29.09.2015 21:18
Sviði GK 7.TFPC.
Sviði GK 7.Smíði númer 231 hjá Ferguson Shipbuilders í Glasgow í Skotlandi árið 1918 fyrir Breska flotann,hét Nicholas Dean.328 brl.650 ha.3 þjöppu gufuvél.Seldur Gournay-Delpierra & Cie í Boulougne í Frakklandi árið 1923,hét hjá þeim Notre Dam.Seldur Boston Deep Sea Fishing & Ice Co í Grimsby árið 1925.Togarinn hét Willougby hjá þeim.Seldur Sviða h/f í Hafnarfirði árið 1928,hét Sviði GK 7.Togarinn var talinn hafa farist í Kolluál út af Öndverðarnesi á Snæfellsnesi,2 desember 1941 með allri áhöfn 25 mönnum
. Ljósm: Óþekktur.

Myndin hér að neðan er af togaranum Sviða GK 7 ásamt fleiri skipum í slippnum í Reykjavík í júlímánuði árið 1941.Togarinn fórst svo 5 mánuðum seinna með allri áhöfn.Myndin er ein fárra litljósmynda sem til eru frá þessum tíma.
Ljósm: Óþekktur.Myndin er úr Bandaríska Þjóðskjalasafninu.
Skrifað af Þórhalli S Gjöveraa.
Flettingar í dag: 1257
Gestir í dag: 115
Flettingar í gær: 421
Gestir í gær: 22
Samtals flettingar: 1191659
Samtals gestir: 83671
Tölur uppfærðar: 31.3.2025 22:18:30