Blogghistorik: 2018 Denna post är låst. Klicka för att öppna.
31.08.2018 19:52
Grimsbytogarinn Blackburn Rovers GY 706 í hrakningum við Austfirði.
Lenti í
röngum firði, stórskemmdi
bryggju og strandaði þrisvar sinnum
Brezkur togari, Blackburn Rovers GY-706, lenti í talsverðum
hrakningum á Austfjörðum í gær. Braut hann hafskipabryggju í Mjóafirði og er
það mikið tjón og skipið tók niðri að minnsta kosti þrisvar sinnum, en losnaði
af sjálfsdáðum. Verður að leggja fram tveggja milljóna króna tryggingu vegna
bryggju skemmdanna, til að togarinn fái að halda úr höfn á Norðfirði, en þar er
hann nú. Í dag rákust tveir brezkir togarar á út af Austfjörðum og er annar
þeirra nú í höfn á Norðfirði. Blackburn Rovers var á leið á Íslandsmið frá
Færeyjum, en þar var hann síðast í höfn í Klakksvík. Á leiðinni gerðu nokkrir
af áhöfninni uppsteit. Fjórir hásetar og annar vélstjóri neituðu að fara með
togaranum norður fyrir land til veiða, eða á þær slóðir sem brezku togararnir
fórust ekki alls fyrir löngu. Vildu þessir menn komast af skipinu. Ætlaði
skipstjórinn að láta þessa menn á land á Norðfirði, en hann villtist og lenti
fyrst í Mjóafirði. Þegar komið var til hafnar þar tókst ekki betur til en
togarinn sigldi á hafskipabryggjuna, sem er úr timbri, og stórskemmdi hana.
Einnig tók togarinn niðri tvisvar sinnum í Mjóafirði. Hafskipabryggjan í
Mjóafirði er byggð á staurum og var hún endurbyggð fyrir þremur árum síðan.
Togainn sigldi á talsverðri ferð á bryggjuna og hangir nú hluti henna laus, er
það um fimm sinnum fimm flatarmetrar af bryggjunni sem er laus. Einnig hefur
það sem eftir stendur af bryggjunni skekkst. Hefur nú verið lögð fram fyrir
rétti krafa um tveggja miljóna króna tryggingu vegna bryggjuskemdanna. Í
Mjóafirði bað skipstjórinn um að fá lóðs til Norðfjarðar en hann var þar ekki
fyrir hendi. Sigldi þá togarinn lóðslaus til Norðfjarðar og nú hitti hann á
réttan fjörð og kom þangað um kl. 21. í gærkveldi. Var þegar settur sjóréttur
yfir skipstjóranum vegna bryggjuskemmda í Mjóafirði. Skipstjórinn viðurkenndi
strax að hafa valdið skemmdunum, enda hafði hann samband við menn í landi í
Mjóafirði áður en lagt var þar úr höfn. Mjófirðingar telja að bryggjan sé ekki
nothæf eins og er og krefjast að sett sé tveggja milljón króna trygging áður en
togarinn heldur úr höfn. Munu skipverjarnir sem ekki vilja sigla lengur með
togaranum verða settir á land, á Norðfirði. Áður en togarinn lagði að bryggju á
Norðfirði kom hann við í fjörunni skammt fyrir sunnan bæinn.
Í dag varð árekstur milli tveggja brezkra togara út af Austfjörðum. Litlar
skemmdir urðu á öðrum togaranum en hinn varð að leita hafnar á Norðfirði og
verður gert við skemmdir hans þar.
Tíminn. 13 febrúar 1968.
28.08.2018 17:46
875. Ver KE 45.
26.08.2018 10:42
Seglskipið Skandia frá Marstal í hrakningum.
Skandia var smíðuð hjá Skibsbygmester Otto Hansen í Stubbeköbing í Danmörku árið 1902 fyrir B.R. Albert Hansen Petersen í Marstal í Danmörku. 183 brl. 103,7 ft. á lengd, 25,2 ft. á breidd og djúprista var 11 ft. Endalok Skandiu voru þau að það sigldi á tundurdufl hinn 5 júní árið 1940 og sökk. 6 skipverjar fórust.
Seglskipið Skandia í hremmingunum á Atlantshafi. Portrett mynd eftir Hans Andersen Hansen sem var skipverji á Skandiu þessa örlagaríku ferð. (C) Kulturarvsstrelsen.
