18.04.2016 10:07
Gufuvélin og vélarúmið í togaranum Ver GK 3 frá Hafnarfirði.
Gufuvélin í togaranum Ver GK 3, 550 ha. 3 þjöppu var trúlega smíðuð hjá Amos & Smith Ltd í Hull ásamt gufukatlinum. Á myndinni hefur vélstjórinn stillt sér upp fyrir ljósmyndarann sem var Guðbjartur Ásgeirsson matsveinn á togaranum til margra ára. Myndin er tekin árið 1924. Ver GK 3 var smíðaður hjá Cochrane & Sons Ltd í Selby árið 1920 og var 314 brl. að stærð, í eigu Fiskveiðahlutafélagsins Víðis í Hafnarfirði.
Gufuvélin í Ver GK 3. Ljósm: Guðbjartur Ásgeirsson.
Togarinn Ver GK 3 við bryggju á Seyðisfirði. Ljósm: Guðbjartur Ásgeirsson ?
Skrifað af Þórhalli S Gjöveraa.
Flettingar í dag: 248
Gestir í dag: 35
Flettingar í gær: 2446
Gestir í gær: 98
Samtals flettingar: 1074626
Samtals gestir: 77510
Tölur uppfærðar: 26.12.2024 19:09:21