyti frá
stýrishúsi. Það er alger nýjung í skipi þessu, að íbúðir eru klæddar plasti, en
það gerir m. a. það að verkum, að auðvelt er að halda veggjum og klæðningu í
svefnklefum hreinum. Frammi í skipinu eru hvílur fyrir 8 manns, fullkomin
olíukynt eldavél af Scandia-gerð, og öllu mjög haganlega fyrir komið. Áhöfnin
er alls 10 manns, þar af ein stúlka, sem mun matreiða handa skipsfélögum sínum,
Lilja Árnadóttir frá Grindavík. Lilja Árnadóttir er enginn nýliði á sjónum, en
fréttamaður Vísis gat skipzt á nokkrum orðum við hana. Hún var áður á v.b.
"Gunnari" frá Hólmavík. Henni lízt ljómandi vel á skipið og plastið á
veggjunum, sem hún telur til mikilla bóta.
Eruð þér sjóveik? spyr fréttamaðurinn. "Svolítið, til að byrja
með," svarar hún, "en það lagast fljótlega, og þegar maður er ekki
sjóveikur, er gaman að vera til sjós." Lengra varð samtalið ekki, því að
hún var að sinna skyldustörfum sínum, og báturinn senn á förum.
Vísir. 24 júní 1955.
839. Sæljón EA 55. (C) Morgunblaðið.
Þrír menn
björguðust þegar Sæljón EA 55 sökk
Þrír menn björguðust í gær er Sæljón EA 55, 61 tonns
eikarbátur í eigu útgerðarfélagsins Ránar hf. á Dalvík, sökk um 25 sjómílur
norður af Siglunesi. Leki kom að bátnum um kl. 13.30 og var hann sokkinn kl.
18.20 í gærkvöld. Skipverjunum þremur var bjargað um borð í Bjarma frá Dalvík,
en báðir bátarnir voru á rækjutrolli á Skagafjarðardýpi. Bjarmi EA kom til
Dalvíkur um kl. 23 í gærkvöldi.
Arngrímur Jónsson skipstjóri á Bjarma sagðist í samtali við Morgunblaðið í
gærkvöld hafa verið staddur um 20 sjómílur norður af Siglunesi þegar kall hefði
borist frá Sæljóni um kl. 14.00 í gær, en þá var Sæljónið statt um sex mílur
norðan við Bjarma. "Skipstjórinn var fyrst og fremst að fá upp hvar ég væri
nákvæmlega og lét hann mig þá jafnframt vita um ástandið um borð. Þá var kominn
leki í vélarrúmi og lensurnar virkuðu ekki. Við töluðum um að hafa samband
reglulega. Hann dreif sig í að hífa trollið og var búinn að því hálftíma
seinna. Þá sagðist hann ætla að leggja af stað í áttina til mín og spurðist
fyrir um hvort í grenndinni væru bátar eða skip með dælu enda skilst mér að
útlitið hafi þá verið farið að versna töluvert.
Ekki voru þó nein skip nálæg
með dælur. Um fjögurleytið kallaði hann aftur og bað mig um að koma á móti sér.
Þá átti hann eftir um tvær mílur í mig. Ég hífði trollið strax og fór á móti
honum. Þá var vélin farin að hiksta og mikill sjór kominn í vélarrúmið. Ég var
kominn upp að honum um kl 16.30. Sex vindstig voru um þetta leyti og var heldur
að bæta í'ann á meðan við vorum að koma vír á milli og þegar farið var að ná
mönnunum um borð til okkar. Ég fór upp að hliðinni á Sæljóninu og bakkaði uppað
svo þeir gætu stokkið um borð. Fyrst henti ég tógi um borð sem þeir hnýttu í
vírinn hjá sér til að tengja á milli bátanna. Ég ætlaði að reyna að draga
Sæljónið að landi svo bjarga mætti einhverju, því það var þarna á réttum kili.
Þegar mennirnir voru komnir um borð og ég byrjaði að taka á, slitnaði virinn
strax á milli. Ég snéri aftur upp að bátnum og sendi tvo menn með vír yfir.
Þeir rétt náðu að stökkva aftur um borð í Bjarma þegar Sæljónið fór á hliðina
og sökk skömmu síðar. Þá urðum við að klippa á vírinn," sagði Arngrímur að
Iokum.