Ægilegur
sjóhrakningur "Skandiu" af Marstal
Á þriðjudagskvöld var símað hingað, frá Vík í Mýrdal, að
þaðan sæist seglskip, í nauðum statt og þyrfti hjálpar við. "Njörður",
togari frá Reykjavík, var hjer staddur á leið til Englands. Hann brá við þegar
að vitja skipsins og kom með það hingað á miðvikudagsmorgun. Var það flutt inn
í Botninn svo nefndan, og liggur nú þar. Skipið heitir "Skandia", þrísigld
skonorta frá Marstal í Danmörku. Skipshöfnin er dönsk, skipstjóri heitir
Hansen. það var svo útleikið, er það kom, að á það vantaði tvö möstrin og
bugspjótið. Skjólborðið var brotið báðu megin um alla miðju skipsins, báturinn
farinn og allt aflaga, sem aflagast gat. Skipið var á leið til Spánar, með
fiskifarm, sem það tók hjá hf. "Kvöldúlfi" í Reykjavík, alls um 300
smálestir. Skandia" ljet í haf frá Rvík í lok janúarmánaðar. Hafði góðan
byr í vikutíma suður eftir Atlantshafi. þá gerði ofsastorm af útnorðri og fjekk
skipið áföll stór, missti bátinn o. fl. Var þá komið á 52. gr. N. Br. og 31.
gr. V. L., þ. e. suður á móts við Landsend á Englandi. Tíu dögum síðar gerði
annað ofviðrið af útnorðri með ægilegum sjógangi. Tók skipið brotsjó einn svo
mikinn að burt svifti möstrunum tveimur, bugspjótinu, skjólborðinu og einum
skipverja; hann náðist þó aftur alheill eftir einn fjórðung stundar. Úr því
tóku við sífeldir hrakningar. Enskt gufuskip hittu þeir fyrir sjer og vildi það
bjarga þeim, en það tókst ekki, því að vjelin í því var biluð. Sáu þeir enska
skipið um tíma á hrakningi skamt frá sjer, en vissu ekki hvað um það varð
síðast. Síðan reistu þeir upp stöng nokkra í stað framsiglu, gerðu sjer
seglbleðla eftir föngum og sigldu jafnan er tækt var. Fyrir nokkrum dögum sáu
þeir danskt seglskip fara skamt frá sjer í vesturátt, hugðu það vera á leiðinni
til Ameríku og báðust hjálpar með merkjum. En dólgurinn danski Ijet sem hann
sæi ekki nauðsyn landa síns, og hjelt leiðar sinnar. Sigldu þeir nú enn og
ætluðu að leita sjer bjargar á einhvern hátt, er þeir kæmu í nánd við Ísland. Nokkru af farminum urðu þeir að kasta
fyrir borð til þess að ljetta skipið. Vistir höfðu þeir nægar það sem til
þurfti. Að síðustu var afráðið að leita lands í Vík í Mýrdal, og það fór sem
áður segir, að þaðan voru boðin gerð hingað. Skipverjar voru furðu hressir
eftir allan þennan hrakning er þeir komu hingað 52 dögum eftir að þeir ljetu í
haf.
Skeggi. 22 tbl. 23 mars 1918.
25.08.2018 09:25
Hrönn GK 50.
Þilfarsbáturinn Hrönn GK 50. (C) Einar G Einarsson.
Bátasmíði í
Grindavík.
Pétur Vigelund er, nú að lúka við smíði í Grindavík á
vjelbát með þilfari, fyrir Einar yngra Einarsson frá Garðhúsum. Annan bát hefir
Vigelund í smíðum og byrjar bráðum á þeim þriðja. Útgerðin í Grindavík er að
breytast, því að eftir að bryggjan kom er hægt að hafa þar stærri báta og betur
útbúna báta en áður var. Nú er t. d. verið að setja þilfar í einn trillubátinn
og verður sennilega sett í fleiri báta. Nýlega hefir nýr bátur bæst í flotann í
Grindavík, eigandi Karl Guðmundsson. Þessi bátur er smíðaður hjer í Reykjavík,
er með stýrishúsi, og vjelahúsi. Í honum er 12-15 hestafla Scandiavjel.
Báturinn var rjettar 7 stundir á leiðinni hjeðan til Grindavíkur.
Morgunblaðið. 17 október 1934.
Bát rak á
land í óveðri
28.-29. marz rak vélbátinn »Hrönn«, eign verzlunar Einars G.
Einarssonar, á land í Grindavík og brotnaði, en við bátinn hefur verið gert.
Ægir. 1 maí 1935.
24.08.2018 10:14
Von VE 279.
Mótorbáturinn Von VE 279 var
smíðaður í (Álasundi ?) í Noregi árið 1919. Eik og fura. 26 brl. 60 ha. Finnoy
vél. Hét áður Dönning . Eigendur voru Vigfús Jónsson, Guðmundur Vigfússon, Jón
Vigfússon og Ingi Kristmannsson í Vestmannaeyjum frá 1928. Keyptur það ár frá
Noregi. Ný vél (1935) 80 ha. Skandía vél. Seldur 15 nóvember 1944, Svavari
Víglundssyni útgerðarmanni í Neskaupstað, hét Von NK 93. Svavar flutti til
Hafnarfjarðar árið 1952, sama nafn og númer. Talinn ónýtur og tekinn af skrá og
rifinn árið 1955.
26 ágúst árið 1939 var í síðasta
sinn farið til súlna í Eldey og mátti þá litlu muna að slys hlytist af.
Björguðust þá sjö menn sem í eyjuna fóru á síðustu stundu. Það voru þrettán
Vestmannaeyingar sem fóru þessa ferð á mótorbátnum Von VE 279. Það má
lesa um þetta björgunarafrek í Eldey í þrautgóðir á raunastund ll bindi, bls.
94.
