23.07.2017 09:30
488. Guðrún ÍS 97.
Tvö nýbyggð
skip hjá Marselíusi
Nýlega eru hlaupin af stokkunum í skipasmíðastöð Marselíusar
Bernharðssonar, tvö skip, Sigurgeir, 62 smálestir, og Guðrún, 10 smálestir.
Sigurgeir er Phönix gamli "aukin og endurbætt útgáfa", og er skipið eign
Ólafs Guðmundssonar í Keflavík. Guðrúnu á Vísir í Súðavík. Þá er fullsmíðuð ný
Dís fyrir Njörð, og heitir hún Jódís. Á að fara að setja í hana vélina. Þá er
Marselíus að smíða tvo 16 smálesta báta og í þann veginn að hefja smíði á 45
smálesta skipi. Hefir hann dregið að sér geysimikið af efni í skip, svo að ekki
mun hann skorta það fyrst um sinn.
Skutull. 18 september 1942.
Nauðstöddu
skipi komið til hjálpar
Í hádegisútvarpi í gær sendi Slysavarnafélagið tilkynningu
til skipa er væru nærri Horni um að vélskipið Guðrún ÍS 97 frá Súðuvík væri
hjálparþurfi 4 sjómílur norðaustur af Horni. Guðrún hefur talstöð og gerði
loftskeytastöðinni á Ísafirði aðvart, en þá var enginn bátur í landi, sem gat
farið út henni til hjálpar. En skip sem var að koma norðan frá Eyjafirði, nafn
þess vissi skrifstofa Slysavarnafélagsins ekki, heyrði útvarpstilkynninguna,
kom Guðrúnu til aðstoðar og dró hana til Ísafjarðar.
Þjóðviljinn. 22 ágúst 1947.