18.01.2016 12:24
2882. Víkingur AK 100.
Víkingur AK 100 var smíðaður hjá skipasmíðastöðinni Celiktrans Deniz Insaat Ltd í Tyrklandi fyrir H.B.Granda h/f. 3.670 brl. 4.500 Kw Wartsiila díesel vél. Skipið er 81,19 m á lengd og 17 m á breidd. Ég tók þessar myndir af honum í Sundahöfn í gær þegar hann var að taka nótina um borð og hefur haldið fljótlega til veiða eftir það. Víkingur er hið glæsilegasta skip á að líta og megi gæfa og gifta fylgja því og áhöfn þess hvert sem það fer.
Víkingur að taka nótina um borð. (C) Mynd: Þórhallur S Gjöveraa.
2882. Víkingur AK 100. (C) Mynd: Þórhallur S Gjöveraa.
Víkingur AK 100. (C) Mynd: Þórhallur S Gjöveraa.
Víkingur AK, glæsilegt skip. (C) Mynd: Þórhallur S Gjöveraa.
Víkingur AK 100. (C) Mynd: Þórhallur S Gjöveraa.
Þessa grein hér fyrir neðan er á vef Akraneskaupstaðar.;
Í
tilefni af komu Víkings AK 100 til Akraness var haldin móttökuathöfn á
bryggjunni í Akraneshöfn 21. desember. Fjöldi fólks var mætt til þess að líta
nýtt skip augum. Vilhjálmur Vilhjálmsson forstjóri HB Granda setti athöfnina og
bauð gesti velkomna og sagði frá skipinu sem er annað tveggja nýrra
uppsjávarskipa sem HB Grandi tekur í notkun á þessu ári. Víkingur sem er 81,19
metra langur og 17 metrar á breidd var smíðaður í skipasmíðastöðinni Celiktrans
Deniz Insaat Ltd í Tyrklandi. Einar Guðfinnsson forseti Alþingis flutti ávarp
og fjallaði um um mikilvægi fiskveiðistjórnunarkerfisins fyrir sjávarútveg á
Íslandi og Karlakórinn Svanir sungu frumsamið lag eftir Valgerði Jónsdóttur um
systurnar söltu. Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri ávarpaði því næst samkomuna
og sagði frá sögu Víkings sem er samofin sögu sjávarútvegs á Akranesi en skipið
er það fjórða á Akranesi sem ber nafnið Víkingur. Hún færði Alberti Sveinssyni
skipstjóra gjöf frá Akraneskaupstað, málverk af gamla vitanum á Breið eftir
myndlistarmanninn Bjarna Þór. Regína sagði við afhendingu gjafarinnar að myndin
væri táknræn þar sem vitinn ætti að vísa veginn heim. Steinunn Ósk gaf skipinu
nafn með hefðbundnum hætti og séra Eðvarð Ingólfsson sóknarprestur blessaði
skipið og áhöfnina. Haraldur Böðvarsson lét smíða skip með nafninu Víkingur MB 2, í Lambhúsasundi á Akranesi
árið 1913 og var það ásamt Val MB 1 fyrstu skipin sem voru smíðuð þar. Nýr
Víkingur kom svo tuttugu árum síðar eða 1933 en þá keypti fyrirtækið nýtt skip,
Heimaey sem var smíðað í Friðrikssundi í Danmörku og skírði það Víking MB 80.
Þriðja skipið með þessu nafni, Víkingur AK 100 kom til heimahafnar í október
1960 en hann var smíðaður í Bremerhaven í Þýskalandi.
Skrifað af Þórhalli S Gjöveraa.
Flettingar í dag: 326
Gestir í dag: 59
Flettingar í gær: 276
Gestir í gær: 42
Samtals flettingar: 1057972
Samtals gestir: 76542
Tölur uppfærðar: 3.12.2024 17:27:57