Von VE 279 í Vestmannaeyjahöfn. Ljósmyndari óþekktur.
Von NK 93 á Norðfirði sumarið 1944. (C) Björn Björnsson.
21.08.2018 10:10
E. s. Vaagen. JLKW.
Ottó Wathne
og járngufuskipið "Vaagen"
Ísafold. 30 september 1891.
Ottó Wathne
kaupir "Vaagen"
Austri segir að Ottó Wathne muni búinn að kaupa gufuskipið
"Vaagen" fyrir 28.000 krónur.
Heimskringla. 9 apríl 1896.
20.08.2018 18:42
Ingólfur Arnarson RE 19. TFEQ.
Ingólfur
Arnarson RE 19
Nýr bátur frá Svíþjóð kom til Reykjavíkur í gær. Hefir hann
verið nefndur Ingólfur Arnarson RE 19. Báturinn er 91 smálest að stærð og var
verð hans um 500 þúsund krónur. Ágúst Snæbjarnarson hf í Reykjavík er eigandi
bátsins.
Vísir. 31 júlí 1946.
Síldveiðiskip
aðstoðuð
Hinn 13. þ. m. varð mb "Ingólfur Arnarson", RE 19,
fyrir vjelarbilun upp í Hvalfirði, er hann var að síldveiðum þar og hafði 800
mál síldar innanborðs. Bað skipstjórinn, Ágúst Snæbjarnarsson, um aðstoð, og
dró varðbáturinn "Faxaborg" "Ingólf" til Reykjavíkur. Hinn 18. þ. m.
brotnaði stýri á mb "Farsæli" AK 59, er hann var að síldveiðum í
Hvalfirði, og hafði 550 mál síldar innanborðs. Bað skipstjórinn, Jóhann
Guðjónsson, um aðstoð, og dró varð báturinn "Faxaborg" "Farsæl" til
Reykjavíkur.
Morgunblaðið. 21 febrúar 1948.
Björgun
skipshafnarinnar á Ingólfi Arnarsyni gekk vel
Dýptarmælirinn
sýndi 20 faða dýpi, skömmu áður en báturinn strandaði
Björgun skipbrotsmanna af vjelbátnum Ingólfi Arnarsyni, sem
strandaði í fyrrinótt, gekk mjög greiðlega. Tíu menn voru á bátnum, og bjargaði
björgunarsveitin frá Stokkseyri þeim öllum, og var björgunarstarfinu lokið
eftir um fjórar klukkustundir. Báturinn er talinn ónýtur. Ingólfur Arnarson
strandaði ekki við Knarrarósvita, eins og talið var í fyrstu, heldur skammt frá
Ragnheiðarstöðum, sem eru um fimm kílómetrum fyrir austan vitann. Björgunarsveitin
sem Helgi Sigurðsson stjórnar, fór á strandstað í þremur bílum. Við
Loftstaðahól var numið staðar og gengið þar upp, til að skyggnast eftir hinum
strandaða báti. Sáu menn hvar hann lá, og að því er virtist, alllangt frá
landi, skipbrotsmenn höfðu kynnt bál á hvalbak. Var nú haldið, eins og leið
liggur að Ragnheiðarstöðum, og síðar fram sandinn, sem var greiður yfirferðar,
vegna þess hve frosinn hann var. Klukkan mun hafa verið um þrjú, þegar komið
var niður í fjöruna. Snjeri báturinn stefni að landi og voru um 200 metrar út
að honum. Undirbúningur að sjálfu björgunarstarfinu gekk vel, og fyrsta
björgunarlínan hæfði skipið. Hófst þá skömmu síðar björgun mannana. Vegna þess
hve langt var út í skipið slakknaði svo á línunni, er mennirnir voru dregnir í land
í björgunarstólnum, að hver einasti þeirra fór á kaf í sjóinn. Skipstjórinn,
Ágúst Snæbjarnarson, yfirgaf síðastur skip sitt, nokkru fyrir klukkan átta. Á
strandstað var upphitaður bíll er mönnunum var hjúkrað í eftir þörfum. Enginn
þeirra var meiddur en kalt var þeim orðið enda talsvert frost Skipbrotsmönnunum
mun öllum hafa tekist að bjarga einhverju af fatnaði sínum og var hann dreginn
í land í björgunarstólnum.
Brim var nokkurt, og tilgangslaust að ætla sjer að setja bát á flot. Það varð
skipbrotsmönnum þessum til lífs, að þeir
skyldu bíða björgunarsveitarinnar í skipinu. Stokkseyringar telja ekki líkur
til þess, að Ingólfi Arnarsyni verði bjargað. Báturinn liggur á skeri, og er
botn hans nokkuð brotinn. Skipstjóri var enn þar eystra í gærkveldi, og nokkrir
af mönnum hans. Á vjelbátnum voru þessir menn:
Ágúst Snæbjarnarson skipstjóri. Laugaveg 135,
Sveinn Magnússon stýrimaður, Skipasundi 17,
Jón Jónasson 1. vjelstjóri, Mávahlíð 9,
Hilmar Valdimarsson 2. vjelstjóri, Kamp Knox G-6,
Jóhann Í. Guðmundsson matsveinn, Lindargötu 63,
Halldór Karlsson háseti, Hofteigi 6,
Guðjón Einarsson háseti, frá Moldnúpi Rangárvallasýslu
Ágúst Steindórsson, háseti Ási í Hrunamannahreppi
Björn Jónsson, háseti, Hofsósi,
Magnús Jónsson háseti, Höfðaborg 51
Björgvin Guðmundsson, háseti, frá Hólmavík.
