17.09.2015 20:57

Karlsefni RE 24.TFKD.

Karlsefni RE 24.ex John Dutton LO 514.Smíði númer 230 hjá Ferguson Shipbuilders Ltd í Glasgow í Skotlandi árið 1918.323 brl.600 ha.3 þjöppu gufuvél.Firmað,Geir & Th.Thorsteinsson kaupa togarann í desember árið 1924,fær nafnið Karlsefni RE 24.Í september 1941 er skráður eigandi h/f Karlsefni í Reykjavík.Togarinn var seldur P/F Garðari í Vogi í Færeyjum árið 1946,hét Beinisvar TG 785.Seldur til Odense í Danmörku og rifinn þar í desember árið 1956.     
                                                                                                           Ljósm: Guðbjartur Ásgeirsson. 
Flettingar í dag: 2849
Gestir í dag: 52
Flettingar í gær: 4200
Gestir í gær: 16
Samtals flettingar: 2248840
Samtals gestir: 97873
Tölur uppfærðar: 17.3.2026 20:21:42