05.08.2018 08:24
Seglskipið Amerigo Vespucci í Reykjavíkurhöfn.
Ítalska seglskipið Amerigo Vespucci við Ægisgarð í gær.
Amerigo Vespucci við Ægisgarð í gær. (C) Þórhallur S Gjöveraa. 4 ágúst 2018.
Seglskipið Amerigo Vespucci
Ítalska
seglskipið Amerigo Vespucci sigldi að landi við Ægisgarð í Reykjavík snemma í
morgun og verður í höfn fram á mánudagsmorgunn. Skipið er þriggja mastra
seglskip sem hefur siglt um heiminn frá árinu 1931 og er talið eitt fallegasta
skip heims.
Seglskipið er notað sem kennsluskip fyrir
ítalska flotann og er Reykjavíkurhöfn þriðji viðkomustaður skipsins í árlegum
þjálfunarleiðangri. Á skipinu starfa 124 liðsforingjar sem hafa verið í þjálfun
frá því í byrjun júlí en heildarfjöldi á skipinu er um 450 manns.
Í þessari fyrstu heimsókn skipsins til landsins
er landsmönnum boðið að skoða skipið og kynnast litla samfélaginu um borð. Opið
verður fyrir almenning á morgun laugardag kl. 11-12:30 og 15-17. Einnig á
sunnudag kl. 10-12:30 og 15-21.
vísir.is 3 ágúst 2018.