Skipbrotsmenn hafa skýrt svo frá, að þeir hafi verið á siglingu er báturinn
strandaði, og hafi dýptarmælirinn sýnt 20 faðma dýpi, rjett í þann mund er
báturinn strandaði.
Morgunblaðið. 15 mars 1950.
18.08.2018 10:13
S. t. Marconi H 777.
Skipströnd
Tveir útlendir botnvörpungar hafa strandað í
Skaftafellssýslu snemma í þessum mánuði. Öðru strandinu olli ásigling annars
botnvörpungs, braut hann gat á skipið, svo það varð að hleypa til lands á
Hvolsfjöru í Mýrdal. Það skip var þýzkt og hét Brandenburg. Einn maður druknaði
af því skipi, en 11 björguðust.
Hitt skipið var enskt og hét Marconi, Það strandaði fram undan Fagurhólsmýri í
Öræfum. Þar björguðust allir mennirnir, 18, og eru 5 af þeim íslendingar.
Enn strandaði botnvörpungur 18. þ. m. við Fossfjöru á Síðu. Menn björguðust.
Fjallkonan. 11 tbl. 27 mars 1909.
15.08.2018 09:27
Kirkella H 7. MACF3.
Kirkella H 7 við bryggju á Akureyri í gærkvöldi. (C) Haukur Sigtryggur Valdimarsson.
Kirkella H 7. (C) Haukur Sigtryggur Valdimarsson.
Dótturfélög Samherja í Evrópu. Heimasíða Samherja hf.
Erlend
starfsemi Samherja
Samherji hefur tekið þátt í
sjávarútvegi í öðrum löndum frá árinu 1994, eitt sér eða í samstarfi með öðrum.
Samherji á hlut í og tekur virkan þátt í rekstri nokkurra útvegs- og
fiskvinnslufyrirtækja í Evrópu og frá árinu 2007 teygir erlend starfssemi
sig einnig til Afríku. Erlend starfsemi er rúm 55% af
heildarstarfsemi félagsins.
Af heimasíðu Samherja hf.
14.08.2018 10:05
576. Hrafn Sveinbjarnarson MB 85.
Bjarni
Ólafsson útgerðarmaður
Smíði bátsins var hafin 1913 og var óvenjulega traustbyggður og svaraði fullkomlega kröfum tímans, kom hann fullbúinn til fiskveiða til Akraness 2. marz 1914. Þá var stýrishús bátsins fram undir miðju dekki, en var við næstu vélaskipti fært aftur þar sem það er nú, aftur við mastur. Bjarni var sjálfur formaður á bátnum og enda þótt nú þætti Hrafninn ekki sjófært skip með 20 hk. vél, sótti Bjarni sjóinn fast. Fór hann til viðlegu í Sandgerði á vetrarvertíðum en í útilegur undir Jökul síðari hluta vertíðar og á vorin Þótti honum ekki gaman að koma heim nema með hlaðið skip, og var oft vel látið í. Á síldveiðar fór hann á sumrin á snurpu, þó lítill væri. Þannig var hann á móti Nönnu úr Hafnarfirði 1916. Bjarni var lengi skipstjóri á Hrafni og síðar lengi Jón bróðir hans.
1939 var báturinn seldur Ólafi G. Einarssyni í Keflavík. Hrafn Sveinbjarnarson var hin mesta happa- og gæðafleyta og færði Akurnesingum margan ugga á land. 1915 lét Bjarni byggja fyrstu steinbryggju, sem byggð var í Lambhússundi, var það örlítið sunnar en steinbryggjan, sem þar er nú. Var hún byggð fram af tveim skúrum, er hann lét reisa þar áður, en þar stendur nú fiskhús B. Ólafsson & Co. Mynd sú, sem hér fylgir af Hrafni er með stýrishúsinu í sinni upphaflegu mynd, og liggur hann þar við þessa bryggju.
Akranes. 6 tbl. 1 júní 1943.
Þættir úr sögu Akraness lll.
Sjávarútvegurinn.
Ól. B. Björnsson.
12.08.2018 10:48
B. v. Brimir NK 75 að landa síld í Fóðurmjölsverksmiðju Norðfjarðar sumarið 1936.
Togarinn Brimir NK 75 að landa síld í Fóðurmjölsverksmiðjuna 1936. Úr safni Salgerðar Jónsdóttur.
