13.07.2017 06:53
Einar þveræingur EA 537.
Einar þveræingur EA 537 var smíðaður af Steinþóri
Baldvinssyni á Akureyri árið 1930. Eik og fura. 12 brl. 20 ha. Union vél.
Eigendur voru Magnús Gamalíelsson og Guðbjartur Snæbjörnsson á Ólafsfirði frá 2
desember 1930. Ný vél (1939) 40 ha. Union vél. Báturinn var lengdur árið 1943
og mældist þá 18 brl. Báturinn brann og sökk út af Hraunhafnartanga 24 júlí
árið 1947. Áhöfnin bjargaðist í nótabátinn og þaðan um borð í Gaut EA 669.
Einar þveræingur EA 537. (C) Gunnar Óli Björnsson.
Einar þveræingur EA 537. Líkan Gríms Karlssonar skipstjóra. (C) Þórhallur S Gjöveraa.
"Einar
Þveræingur"brennur
Skipverjar á m.b. Einar Þveræingur, urðu að yfirgefa skipið
er eldur kom upp í því seinnipart dags í gær. Einar Þveræingur (eldra skipið),
var á siglingu út af Melrakkasljettu, er eldur kom upp í því. Breiddist hann
óðfluga út og gátu skipverjar ekki við hann ráðið. Varð skipið alelda á
tiltölulega skammri stundu og urðu skipverjar að yfirgefa skipið í nótabát
sínum. Enginn þeirra mun hafa slasast, en giskað er á að áhöfnin hafi verið 8
til 10 menn. Frjett þessi barst til Morgunblaðsins skömmu áður en blaðið fór í
pressuna og er því ekki kunnugt um hvað af skipverjum varð.
Morgunblaðið. 25 júlí 1947.
Útblástursrör
kveikti í "Einari þveræing"
Nánari frjettir hafa nú borist af því, er mb. Einar
Þveræingur brann og sökk út af Melrakkasljettu í fyrrakvöld. Báturinn sökk um
kl. 1 í fyrrinótt um það bil 4 til 5 sjómílur út af Hraunhafnartanga. Einar
Þveræingur var annar um nót við m.b. Gaut. Eldsupptök eru talin stafa frá
útblástursröri vjelarinnar.
Morgunblaðið. 26 júlí 1947.