Þórir Ólafsson skipstjóri á Sæljóninu sagðist hafa uppgötvað leka um kl. 13.30
í gær. "Hann ágerðist stöðugt og dælurnar höfðu ekki undan. Auðvitað má segja
að við höfum verið í hættu þarna. Það mátti ekki mikið út af bera. Til dæmis
hoppuðum við einfaldlega á milli bátana á öldunni úr því að tíminn var orðinn
naumur," sagði Þórir. Auk Þóris voru um borð í Sæljóninu þeir Gunnar
Þórarinsson vélstjóri og Viðar Þórisson kokkur. Stefán Rögnvaldsson EA frá
Dalvík var einnig í nágrenninu og kom hann að í þann mund er Sæljónið var að
sökkva.
Rán hf. útgerðarfélag bátsins, gerir einnig út Sænes EA 75, 110 tonna stálskip.
Búast má við að sjópróf fari fram í dag.
Morgunblaðið. 6 október 1988.
21.10.2018 09:14
Skógafoss GK 280.
Nýr bátur
til Keflavíkur
"Skógafoss" heitir 20 smálesta vélbátur, nýkominn frá
Noregi, er liggur hér við Steinbryggjuna. Báturinn er nýr og smíðaður fyrir
Valdimar Kristmundsson formann og útgerðarmann í Keflavík. Umboðsmaður
skipasmíðastöðvarinnar og vélarinnar, O. Ellingsen, bauð blaðamönnum og ýmsum
fleirum að skoða bátinn í gær. Var farið á bátnum út fyrir Engey, svo að
gestunum gæfist kostur á að sjá ganghraða hans. Báturinn er smíðaður í Rosendal
í Noregi. Viðir bátsins eru að mestu leyti úr furu. Stærð hans er eins og áöur
er sagt rúmlega 20 smálestir. Vélin hefir 45 hestöfl og heitir "Rap". En
af þeirri vélategund er mikið notað í norska fiskibáta. Mannaíbúð er aðeins í
framstafni og er þar vistleg íbúð fyrir 6,menn. Vélin knýr bátinn 8 1/2 mílu á
vöku í sæmilegu veðri. Báturinn verður raflýstur hér. Hingað kominn mun hann
kosta um 30 þúsundir ísl. kr., og er það mun ódýrara en hægt mun að smíða báta
fyrir hér líkrar stærðar. Báturinn var 4 sólarhringa og 6 klst. frá Björgvin
til Keflavíkur, er það óvenjulega fljót ferð á smáskipi að vetrarlagi þessa
leið. Skipstjórinn var Kristján Kristjánsson, sá er stýrði "Gottu" í sumar
í Grænlandsleiðangrinum.
Alþýðublaðið. 9 desember 1929.
Átakanlegt
slys
M.b. Víðir
VE 326 ferst með allri áhöfn fimm mönnum.
Þann 6. þ. m. var hér hægviðri snemma morguns og reru
allmargir bátar. Í birtingu tók að hvessa á suðaustan, og um hádegi var komið
hvassviðri. Eftir kl, tvö fór aftur að hægja og vindur að ganga suðlægari.
Meðan vindurinn var mestur var mikil snjóhríð, er síðar um daginn breyttist í
rigningu. Þegar leið á daginn fóru bátar smátt og smátt að koma heim og allir
komu þeir heim um kvöldið nema m.b. Víðir VE 326. Um kvöldið fór varðskipið Þór
að leita hans. Einnig leitaði m.b. Ver nokkuð um kvöldið. M.b. Víðir hafði lagt
línu sína um 25 sjóm. NV. frá Vestmannaeyjum. Þrátt fyrir leit nokkurra skipa í
fullan sólarhring sást ekki til bátsins. Fóru menn þá að verða vonlausir um
heimkomu hans, þó að öllum sjómönnum kæmi saman um það, að eitthver óvænt
óhapp, annað en stormurinn, hefði grandað bátnum. Báturinn var vel sterkur, vel
útbúinn, 20 tonn að stærð og vel mönnum skipaður.
Skipstjóri var Gunnar
Guðjónsson 32 ára,
Gísli Guðjónsson 1. vélstjóri 23 ára, bræður frá Kirkjubæ
hér,
Ólafur Markússon frá Fagurhól hér, 2. vélstjóri um tvítugt
og tveir
Eyrbekkingar Árni Bjarnason og Halldór Þorleifsson.
