14.06.2017 19:46
M. s. Drangajökull. TFWA.
Kæliskipið
Foldin.
Þann 17. nóvember síðastliðinn kom hingað til lands nýtt
kæliskip, sem heitir Foldin. Skip þetta er smíðað í Kalmarvárv í Svíþjóð.
Samningar um smíði þess voru gerðir í ársbyrjun 1945. Það er 625 rúmlestir
brúttó og tekur til flutnings 500-550 smálestir af flökum. Aðalvélin er 720
hestafla Noabvél. Lestað gengur skipið 11,5 mílu. Í reynsluför fór það 12,5
mílu. Hjálparvélar eru þrjár, tvær 16 hestafla og ein 130 ha. Þegar skipið er á
siglingu, eru Ijós og frystivélar drifnar af 20 k\v rafal, sem aðalvélin rekur.
Pressur eru af Stalgerð.
Í lestunum er hægt að halda 18° frosti við 25°
utanborðshita. Skip þetta virðist að öllu hið vandaðasta og sérstaklega eru
mannaíbúðir allar og allt fyrirkomulag viðvíkjandi áhöfninni með ágætum.
Yfirmenn á Foldinni eru: Ingólfur Möller, skipstjóri, Steinar Kristjánsson 1.
stýrimaður og Guðmundur Hjaltason 2. stýrimaður. Fyrsti vélstjóri er Jón Örn
Ingvarsson. Foldin er eign Skipafélagsins Foldin, en stjórn þess skipa: Baldvin
Einarsson, Óskar Normann og Geir Zoéga.
Ægir. 11 og 12 tbl. 1 nóvember 1947.
Drangajökull
sökk í Pentlandsfirði
Skozkur
togari bjargaði áhöfninni
Morgunblaðinu barst í gærkvöldi svohljóðandi einkaskeyti frá
fréttaritara sínum í Færeyjum: DRANGAJÖKULL, sem var staddur í Pentlandsfirði
sendi út neyðarskeyti kl. 19,39 svohljóðandi: Turning over portside (Er að
hvolfa á bakborða). Svo heyrðist ekki meira til hans. En kl. 20 kallaði skoski
togarinn Mount Eden frá Aberdeen til Wickradíó, og skýrði loftskeytamaður hans
svo frá að togarinn hefði bjargað öllum sem á Drangajökli voru, samtals 19
manns. Hann er nú á leið til Aberdeen. Togarinn kom að Drangajökli þegar hann
var að velta á hliðina. Fór hann alveg yfir um og stóð botninn upp nokkra
stund, en svo sökk skipið stuttu síðar.
Samkvæmt þeim fréttum, er Morgunblaðið gat aflað sér í gærkvöldi, var
DrangjökuII á heimleið frá Ósló, Amsterdam og fleiri Evrópuhöfnum, fullhlaðinn
kartöflum og öðrum varningi, og með dráttarvélar á dekki.
Skipstjóri var Haukur Guðmundsson, Nökkvavogi 31 í Reykjavík, og voru kona hans
og barn með í ferðinni. Haukur er reyndur sjómaður og hefur um langt skeið
verið fyrsti stýrimaður á skipinu, en þetta var hans fyrsta ferð sem
skipstjóri. Aðrir skipverjar voru:
Georg Franklínsson, I. stýrimaður, Hverfisgötu 102. Finnbogi Kjeld, II.
stýrimaður, Ytri-Njarðvík. Helgi Þorkelsson, 1. vélstjóri, Kleifarvegi 5.
Sveinbjörn Erlingsson, II. vélstjóri, Efstasundi 63. Tryggvi Oddsson, III.
vélstjóri, Skúlagötu 56. Bjarni Sigurðsson, loftskeytamaður, Njarðargötu 31.
Árni Jónsson, bryti, Víðihvammi í Kópavogi. Haraldur Helgason, matsveinn,
Ásgarði 123. Þórður Geirsson, bátsmaður, Bólstaðahlíð 33. Gunnar Bjarnason,
háseti, Neskaupstað. Guðjón Erlendsson, háseti, Ásgarði 39. Ævar Þorgeirsson,
háseti, Birkimel 8B. Gylfi Pálsson, háseti, Innri-Njarðvík. Þorlákur Skaptason,
háseti, Tómasarhaga 44. Karl Jónsson, smyrjari, Tómasarhaga 57. Vilhjálmur Vilhjálmsson,
messadrengur, Mávahlíð 42.