"Gúanó"
verksmiðjan
Þýsk-norskt fjelag er nú byrjað á byggingu stórrar
"gúanó-verksmiðju" hjer á Norðfirði. Er henni ætlað fyrst um sinn að vinna
mjöl úr þorskúrgangi, hausum og hryggjum og er svo ráð fyrir gert, að
þorsk-úrgangar frá öðrum fjörðum hjer eystra, verði fluttur hingað og malaður
hjer, og mun skip verða haft í förum til þeirra flutninga. Er svo sagt, að
reist muni verða þrjú hús, verksmiðjan, geymsluhús og íbúðarhús forstjóra, auk
þess á að byggja bryggju og önnur "plön" tilheyrandi verksmiðjunni. Er svo
til ætlast, að byggingu verði lokið í júnímánuði n. k. Er stundir líða, mun
fjelagið einnig hyggjast að koma upp síldarbræðsluverksmiðju, ef síldveiði
glæðist hjer eystra og mun jafnvel í ráði, að hafa litla "síldarpressu" nú
þegar, svo hægt verði að veita viðtöku því er veiðast kynni í sumar. Blaðið
hefir átt tal við forstjórann, hr. Joakim Indbjo, og spurt hann um, hvort
nokkrir útlendingar mundu teknir til vinnu við verksmiðjuna og hefir hann lýst
því yfir, að svo muni ekki verða, nema ekki yrði hægt að fá íslenska vjelamenn
og verkstjóra, þá mundu Norðmenn verða til þess teknir. Verksmiðjan mun því
verða reist og starfrækt með íslenskum vinnukrafti eingöngu, enda væri annað óverjandi
í því atvinnuleysi, sem nú er hjer á Austfjörðum.
Fiskimjölsverksmiðja
Norðfjarðar
Fóðurmjölsverksmiðja Norðfjarðar er nú tekin til starfa. Með
sönnu verður eigi annað sagt en að fljótt og vel hafi gengið að reisa
verksmiðjuna, þar sem eigi var byrjað að vinna þar fyr en eftir nýár, en nú
getur að líta þar á lóðinni myndarlegt íbúðárhús, vjelahús úr stáli og
bárujárni ásamt geymsluhúsi. Auk þessa hafa reistir verið pallar (plön) og
hafskipabryggja byggð. Fyrir byggingum þessum hefir staðið framkvæmdastjóri
verksmiðjunnar, hr. J. Indbjör, en hann hefir haft sjer til aðstoðar erlenda
sjerfræðinga við járnhúsagerðina og vjelaniðursetninguna. Bendir allt á, að
örugg hafi forystan verið. Og verkstjórar og vinnulýður verið samtaka, enda mun
þar ríkt hafa friður og eindrægni og full samúð allra aðila. Hefir verkamönnum
þessa þorps orðið hinn besti styrkur að byggingarvinnu þessari, enda munar um
minna. Verksmiðjan hefir áræðanlega greitt verkalaun inn í þorpið svo þúsundum
króna skiftir. Þar að auki kaupir hún fiskiúrgang, hausa og dálka, og þó að þar
sje ekki um stóran tekjustofn að ræða, þá horfir það samt til hagabóta
sjómönnum, og afarmikils hreinlætisauka í bænum. Einnig má telja víst, að sjómennirnir muni í
tómstundum sínum taka að stunda hjer upsaveiði, því að markaðinn skortir eigi
lengur, verksmiðjan kaupir upsann. Vel mætti vera að nokkrar tekjur mætti af
slíkri veiði hafa, því að oft er fjörðurinn fullur af smáupsa á sumrin og
framan af vetri. Það er vonandi að iðnaðarfyrirtæki þetta verði alþýðu manna
bæði hagfelt og hugfelt, og í fullu trausti þess að svo reynist, óska jeg því
góðs gengis.
Jafnaðarmaðurinn. 2 júlí 1927.
Botnvörpungurinn Brimir NK 75. LBMQ
/ TFXC. Smíðaður hjá Cochrane & Sons Ltd í Selby á Englandi árið 1920 fyrir
breska flotann. Hét þar Simeon Moon. Smíðanúmer 897. 314 brl. 550 ha. 3 þennslu
gufuvél. Seldur sama ár, Hellyers Bros Ltd í Hull, hét General Rawlinsson H
173. Seldur 13 september 1924, Fiskveiðahlutafélaginu Víði í Hafnarfirði, hét
Ver GK 3. Skipið var selt 4 september 1931, h/f Ver í Reykjavík, hét Ver RE
32. Selt 18 apríl 1936, Togarafélagi Neskaupstaðar í Neskaupstað, hét Brimir NK
75. Seldur 29 júlí 1939, Hlutafélaginu Helgafelli í Reykjavík (Skúli
Thorarensen), hét þar Helgafell RE 280. Selt 15 júní 1945, Hlutafélaginu
Hrímfaxa í Reykjavík og Hlutafélaginu Sviða í Hafnarfirði, skipið hét Skinfaxi
GK 3. Skipið var selt til Færeyja í ágúst 1947, hét þar Miðafell FD 69.
Togarinn var seldur í brotajárn til Antwerpen í Belgíu og rifinn þar í október
árið 1951.
Áhöfnin á togaranum Brimi NK 75 sumarið 1937. Úr safni Gunnars Þorsteinssonar.
