16.10.2016 09:00
Ver GK 3. LBMQ. / TFXC.
Ver GK 3 var smíðaður hjá Cochrane & Sons Ltd í Selby á Englandi árið 1920 fyrir breska flotann. Hét þar Simeon Moon. Smíðanúmer 897. 314 brl. 550 ha. 3 þennslu gufuvél. Seldur sama ár, Hellyers Bros Ltd í Hull, hét General Rawlinsson H 173. Seldur 13 september 1924, Fiskveiðahlutafélaginu Víði í Hafnarfirði, hét Ver GK 3. Skipið var selt 4 september 1931, h/f Ver í Hafnarfirði, hét Ver RE 32. Selt 18 apríl 1936, Togarafélagi Neskaupstaðar í Neskaupstað, hét Brimir NK 75. Seldur 29 júlí 1939, Hlutafélaginu Helgafelli í Reykjavík (Skúli Thorarensen), hét þar Helgafell RE 280. Selt 15 júní 1945, Hlutafélaginu Hrímfaxa í Reykjavík og Hlutafélaginu Sviða í Hafnarfirði, skipið hét Skinfaxi GK 3. Skipið var selt til Færeyja í ágúst 1947, hét þar Miðafell FD 69. Togarinn var seldur í brotajárn til Antwerpen í Belgíu og rifinn þar í október árið 1951.




Ver GK 3 við bryggju á Seyðisfirði. (C) Guðbjartur Ásgeirsson.
Brimir NK 75 við bryggju í Neskaupstað. (C) Björn Björnsson.
Brimir NK 75. Málverk Sigríðar Lúðvíksdóttur.
Helgafell RE 280. (C) Guðbjartur Ásgeirsson.
Skrifað af Þórhalli S Gjöveraa.
Flettingar í dag: 1022
Gestir í dag: 78
Flettingar í gær: 2218
Gestir í gær: 119
Samtals flettingar: 1193642
Samtals gestir: 83753
Tölur uppfærðar: 1.4.2025 22:01:38