Drangjökull var 621 smálest að Stærð, byggður í Svíþjóð 1948 og talinn gott
sjóskip. Yfirbygging var í skutrúmi, og þar voru íbúðir skipverja, eldhús,
stjórnklefi, loftskeytaklefi og vélarúm.
Morgunblaðið. 29 júní 1960.
Drangajökull
sökk á 20 mín
Fólkið fór
allt í gúmmíbátana
Ekki er vitað neitt frekar af hvaða orsökum skipið
Drangajökull fórst svo skyndilega í Pentlandsfirði, milli Skotlands og
Orkneyja, í fyrradag. Skipbrotsmennirnir komu til Aberdeen í gær, en svo
virðist að þeir vilji ekkert segja um orsakirnar fyrr en við sjópróf. Þeir eru
væntanlegir heim með flugvél Flugfélagsins á föstudag. Sjópróf fara fram í
Reykjavík en ekki er enn afráðið hvort þau geta hafist þegar á laugardaginn.
Það er lauslega áætlað að tjónið í skiptapa þessum, bæði skip og farmur, nemi
a.m.k. 20 milljónum króna. Mbl. bárust í gær nokkru nánari fregnir af þessu
sviplega atviki frá fréttamanni í Aberdeen. Það var skozki togarinn Mount Eden,
293 tonn sem bjargaði skipshöfninni á Drangajökli og kom hann með skipbrotsmenn
til Aberdeen árdegis í gær, miðvikudag, Mount Eden var að koma úr tólf daga
veiðiför á Færeyjamiðum og var að sigla með aflann til Aberdeen. John Snelling
skipstjóri á skozka togaranum segir, að hann hafi verið um 5 mílur frá
Drangajökli, þegar hann varð þess vísari að þetta íslenzka skip var í nauðum
statt.
Þetta gerðist þar sem Pentlandsfjörður er mjóstur undan vitanum á
Stromaeyju og er þar 40 faðma dýpi. Sjö vindstig voru á norðan.
Þegar Mount Eden kom að Drangajökli var hann enn á floti, en hafði hvolft.
Skipsmenn höfðu allir komizt í gúmmíbjörgunarbátana. Allir voru ómeiddir og
glaðir yfir björguninni, sem barst þeim svo fljótt. Flestir voru þurrir, nema
fjórir eða fimm þeir síðustu sem yfirgefið höfðu skipið, þeir höfðu stokkið í
sjóinn en komizt upp í gúmmíbátana. Yngsti skipbrotsmaðurinn var Gunnar
fjögurra ára sonur skipstjóra. Utan um hann hafði verið vafið til hita,
hollenzkum fána, en fáni þessi hafði verið þrifinn í fáti upp úr fánakistu
skipsins, þegar fólkið varð svo skyndilega að yfirgefa það. Drangajökull sökk
niður að aftan og hvarf í hafið skömmu eftir að fólkið var komið um borð í
Mount Eden. Einn skipverjanna á skozka togaranum, hásetinn John Warman sagði við
fréttamanninn: "Þessi björgun var Guðs mildi". Hann bætti því við að
Pentlandsfjörður væri alræmdur fyrir hringiður, straum og úfinn sjó.
Skipbrotsmennirnir búa nú á sjómannaheimilinu í Aberdeen.
Þegar fréttamaðurinn
kom þangað var Gunnar litli sá fyrsti sem kom á móti honum. Hann var á hlaupum
fram og aftur á rósrauðum inniskóm og hafði verið að borða morgunmat,
cornflakes og mjólkurglas. Loftskeytamaðurinn á Drangajökli, Bjarni Sigurðsson
sem er 31 árs upplýsti, að skipið hefði sokkið á 20 mínútum. Hann kvaðst hafa
verið mjög glaður yfir því að togarinn kom svo skjótt til hjálpar eftir að
neyðarkall hafði verið sent út.
Drangajökull var að koma frá Vestur Evrópulöndum með ýmsan varning. Hafði hann
tekið varning í Noregi, Hollandi, Belgíu og Englandi. Síðasta viðkomuhöfn hafði
verið London. Farmurinn var m. a. kartöflur, þurrkaðir ávextir, margskonar
stykkjavara og dráttarvélar á dekki. Skipið var vátryggt hjá
Tryggingamiðstöðinni en varningurinn hjá ýmsum félögum. Í upptalningunni yfir
skipsmenn í blaðinu í gær vantaði einn, en hann er Vilhjálmur Vilhjálmsson
Mávahlíð 42, sem er 14 ára drengur. Var hann skráður sem messadrengur en mun
fremur hafa verið í skemmtiferð með skipinu.
Morgunblaðið. 30 júní 1960.