03.07.2016 11:02
Namdal RE 260. LCFJ. Línuveiðari.
Línuveiðarinn Namdal RE 260 var smíðaður í Þrándheimi í Noregi árið 1907. Stál 99 brl. 130 ha. 2 þjöppu gufuvél. Eigendur voru Magnús Kristjánsson og Stefán Jóhannsson í Reykjavík frá 12 júní 1924. Árið 1930 var talinn eigandi dánarbú Magnúsar Kristjánssonar á Akureyri. Skipið rak upp í fjöru í ofsaveðri í Hafnarfirði haustið 1931 og eyðilagðist. Einnig rak á land í óveðri þessu og eyðilagðist, línuveiðarinn Eljan SU 433 sem var í eigu h/f Júní í Hafnarfirði. Eljan var smíðuð í Álasundi í Noregi árið 1908 og var 82 brl. að stærð.


Namdal RE 260. Ljósmyndari óþekktur, mynd í minni eigu.
Eljan SU 433 til vinstri og Namdal RE 260 í fjörunni eftir óveðrið haustið 1931. Ljósm: Óþekktur.
Skrifað af Þórhalli S Gjöveraa.
Flettingar í dag: 591
Gestir í dag: 29
Flettingar í gær: 767
Gestir í gær: 62
Samtals flettingar: 1340263
Samtals gestir: 88230
Tölur uppfærðar: 24.6.2025 19:33:46