19.10.2017 18:03
B. v. Surprise GK 4. LBTH / TFSC.
Botnvörpungurinn Surprise GK 4 var smíðaður hjá Cochrane & Sons Ltd í Selby á Englandi árið 1920 fyrir breska sjóherinn, hét Samuel Martin í þeirra eigu. Seldur sama ár Hellyers Brothers Ltd í Hull, hét Field Marshal Plumer H 174. 313 brl. 600 ha. 3 þennslu gufuvél. Smíðanúmer 898. Togarinn var svonefnt stjórnarskip, þ.e. eitt af þeim skipum sem breska stjórnin lét smíða til stríðsnota, en þessi togari sem og fleiri, mun þó ekki hafa verið hleypt af stokkunum fyrr en eftir stríð. Seldur Einari Þorgilssyni & Co í Hafnarfirði í nóvember 1924 og fær nafnið Surprise GK 4, eftir skútu sem Einar hafði átt og reynst happaskip. Kom togarinn til heimahafnar, Hafnarfjarðar, hinn 11 desember 1924. Seldur Sæfelli h/f í Vestmannaeyjum árið 1945, fær nafnið Helgafell VE 32. Seldur Oddi Helgasyni í Reykjavík í júní árið 1952. Hann selur togarann í brotajárn og er hann rifinn í Bo'ness í Skotlandi sama ár.
B.v. Surprise GK 4 á Reykjarfirði á Ströndum. (C) Sigurjón Vigfússon.
Um borð í togaranum Surprise GK 4, líklega árið 1941 og styrjöldin í algleymingi. Áhöfnin hefur stillt sér upp til myndatöku á togspilinu framan við stjórnpallinn. Þeir eru, fremsta röð frá vinstri:
Olgeir Olgeirsson hjálparkokkur, Ólafur Sveinsson, Sigurður Pétursson, Ágúst Jóhannesson, Þorsteinn Einarsson 1 stýrimaður, Jón Þorvaldsson 2 stýrimaður, Jón Björn Elíasson skipstjóri, Valdimar Guðmundsson og Jakob Þorsteinsson.
Miðröð frá vinstri: Leifur Jónsson, Hilmar Sæberg, Þorlákur Eiríksson matsveinn, Jón Jóhannesson, Björgvin Jónsson, Jens Guðmundsson, Pétur Pétursson og Ingimundur Sigurjónsson.
Aftasta röð frá vinstri: Helgi Guðlaugsson, Jón Arnórsson, Guðmundur Þorláksson loftskeytamaður, Guðmundur Jóhannsson, Árni Elíasson, Gísli Guðmundsson, Páll Guðmundsson kyndari, Kristján Brynjólfsson kyndari, Brynjólfur Guðnason bræðslumaður og Guðbjörn Einarsson.
B.v. Helgafell VE 32 og vélskipið Helgi VE 333 í fjöru í Vestmannaeyjum í september árið 1947. Þeir voru of stórir til að komast í slippinn þar. Þá var eina ráðið að sigla þeim upp í fjöru á flóðinu og láta fjara undan þeim til botnhreinsunar og annars sem til þurfti. Ljósmyndari óþekktur.
Botnvörpungurinn Surprise GK 4
Nýr togari kom til Hafnarfjarðar í gær. Hefir Einar Þorgilsson útgerðarmaður keypt hann í Englandi. Togarinn er 4 ára gamall og heitir "Surprise".
Morgunblaðið. 12 desember 1924.