31.07.2019 22:50
Siglufjörður árið 1915.
Þessi mynd af Siglufirði er tekin árið 1915, í öndverðu síldarævíntýrisins. Á þessum árum voru margir síldargrosserar sem höfðu mikil plön, einn af þeim var Óskar Halldórsson. Hann var einn litríkasti persónugerfingur síldarævintýrisins á Siglufirði þá víðar væri leitað. Ég er búinn að kynna mér vel sögu hans úr bókum Ásgeirs Jakobssonar, og Guðsgjafarþulu, Halldórs Laxness. Ég lít á Óskar Halldórsson sem einn litríkasta persónuleika síldarævintýrisins um miðja síðustu öld. Eftir því sem ég best veit var hann holdgerfingur alls í síldarsögu okkar Íslendinga fyrir og um síðustu öld. Menn eins og hann var, þurfum við í atvinnulífið í dag, sem standa fast á því sem þeir standa fyrir. Það mætti alveg halda minningu þessa mæta athafnamanns betur á lofti en raunin er.


Siglufjörður árið 1915. Gamalt póstkort í minni eigu.
Óskar Halldórsson fyrir framan síldarstöð sína á Bakka á Siglufirði.
Skrifað af Þórhalli S Gjöveraa.
Flettingar í dag: 1257
Gestir í dag: 115
Flettingar í gær: 421
Gestir í gær: 22
Samtals flettingar: 1191659
Samtals gestir: 83671
Tölur uppfærðar: 31.3.2025 22:18:30