22.10.2017 17:08
B. v. Maí GK 346. TFKZ.
Maí kemur í
maí
Hinn 3. marz síðastlinn var nýjum íslenzkum togara hleypt af
stokkunum hjá Seebeck Werft í Bremerhaven. Togarinn er eign Bæjarútgerðar
Hafnarfjarðar og hlaut í skírninni nafnið Maí GK-346. Hann verður stærsti
togari Íslendinga. Samningar um smíði nýja Maí voru undirritaðir 30. apríl
1959. 17. desember 1959 var kjölurinn lagður, og 3. marz var togaranum hleypt
af stokkunum og skírður, að viðstöddu miklu fjölmenni. Togarinn verður afhentur
11. maí n.k. Maí verður stærsti togari Íslendinga, 1000 lestir að stærð. Sá
næst stærsti er Narfi, 900 lestir. Maí er 200 fet á lengd, 34 fet á breidd og
17 fet á dýpt. Skipstjóri verður Benedikt Ögmundsson, sem verið hefur
skipstjóri hjá Bæjarútgerð Hafnarfjarðar frá stofnun hennar fyrir 29 árum.
Tíminn. 8 apríl 1960.
Mikill mannfjöldi fagnaði Maí
Í fegursta veðri
sigldi hinn glæsilegi togari Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar, Maí, hingað inn á
höfnina í gærdag, fánum skrýddur. Mannfjöldi mikill var á bryggjunni til að
fagna honum, og við það tækifæri lék Lúðrasveit Hafnarfjarðar og Karlakórinn
Þrestir söng nokkur lög. Þegar landfestar höfðu verið bundnar, tóku til máls af
stjórnpalli Adolf Björnsson, formaður útgerðarráðs og Stefán Gunnlaugsson
bæjarstjóri, sem buðu togara og áhöfn velkomin. Fer hér á eftir lýsing á
togaranum í stórum dráttum: Maí er 1000
tonn og hinn stærsti togari, sem Islendingar hafa eignazt til þessa. Lengd er
210 fet. Breidd 34 fet. Dýpt 17 fet. Allar vélar og hjálparvélar í skipinu eru
MAN-vélar frá Þýzkalandi. Aðalaflvél er 2.280 hestöfl, og gekk 16,2 sjómílur í
reynsluferð. Maí er fyrsti íslenzki togarinn með fullkomna skiptiskrúfu, þannig
að vélin er alltaf látin ganga áfram, hvort sem skipið er keyrt áfram eða
afturábak. Með skurði á skrúfunni má ákveða hvort skipið er keyrt áfram eða
afturábak, og má því nota hagkvæmasta snúningshraða vélar hverju sinni, og
skiptir það sérstaklega miklu máli, ef um krítiskan snúningshraða er að ræða.
Ljósavélar eru þrjár, tvær 135 hestöfl hvor og ein 40 hestöfl, til notkunar
þegar skipið liggur við landfestar. MAN-vélar hafa þann kost að nota má ódýrari
olíur en á venjulegar dieselvélar. Togvindumótor er 227 kw. Í Maí er Sallog
hraðamælir af nýrri gerð og með tæki er honum fylgir má kanna fiskmagn í
vörpunni hverju sinni. Tveir Decca radarar eru í skipinu, annar með sendiorku
45 kw., en hinn 20 kw., en draga hvor 48 mílur. Ný gerð er af Sperry-lóran. Í
stað þess að eftir eldri gerð lóran þurfti margvíslega útreikninga við
staðarákvörðun, reiknast staðarákvörðun út sjálfkrafa eftir hinni nýju gerð.
Loftskeytatæki eru frá Telefunken í Þýzkalandi og m. a. er stuttbylgjustöð, sem
gerir fært að tala megi frá Nýfundnalandi til Þýzkalands. Kallkerfi er komið
fyrir í tólf stöðum í skipinu af svonefndri Intercon-gerð frá Marconi. Gíróáttaviti
og sjálfstýring er í skipinu. Í Maí eru tæki til þess að dæla 70-80 gráða
heitum sjó frá fjórum stöðum í skipinu, ef um ísingu er að ræða. Þá er algjör
nýung, að í framsiglu er komið fyrir rafmagnshitun, er nota má ef ísing sezt á
siglutréð, og getur hún brætt allan klaka af á örstuttum tíma. Fiskleitartæki
eru af Kelvin Hughes gerð. Perulag er á stefni, sem á að auka ganghraða og
draga úr veltingi miðað við fyrri gerð stefna. Lestar eru 27 þúsund kúbíkfet,
almuníumklæddar, og eiga að rúma 500-550 tonn af fiski. Sérstakur góðfiskklefi
er ofanþilfars, sem rúmar 5-10 tonn.
Morgunblaðið. 19 maí
1960.
B.v. Maí GK 346 að koma úr slipp fyrir söluna til Noregs árið 1977. Ljósmyndari óþekktur.
Togarinn Maí
að kveðja
Nýmálaður og snyrtur á leið til Noregs
"Það voru margir íslenskir aðilar, sem vildu kaupa togarann Maí og breyta honum í nótaskip, en þá skorti bara peninga til að greiða út það sem þurfti og þess vegna urðum við að selja þetta ágæta skip til Noregs" sagði Guðmundur Ingvarsson framkvæmdastjóri Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar er við ræddum við hann í gær, en þá var togarinn Maí, sem BÚH var að selja til Noregs, að koma úr slipp nýmálaður og snyrtur og er að leggja af stað til Noregs. Það var norska skipasmiðastöðin, sem selur BÚH nýjan skuttogara, sem afhentur verður 14. maí nk. sem tók Maí uppí kaupin og virðir hann á 3,4 milljónir norskar krónur, sem svarar til um 130 milljónum ísl. króna.Maí er 17 ára gamalt skip, systurskip Víkings AK og Sigurðar RE, stærstu nótaskipa okkar. Guðmundur sagði að Maí hefði alla tið verið mikið afla- og happaskip og að honum væri eftirsjá. Ekki alls fyrir löngu var bátur sem hét Víðir seldur til Noregs. Þar var hann málaður og snyrtur og síðan seldur aftur til Íslands og heitir nú Jón Gislason. Sögur ganga um það, að eins fari með Maí, að honum verði breytt í nótaskip ytra en síðan seldur aftur til Íslands. Guðmundur Ingvarsson sagðist hafa heyrt svona sögur og viðurkenndi að margir innlendir aðilar hefðu viljað kaupa togarann með það fyrir augum að breyta honum í nótaskip, en skort fé. En Guðmundur sagðist vantruaður á að Mai yrði keyptur aftur til Íslands, þar sem lán væru ekki veitt til kaupa á eldri skipum en 10 ára. Aftur á móti ef einhver aðili er svo stöndugur að geta keypt hann án þess að fá lán úr fiskveiðasjóði, þá getur hann það auðvitað, sagði Guðmundur. Víst er um það, að hann yrði fljótur að borga sig á loðnunni, ef honum gengi eins vel og Sigurði RE, sem er systurskip Vikings og Mai.
Þjóðviljinn. 26 apríl 1977.
Þarna er skipið í Noregi undir sínu gamla nafni, Maí. Ljósmyndari óþekktur.