27.04.2016 10:56
E.s. Edda l. TFCB.
Edda l var smíðuð í Wesermunde í Þýskalandi árið 1921. 1.026 brl. 550 ha. 3 þjöppu gufuvél. Hét áður Eduard. Eigandi var h/f Eimskipafélagið Ísafold í Reykjavík frá 25 september 1933. Edda var í förum milli Íslands og Evrópulanda og kom víða við á innlendum höfnum. Hún flutti bæði stykkja og þungavörur í heilum förmum. Skipið strandaði á Bakkafjörum vestan Hornafjarðar 25 janúar 1934. Áhöfnin, 17 menn björguðust á land, en skipið eyðilagðist á strandstað.

Edda í Reykjavíkurhöfn. Ljósmyndari óþekktur.
Skrifað af Þórhalli S Gjöveraa.
Flettingar í dag: 981
Gestir í dag: 10
Flettingar í gær: 1195
Gestir í gær: 6
Samtals flettingar: 2190480
Samtals gestir: 97029
Tölur uppfærðar: 7.2.2026 14:18:52