5-6
þúsund mál af síld veiddust í gær
á Húnaflóa, við Skaga og Langanes
Togarinn
Brimir fékk 1.700 mál
Síldarflotinn
er nær allur á leið til Langaness
Mikil síld veiddist í gær á Húnaflóa, við Haganesvík og við
Langanes. Munu hafa veiðst að minsta kosti 5-6 þúsund mál alls á þessum slóðum.
Mestan afla fékk Bæjarútgerðartogarinn "Brimir" frá Norðfirði,1.700 mál.
Mest allur síldveiðaflotinn mun nú vera á leiðinni austur undir Langanes.
Sólskin og ágætt síldarveður var fyrir Norðurlandi í fyrradag og í gær og í gær
komu mörg síldveiðaskip inn til Síldarverksmiðjanna á Norðurlandi, Siglufirði,
Dagverðareyri og Djúpuvíkur. Höfðu þau flest fengið síldina á Húnaflóa og við
Haganesvík. Til Siglufjarðar komu í nótt Freyja með 500 mál, Alden með 400 mál,
Hringur með 700 mál, Fáfnir með 750 mál og Vébjörn með 250 mál. Auk þess komu
nokkur önnur skip með minna. Sildin er nú mun feitari en áður og er meðalfita á
þeirri síld, sem mæld var í gær á Siglufirði um 15% en feitasta síld, sem mæld
var var 17%. Til Dagverðareyrar komu í gær línuveiðarinn Langanes með 250 mál.
Er það fyrsta skipið, sem leggur upp síld í þeirri verksmiðju í ár, en búizt
var við þremur skipum þangað í morgun. Þau skip höfðu einnig fengið síldina á
Húnaflóa og við Skaga. Til Djúpuvíkur kom í gær Surprise með 240 mál, en von
var í dag þangað á togaranum Ólafi með 150 mál, sem hann hafði fengið í nótt og
Garðari með 300 mál.
Togarinn Brimir frá Norðfirði, eign bæjarins, kom til Norðfjarðar í morgun og
landar þar í dag 1.700 mál, sem hann hafði fengið við Langanes í gær. Er það
mesti síldarafli sem eitt skip hefir fengið sem og fyrsti afli sem kemur til
síldarverksmiðjunnar á Norðfirði. Eftir því sem frést hefir mun
síldveiðaflotinn nú yfirleitt halda austur að Langanesi og mun verksmiðjan á
Raufarhöfn verða tilbúin að taka á móti síld eftir fáa daga. Flest skip, sem
ætla að stunda síldveiðar í sumar eru nú farin á veiðar og munu þegar vera komin
um annað hundrað skip til veiðanna. Véíbáturinn Eggert frá Sandgerði kom í gær
til Keflavíkur með 80 tunnur af síld til frystingar í frystihúsi hlutafélags
Keflavíkur. Síldin veiddist í reknet síðastliðna nótt 15 sjómílur í vestur frá
Sandgerði. Skipstjórinn áleit mikla síld á þeim slóðum. Síldin er talin eins
góð eða betri en síld sú er veiddist síðari hluta síðastliðins hausts.
Alþýðublaðið. 23 júní 1936.
11.08.2018 11:16
Hákarlaskipið Hríseyjan EA 10.
Hákarlaskipið Hrísey á Oddeyrartanga á Akureyri. Þar stóð það lengi. Ljósmyndari óþekktur.
Hákarlaskipin
"Hríseyja" og "Oddeyri"
Undirskrifaður hefir umboð til að selja 2 nýleg góð
hákarlaskip, "Hríseyja" og "Oddeyri" ásamt öllum útbúnaði til
hákarlaveiða í bezta lagi. Bæði skipin standa her á Oddeyri. Lysthafendur geta
snúið sér til mín og fengið að vita um skipin og hvað þeim fylgir, og með hvaða
skilmálum þau verða seld.
Oddeyri 12. okt 1888.
J. V. Havsteen.
Lýður. 17 október 1888.
Hákarlaskipið Hrísey EA 10. Sjá má í Aage EA 13 aftan við Hríseyna. Ljósmyndari óþekktur.
Hákarlaskipið
Hríseyjan
Hákarlaskipið "Hríseyjan" eign C. Höepfners, kom í
gærmorgun hér inn á höfnina aflalaus. Skipið var komið á hákarlamið er
ofsarokið á vestan skall á þann 3. þ. m. hleypti þá til Grímseyjar og lagðist
austan við eyjuna við aðalakkeri sitt. Eftir stutta stund slitnaði keðjan, og
tapaðist þannig akkerið og talsvert af keðju. Skipið lagðist síðan við
vara akkeri sitt og keðju, sem hvorttveggja var fremur grant, og þorðu
skipverjar því ekki að treysta því eingöngu, heldur lágu við stjórafærið líka.
Í þessum festum hékk skipið unz rokinu létti, og vindurinn gekk lítið eitt til
norðurs; þá var í ráði að komast á Eyjafjörð, en þegar komið var lítið eitt frá
eyjunni, skall á sami vestan ofsinn aftur, svo skipið náði hvorki Eyjafirði né
Flatey. Því var þá lagt til hafs, en brátt sáu skipverjar sitt óvænna, sneru
við og komust við illan leik inn á Húsavík. Náðu þar í skipafestir
verzlunarinnar og Iágu við þær óhultir, þar til á miðvikudagsmorguninn, var þá
komið bezta veður, og var þá lagt á stað áleiðis hingað. Ís sáu skipverjar
engan og vissu ekki neitt um önnur hákarlaskip.
