17.04.2017 11:19
Þórður Sveinsson GK 373. TFIL.
Í gærkveldi strandaði Þórður Sveinsson við Snæfellsnes.
Mannbjörg varð en einn maður fótbrotnaði og annar meiddist eitthvað minna.
Vísir leitaði upplýsinga um þetta hjá Óskari Halldórssyni í morgun.
Óskar Halldórsson útgerðarmaður skipsins átti símtal við símstöðvarstjórann á
Arnarstapa í morgun og sagðist honum svo frá:
Í gærkveldi kl. 10 varð vart við það á bæ talsvert vestan við Arnarstapa, að
skip var strandað á svokölluðu Hellnaplássi. Þarna eru há klettabjörg og ekki
hægt að komast að strandstaðnum úr landi, en undir björgunum er stórgrýtisurð,
þar sem skipið liggur. Logn var á, en mikið dimmviðri og myrkur, og haugasjór,
og vissu menn ekki hvaða skip þetta var, þar sem ekki var unnt að komast nærri
því á landi. Frá bænum var strax tilkynnt til símstöðvarinnar á Arnarstapa um
strandið, og náðist samband um Stykkishólm við Slysavarnafélagið og var því
tilkynnt strandið, en því tókst ekki í nótt að ná sambandi við Ægi eða Óðin til
þess að fá þau til að fara á strandstaðinn. Frá Arnarstapa var skotið út smábáti
til þess að fara út í skipið, en vegna brims komst hann ekki að skipinu, sem
sjórinn gekk yfir. Og sást ekki, hvort skipsmenn voru enn á skipsfjöl eða ekki.
Fór báturinn við svo búið í land aftur, en síðar um nóttina fór hann aðra ferð
og hafði þá með sér ljós, til þess að skipsmenn gæti séð til þeirra, en þeir
héldu þá enn vera í skipinu.
Þegar báturinn kom að strandstaðnum, kom skipshöfn Þórðar Sveinssonar, 8 menn,
til þeirra í björgunarbát skipsins, en þeir höfðu séð Ijósið í litla bátnum.
Hafði skipshöfnin við illan leik komizt í björgunarbátinn skömmu eftir strandið
og haldið sig rétt utan við strandstaðinn, til að bíða birtingar, þar sem þeir
vissu ekki hvernig staðhættir voru þarna og mikið brim var á. Í morgun um
klukkan 6 kom skipshöfnin til Arnarstapa á skipsbátnum og hafði umsjónarmaður
farmsins, sem er útlendingur, fótbrotnað, og var von á lækni frá Stykkishólmi
kl. 1-2 í dag til þess að gera við sár hans. Skipshöfnin var orðin þjökuð af
volkinu og svaf í morgun í húsi skammt frá stöðinni, þegar símstjórinn átti tal
við Óskar Halldórsson. Skýrði hann svo frá, að enn væri svartaþoka, svo ekki
sæist milli húsa, en logn og talsvert mikið brim, og væri ekki hægt að sjá hvað
skipinu liði. Taldi hann óliklegt, þótti,hann vildi ekki fullyrða það, að
skipinu yrði bjargað, þar sem strandstaðurinn væri slæmur og brim mikið, svo að
skipið mundi brotna.
M/s. Þórður Sveinsson er 111 smálestir að stærð, tæplega 4 ára gamall, gott og
fallegt skip, útbúið með miðunarstöð og dýptarmæli. Skipið er eign Óskars
Halldórssonar h/f. o.fl.
Vísir 26 nóvember 1942.