Allir vaskleikamenn. Nú má
telja víst að bátur þessi hafi farist með allri áhöfn, enda hefir heyrst um
rekald úr honum á Landeyjasandi. Það er alltaf hörmulegt að ungir menn og
frískir hverfi í fullu fjöri, og í þessu tilfelli er ekki síst sorglegt til
þess að vita, að móðir bræðranna, Gunnars og Gísla, Halla Guðmundsdóttir, hafði
áður mist tvo syni sína í sjóinn, á unga aldri, hér við Eyjar. Eftir að þetta
var skrifað, hefir bátinn rekið upp á Landeyjasand, brotinn til ónýtis. Hvers
vegna báturinn hefir lent þarna í brotsjóum skamt frá landi verður aldrei vitað
með vissu, en sennilega hefir kompáskekkja eða vélarstopp valdið þessu
hörmulega slysi.
Víðir. 10 tbl. 19 febrúar 1938.
20.10.2018 08:09
620. Hjálmar NK 3 TFWY.
Vélbáturinn Hjálmar NK 3 í reynslusiglingu á Ísafirði í júlí 1960. (C) Ljósmyndasafnið á Ísafirði.
Nýr bátur
til Neskaupstaðar
Neskaupstað 7. Júlí. Kl. 11 í dag kom hingað vélbáturinn
Hjálmar NK 3, eign Haraldar Hjálmarssonar, útgerðarmanns í Neskaupstað. Er
þetta nýr bátur, smíðaður í skipasmíðastöð M. Bernharðssonar hf. á Ísafirði og
kom hann nú í fyrsta skipti til heimahafnar. Báturinn fór frá Ísafirði um
síðustu helgi til Reykjavíkur og tók síðan veiðarfæri í Vestmannaeyjum.
Vélbáturinn Hjálmar er 82 lestir að stærð, með 525 ha Mannheimvél. Hann er
búinn öllum nýjustu siglinga- og fiskileitartækjum. Þykir smíði hans öll hin vandaðasta.
Báturinn fer á síldveiðar á morgun. Skipstjóri er Þórlindur Magnússon frá
Eskifirði, og 1. vélstjóri Jón Árni Sigurðsson frá Seyðisfirði.
Morgunblaðið. 9 júlí 1960.
Hjálmar NK 3 við bryggju síldarsöltunarstöðvarinnar Drífu í Neskaupstað. (C) Þórarinn Ölversson.
Helga Björg HU 7 með Jón Oddsson GK 14 alelda í togi. (C) Morgunblaðið / Gunnar Steinn.
Eldur í báti
Eldur kom upp í vélarrúmi Jóns Oddssonar GK 14 frá Keflavík,
þegar báturinn var að humarveiðum um 10 mílur vestur af Eldey um hádegisbilið í
gær. Skipverjum tókst ekki að ráða niðurlögum eldsins og var þá vélarrúminu
lokað, en vélbáturinn Helga Björg dró Jón til Keflavíkur. Þangað komu bátarnir
um sjöleytið í gærkvöldi. Slökkvilið beið á bryggjunni og tók um klukkustund að
slökkva eldinn í bátnum. Miklar skemmdir urðu í vélarrúminu. Þegar fréttist af
eldinum um borð í Jóni fór Snarfari RE frá Sandgerði með slökkvidælu og menn,
en þegar aðstæður höfðu verið kannaðar, þótti ekki rétt að freista
slökkvistarfs á sjó úti. Áhöfnin á Jóni Oddssyni, 7 menn, fór um borð í Útey
KE, sem fylgdi Helgu Björg og Jóni Oddssyni til hafnar í Keflavík.
Jón Oddsson er 82 tonna eikarbátur, smíðaður á Ísafirði 1960.
Morgunblaðið. 25 ágúst 1971.
14.10.2018 09:36
Togarar við innri bæjarbryggjuna í Neskaupstað.
Hafnarbætur
í Neskaupstað
Í Neskaupstað var byggð hafskipabryggja. Landbryggjan er
samtals 47 metra löng frá jafnhæð í bakka, 8,0 metra breið og tekur þá við
bryggjuhaus, sem er sem næst þvert á landbryggjuna, 35 metra langur og 10 metra
breiður. Á efstu 38 metrunum er landbryggjan steypt og nær á 1,5 m dýpi við
stórstraumsfjöru, en fremstu 9 metrar hennar, svo og bryggjan í haus, er
staurabryggja. Utan við landbryggjuna, sambyggt við hana, var byggð uppfylling,
og er framveggur hennar við slórstraumsfjöruborð. Kostnaður við þetta verk mun
verða kr. 550-600 000.00.