Norðurland. 29 tbl. 11 apríl 1903.
Hákarlaskipið Hríseyjan EA 10. Líkan Gríms Karlssonar. (C) Þórhallur S Gjöveraa.
"Blikaði
voðin, kári söng"
Skip undir seglum er fögur sjón. Ég minnist fiski- og
hákarlaskipanna, sem sigldu út og inn Eyjafjörð í mínu ungdæmi, undir hvítum
eða rauðbrúnum seglum. Stórar þrímastraðar flutningaskútur sáust einnig auk
hinna fjölmörgu litlu fiskibáta, róandi eða siglandi, og svo kváðu við
skellirnir í öslandi mótorbátum. Lítum á eyfirskt hákarlaskip. Um skeið færði
hákarlinn drjúga björg í bú, meðan lifrin og lýsið voru í háu verði. Beitt var
m.a. selspiki og úldnu hrossakjöti. Veiðarfærin ekkert smásmíði, þ.e. sókn
(öngull), járnfesti og vaður. Ennfremur krókur (ífæra). Venjulega leyndi sér
ekki ef hákarl beit á, en komið gat fyrir að hann hreyfði sig svo lítið að
vaðarmaður varð einskis var fyrst í stað, og dró að lokum upp bitinn, jafnvel
halfstýfðan skrokk. Höfðu þá aðrir hákarlar ráðist á hinn öngulfasta. Þegar
búið var að innbyrða hákarl, var hann umsvifalaust ristur á kvið til lifrar með
breddu mikilli, hákarlaskálminni. Lifrin var aðalverðmætið, en flestum skrokkum
var fleygt. Fáeinir þó hirtir til kæsingar og matar. Mikill hugur var í
hákarlamönnum og gengu þeir berserksgang í aflahrotum. Þótti slæmt að vera
sleppifengur, sbr. vísuna sem Guðni gamli spekúlant söng við fiskasteininn:
"Hákarlinn eg missti minn,
mikil voru óhöppin
Ofan í kórinn ufsa inn,
illa fór hann gráni minn."
Hákarl var fyrrum algengur matur með brauði og harðfiski, bæði glær hákarl (af
kviðnum) og hinn mjúki bragð- og lyktarsterki skyrhákarl. Börn og óvanir kusu
glæran hákarl. Jafnan vildu menn láta hákarlsbeitur hanga lengi uppi og töldu
að þá fyrst yrði hann góður matur. Stöku sinnum var gerð stappa úr nýjum, ungum
hákarli (gotum), en óhollt þótti að éta mikið af henni. Guðmundur Hannesson
læknir kvað vel verkaðan hákarl góðan gegn sumum magakvillum. Viss óholl efni
munu hverfa við kæsinguna. Guðmundur taldi kæsingarstaði mjög misgóða og færi
það sennilega eftir gerla- og sveppagróðri í bælunum. Var kæst vor eftir vor á
sama staðnum ef vel reyndist. Sumir hákarlar eru etnir erlendis, en ekki veit
ég hvort kæsing er notuð annars staðar en á Íslandi? Amerískur prófessor hafði
frétt af Íslenskri hákarlsverkun og bað um sýnishorn og lýsingu. Fékk hvort
tveggja, bauð til sín gestum (prófessorum og læknum) og lét bera hakarl á borð.
Aðeins tveir þorðu að bragða hnossgætið og létu allvel yfir. Hinum þótti
svakalegt að heyra að hákarlinn hefði verið grafinn i jörð og látið slá í hann,
þeir þorðu ekki að smakka, fussuðu bara! Talið var að menn yrðu sterkir af
hákarlalýsi, sumir unglingar supu á því sjálfrunnu til að verða hraustir.
Það var hörkulegt lif og lítil þægindi um borð í hákarlaskipum, þetta 15 - 20
smálestir að stærð. Nokkur þó 20 - 30 smálestir, keypt frá Noregi. Einna flest
munu hákarlaskipin hafa verið í Eyjafirði og Siglufirði frá 1883 - 1900. Eftir
það fór að draga úr útgerðinni.
Tíminn. 11 febrúar 1982.
Ingólfur Davíðsson.
08.08.2018 19:20
Trollið tekið á gömlum gufutogara.
