28.11.2018 09:54
B. v. Þorsteinn Ingólfsson RE 206 á málverki og í lit.
Botnvörpungurinn Þorsteinn
Ingólfsson RE 206 var smíðaður hjá Hall Russell & Co Ltd í Aberdeen í
Skotlandi árið 1951 fyrir Bæjarútgerð Reykjavíkur. 681 brl. 1. 000 ha. 3
þennslu gufuvél. Hét Hrefna á smíðatíma. Smíðanúmer 824. Þorsteinn var einn af
hinum svokölluðu "Stefaníutogurum". Togarinn var seldur til
Grikklands og tekinn af skrá 6 júlí árið 1965. Ég rakst á þetta málverk
af togaranum fyrir nokkru síðan, en því miður er það ekki í lit, en gott eigi
að síður. Svo eru nokkrar litmyndir af honum, þrjár eru úr safni Atla
Michelsen. Ég er með mikið myndasafn frá Atla, tekið um borð í togaranum Úranusi
RE 343. Það eru myndir af skipverjum við vinnu sína og af skipinu, ómetanlegar
heimildir frá tíma Nýsköpunartogaranna. Mun birta þær myndir hér á síðunni á
næstu mánuðum.
B.v. Þorsteinn Ingólfsson RE 206. Málverk. Ljósmyndari óþekktur.
B.v. Þorsteinn Ingólfsson RE 206. Ljósmyndari óþekktur.
B.v. Þorsteinn Ingólfsson RE 206 á leið í veiðiferð. (C) Atli Michelsen.
B.v. Þorsteinn Ingólfsson RE 206 við Faxagarð. (C) Atli Michelsen.B.v. Þorsteinn Ingólfsson RE 206 á leið út úr Reykjavíkurhöfn. (C) Atli Michelsen.
B.v. Þorsteinn Ingólfsson RE 206 við komuna til landsins 9 mars árið 1951. Ljósmyndari óþekktur.
"Þorsteinn
Ingólfsson" kom til Reykjavíkur í gær
Í hinu fegursta veðri, um kl. eitt í gærdag, sigldi hinn nýi
togari Bæjarútgerðarinnar, Þorsteinn Ingólfsson, fánum skreyttur stafna í
milli, hjer inn í Reykjavíkurhöfn. Borgarstjóri, Gunnar Thoroddsen, hafði ásamt
bæjarráðsmönnum, farið með hafnsögubátnum út á ytri höfn. Borgarstjóri bauð þar
skipstjóra, Hannes Pálsson, og skipshöfn hans, velkomna, og árnaði henni heilla
í starfi sínu á þessu glæsilega skipi.
Þorsteinn Ingólfsson er jafnstór systurskipunum Marz og Neptúnusi. Allar hinar
ytri línur í skipiru mjög svipaðar og í þeim Marz og Neptúnusi. Borðstokkurinn,
milli hvalbaks og aftur að yfirbyggingunni, er rúmlega mannhæðar hár. Þetta
fyrirkomulag hefur verið á Neptúnusi og Marz og gefist mjög vel. Hinir háu
borðstokkar skapa aukið öryggi og skjól við vinnu á þilfarinu. Bátadekkið er
með nokkru öðru sniði en á hinum nýsköpunartogurunum. Heimferðin gekk að óskum.
Ekki vannst tími til að setja reykháfsmerkið á, og ekki er fyllilega búið að
ganga frá fiskmjölsverksmiðjunni, en hvoru tveggja verður gert erlendis.
Þorsteinn Ingólfsson fer í slipp í dag, en í ráði er að togarinn fari á veiðar
á mánudaginn.
Morgunblaðið. 10 mars 1951.