Ægir. 38 árg. 2-4 tbl. 1 febrúar 1945.
13.10.2018 08:42
Skíðblaðnir VE 287.
Skíðblaðnir var fyrsti báturinn í Stokkseyrarferðum, þ.e. í áætlunarferðum milli Vestmannaeyja og Stokkseyrar með vörur og farþega. Það var Sigurjón Ingvarsson (í Skógum) ásamt Jóni í Látrum sem hófu þessar ferðir milli eyja og Stokkseyrar árið 1940. Hann tók vélbátinn Skíðblaðni VE á leigu af Helga Benediktssyni útgerðarmanni í Vestmannaeyjum það ár.
Skíðblaðnir VE 287. Ljósmyndari óþekktur. Mynd úr safni mínu.
Skíðblaðnir KE 10. Líkan Gríms Karlssonar skipstjóra. (C) Þórhallur S Gjöveraa.
09.10.2018 05:47
388. Emma VE 219.
Emma VE 219. Myndin er tekin á Ísafirði. (C) Byggðasafn Vestfjarða.
Emma GK 279. Líkan Gríms Karlssonar skipstjóra. (C) Þórhallur S Gjöveraa.
"Nú er glatt
í hverjum hól"
Myndarleg þrettándagleði var haldin í Hafnarfirði á
þrettándanum með bálför og álfadansi. Skátar í Hafnarfirði stóðu að
skemmtuninni og var hún þeim til hins mesta sóma. Um leið og kveikt var í
bálkestinum komu álfakóngur og drottning með fylktu liði inn á hátíðasvæðið og
var farið með ýmsum tilburðum og söng. Bálkösturinn var bátsflalk af Emmu RE
353, en hún var 16 tonn að stærð og smíðuð á Ísafirði 1919. Emma var eikarbátur
og fyrsti bátur sem Bárður G. Tómasson smíðaði á Íslandi eftir að hann kom heim frá námi í
Danmörku og Englandi, en Bárður var fyrsti
tæknimenntaði skipaverkfræðingurinn í íslenzkum skipasmíðum. Hann samdi
smíðareglur um smíði trébáta eftir að hann smíðaði Emmu og gilda þær reglur enn
í dag í grundvallaratriðum um smíði trébáta. Emma var lengi gerð út frá
Vestmannaeyjum, var seinna seld þaðan og fór þá víða. Æviskeið sitt endaði Emma
sem bálköstur á álfadansi Hafnfirðinga s.l. laugardag.
Morgunblaðið. 9 janúar 1968.
07.10.2018 09:14
B. v. Snorri Sturluson RE 242. LBFS.
B.v. Snorri Sturluson RE 242. Á myndinni ber hann sennilega sitt síðasta nafn, Girdleness H 782.
Snorri
Sturluson RE 242
Snorri Sturluson heitir nýr botnvörpungur er kom frá
Englandi nýlega. Er hann eign hf Kveldúlfs.
Ísafold. 6 desember 1920.
Togarar hf. Kveldúlfs í Reykjavíkurhöfn árið 1921-22. Þeir eru frá vinstri taldir; Þórólfur RE 134, Snorri Sturluson RE 242 og Skallagrímur RE 145. Fremstur er Egill Skallagrímsson RE 165.
(C) Helgi Sigurðsson.
Kveldúlfstogarar
á síldveiðar
Hf. Kveldúlfur er að gera út tvo botnvörpunga sína á
síldveiðar frá Hjalteyri, þá Snorra Sturluson og Egil Skallagrímsson. Ennfremur
fer vélbáturinn Þórir norður til síldveiða. Í ráði er að félagið sendi tvö skip
til veiða vestur um haf, Skallagrím og Þórólf.
Vísir. 19 júlí 1922.
Kveldúlfsskipin
Egill Skallagrímsson og Snorri Sturluson, eru væntanleg af
síldveiðum fyrri hluta dags á morgun. Egill Skallagrímsson hefir veitt liðlega
7 þúsund tunnur og Snorri lítið eitt minna.
Vísir. 9 september 1922.
- 1