05.07.2019 10:36
1067. Tungufell BA 326. TFYJ.
1067. Tungufell BA 326 nýsmíðað út í Noregi. (C) Jan Trygve Olufsen.
1067. Jóhann Gíslason ÁR 42 í Vestmannaeyjahöfn. (C) Tryggvi Sigurðsson.
Grænlandsveiðarnar geta lengt vetrarvertíðina
segir Pétur
Þorsteinsson, frkvstj. Hraðfrystihúss
Tálknfirðinga hf. sem nýlega tók við nýju skipi
Nýtt skip, Tungufell BA 326, kom til Tálknafjarðar 18. júní
sl. Eigandi þessa nýja skips er Hraðfrystihús Tálknafjarðar h.f. og hittum við
framkvæmdastjóra þess, Pétur Þorsteinsson, að máli í fyrradag. - Þetta er annað
skipið, sem við fáum á þessu ári, sagði Pétur. Fyrra skipið var Tálknfirðingur
BA 325, sem kom 6. marz sl. Bæði skipin eru smíðuð í Kaabös Mekanik verksted í
Harstad í Noregi og eru 296 rúml hvort. Skipstjóri á Tungufelli er Sölvi
Pálsson. Hraðfrystihús Tálknafjarðar á nú þrjá báta, auk þessara tveggja á það
líka Sæfara, sem er 101 tonn. - Hvernig gekk útgerðin í vetur? - Gæftir voru
stirðar og afli tregur í Breiðafirði, en þangað sóttu Sæfari og Tálknfirðingur.
Núna gerum við Sæfara út á togveiðar og Tálknfirðingur stundar línuveiðar við Grænland.
- Hvernig hafa Grænlandsveiðarnar gengið? - Þetta hefur gengið vel.
Tálknfirðingur er nú í þriðja túrnum. Í tveim fyrstu túrunum var hann átta daga
að veiðum í hvort skipti og aflaði alls 186 tonn af slægðum fiski.
- Þið
Vestfirðingar byrjuðuð að sækja á Grænlandsmið í fyrra? - Já, í fyrra fór
Jörundur III, sem þá var gerður út á okkar vegum, með net á Grænlandsmiðin, en
afli var tregur. Þá fór Þrymur frá Patreksfirði einnig á Grænlandsmið í fyrra
með línu og gekk vel. Nú í vor hafa svo nokkur íslenzk skip sótt á þessi mið,
þar á meðal Tálknfirðingur frá okkur. - Heldur þú, að þessar Grænlandsveiðar
geti reynzt okkur góð búbót, ef síldinni seinkar á miðin? - Já, ég er mjög
bjartsýnn á að þessar veiðar geti lengt vetrarvertíðina okkar á mjög heppilegan
máta og við erum að minnsta kosti ákveðnir í að senda okkar skip á Grænland
eftir næstu vetrarvertíð. - Á hvers konar veiðar ætlið þið að senda Tungufell?
- Ég býst við, að Tungufell fari nú á síldveiðar, eða þá með línu til
Grænlands. - Hvað er útgerðarfyrirtækið gamalt? - Hraðfrystihús Tálknafjarðar
hf. er nú 20 ára. Fram til ársins 1956 var það eingöngu smábátaútgerð, en það
ár keypti fyrirtækið 66 tonna stálbát, sem bar nafnið Tálknfirðingur. Þessi
bátur var fyrsta íslenzka síldveiðiskipið með sjálfleitandi síldarleitartækjum
og einnig fyrsta skipið, sem japönsk ljósmiðunarstöð var sett í. Nú eru þessi
tæki í öllum skipum. Árið 1957 voru keyptir tveir 75 tonna stálbátar,
Tálknfirðingur og Guðmundur frá Sveinseyri, Sama ár brann gamla fiskverkunarhúsið
okkar og var þá þegar hafin bygging nýs frystihúss, sem tók til starfa 1958.
Sæfara keyptum við svo 1960 og árið eftir byggðum við síldar og
fiskimjölsverksmiðju. 1962 er svo keyptur 150 tonna stálbátur, Sæúlfur, en hann
sökk á síldveiðum í nóvember 1966.
Árið 1963 byggði Hraðfrystihús Tálknafjarðar hf. vélsmiðju í félagi við
einstakling og sama ár seldi fyrirtækið bátana tvo, sem það keypti 1957,
Tálknfirðing og Guðmund frá Sveinseyri. Þetta er í stórum dráttum saga
fyrirtækisins. Ég vil þó ekki skiljast svo við hana, að ég minnist ekki Alberts
Guðmundssonar, sem var framkvæmdastjóri fyrirtækisins frá stofnun til
dauðadags, en ég tók svo við af honum í fyrra. Þess má geta, að fyrir tuttugu
árum, voru aðeins þrír sveitabæir þar sem Sveinseyri er nú, 250 manna þorp. -
Hvað vinna margir hjá Hraðfrystihúsi Tálknafjarðar hf.? - Það eru um 100 manns
á vertíðinni, sagði Pétur Þorsteinsson að lokum.
Morgunblaðið. 27 júní 1968.