Ver GK 3. LBMQ / TFXC. Smíðaður hjá
Cochrane & Sons Ltd í Selby á Englandi árið 1920 fyrir breska flotann. Hét
þar Simeon Moon. Smíðanúmer 897. 314 brl. 550 ha. 3 þennslu gufuvél. Seldur
sama ár, Hellyers Bros Ltd í Hull, hét General Rawlinsson H 173. Seldur 13
september 1924, Fiskveiðahlutafélaginu Víði í Hafnarfirði, hét Ver GK 3. Skipið
var selt 4 september 1931, h/f Ver í Hafnarfirði, hét Ver RE 32. Selt 18 apríl
1936, Togarafélagi Neskaupstaðar í Neskaupstað, hét Brimir NK 75. Seldur 29
júlí 1939, Hlutafélaginu Helgafelli í Reykjavík (Skúli Thorarensen), hét þar
Helgafell RE 280. Selt 15 júní 1945, Hlutafélaginu Hrímfaxa í Reykjavík og
Hlutafélaginu Sviða í Hafnarfirði, skipið hét Skinfaxi GK 3. Skipið var selt
til Færeyja í ágúst 1947, hét þar Miðafell FD 69. Togarinn var seldur í
brotajárn til Antwerpen í Belgíu og rifinn þar í október árið 1951.
07.08.2018 09:24
554. Hávarður ÍS 160. TFDX.
Vélbáturinn Hávarður ÍS 160. (C) Snorri Snorrason. Úr safni Atla Michelsen.
Nýr bátur
til Súgandafjarðar
Súgfirðingum bættist glæsilegur vélbátur 29. f. m. Hann
heitir Hávarður og hefir fengið einkennistölu ÍS-160. Eigandi bátsins er ísver
h.f. Hávarður er 76 rúmlestir, eikarbátur, smíðaður í Brensodda í Vejle. Guðni
Jóhannsson sigldi bátnum heim, en skipstjóri verður Kristján Ibsen, vélstjóri
Guðmundur Jónsson. Hávarður byrjar vertíð í þessari viku. Hann er búinn öllum
nýtízku tækjum og er hið fríðasta skip.
Vísir. 5 febrúar 1960.
Hávarður ÍS 160 á strandstað á Meðallandssandi í apríl 1967. Ljósmyndari óþekktur.
Bátur
strandar á Meðallandssandi
Mannbjörg
varð
Líkur að bjarga megi bátnum
Vélbáturinn Hávarður ÍS-160 sem er 77 tonn að stærð,
strandaði um kl. 11 í fyrrakvöld skammt vestan við Eldvatnsós á
Meðallandssandi. Báturinn sendi þegar út neyðarkall og barst
Slysavarnarfélaginu í Reykjavík tilkynning um strandið kl. 11:10. Eftir fyrstu
staðarákvörðun bátsins var álitið, að hann væri strandaður skammt austan
Mýrnatanga við Álftaver og var því björgunarsveitin í Álftaveri þegar kölluð
út, en henni til aðstoðar björgunarsveitirnar í Meðallandi og Mýrdal. Í ljós
kom litlu síðar, að báturinn var strandaður á allt öðrum stað, því að tilkynnt
var frá bænum Fljótum að glampi frá ljóskastara sæist við ströndina, skammt
vestan við Eldvatnsós. Voru þá björgunarsveitirnar frá Álftaveri og Mýrdal
kallaðar aftur, en björgumarsveitin í Meðallandi fór á vettvang. Gekk björgunin
mjög greiðlega og var öll áhöfn bátsins, sem er sex menn, komin í land um kl.
4. Áformað er að reyna að ná bátnum út og var varðskip komið á strandstað í
gær, og átti að gera tilraun til að draga bátinn út. Mbl. átti í gær stutt
símtal við Sigurgeir Jóhannsson, formann björgunardeildarinnar í Meðallandi, og
bað hann að lýsa björgunarstarfinu.
Sigurgeir kvað björgunardeildina hafa fengið tilkynningu um strandið um kL
11:30, og var þá haldið að strandstaðurinn væri skammt frá Mýrnatanga. Það var
þó frjótlega leiðrétt, og hélt þá björgunarsveitin þegar áleiðis að hinuim
rétta stað. Kafaldsmugga var og tafði nokkuð förina, en þeir sem áttu styðzt að
fara voru komnir á strandstaðinn um tvö leytið, en hinir, sem lengra þurftu að fara,
laust fyrir kl. 3. Báturinn var þá komin mjög nærri landi sagði Sigurgeir, en
skipverjar höfðu látið línu reka að landi og þurftum við því ekki annað en
ganga frá björgunartækjum. Tókum við mennina í land í björgunarstól, og hefur
það ekki tekið nema 10-15 mínútur að bjarga allri áhöfninni. Ég tel miklar
líkur á þvi að hægt sé að bjarga bátnum, því að hann liggur réttur fyrir og
snýr stefni í land. Þarna er aðeins um að ræða mjúkan sand, og er því lítil
hætta á að báturinn brotni, nema að aftökuveður geri, sagði Sigurgeir að
endingu. Ekki liggur Ijóst fyrir með hvaða hætti báturinn strandaði, en sem
fyrr segir var mikil snjókoma og skyggni ákaflega slæmt Skipbrotsmennirnir sex
voru allir fluttir að Bakkakoti, þar sem Sigurgeir býr, og voru þeir þar yfir nóttina.
Í gærmorgun fór svo skipstjórinn, Magnús Stefánsson, ásamt tveimur mönnum á
strandstaðinn til að athuga allar aðstæður til björgunar.
Morgunblaðið. 23 apríl 1967.
06.08.2018 11:23
Snorri Sturluson NK 11.
- 1
- 2