29.08.2019 19:53
L. v. Pétursey RE 277. LPPK. / TFXE.
Aldrei fékkst nein vitneskja um með hvaða hætti línuveiðarinn Örn GK 5 fórst. Talið var ólíklegt að veður hefði orðið honum að tjóni, en hallast að því að jafnvel ketilsprenging hefði orðið í skipinu og það sokkið á svipstundu, en það verður aldrei vitað til fulls hvað varð skipinu að grandi.
Pétursey RE 277 í Reykjavíkurhöfn. Ljósmyndari óþekktur.
Lóða og
síldveiðiskip
Samkvæmt tilkynningu frá Færeyjum verður e.s.
"Batalder" að líkindum seldur mjög ódýrt á uppboði þann 2. janúar
næstkomandi. Nánari upplýsingar gefur O. Ellingsen.
Morgunblaðið. 20 desember 1927.
Lóða- og
síldveiðagufuskip til sölu
E.s. ,,BATALDER , sem jeg hefi nýlega keypt frá Færeyjum,
fæst keyptur nú þegar. Stærð skipsins 105 tonn brutto. Stærð vjelar 230 h.
Skipið hefir, umfram vanalegan útbúnað: ;
Vjel til ljósaframleiðslu,
íshús,
Gufulínuspil.
Allt fyrirkomulag hið heppilegasta, eftir því sem hjer 'útheimtist, svo
breytingar eru óhugsanlegar. Botn skipsins var hreinsaður og málaður í
Færeyjum, og reyndist hann, samkvæmt skýrslu skoðunarmanna, óskemdur. Frekari
upplýsingar fást hjá undirrituðum, sem tekur við tilboðum í skipið til 20. þ.
m. 0. Ellingsen .
N B. Allir þeir mörgu, sem hafa beðið mig að selja ekki skipið fyrr en jeg
hefði látið þá vita, eru beðnir að gera sig ánægða með þessa tilkynningu.
Morgunblaðið. 11 mars 1928.
E.s. Batalder KG 363 í Klaksvík í Færeyjum. (C) www. Vagaskip.dk
Línuveiðarinn
» Örn « GK 5 ferst Línuveiðarinn »Örn« stundaði síldveiðar fyrir Norðurlandi í
sumar og enginn vissi annað en, að allt væri í lagi á skipinu, ekkert heyrst
um, að það hefði áður verið á grunni fyrir norðan, og viðgerð hafði skipið
nýlega fengið. Kom það því eins og þruma úr lofti, þegar þær fréttir bárust
gegnum útvarpið, að menn hefðu séð skipið á siglingu, sunnudagsmorgunin 9.
ágúst og síðar hefði enginn séð það og ekkert af því fréttst. Er þess var
saknað, var leit hafin bæði á sjó og eftir fjörum, þar sem líklegast þótti, að
skipsmenn hefðu lent í vörpubátunum, undir Tjörnesi eða inn í Axarfirði, því
álandsvindur var þar um þær mundir, sem skipið hvarf. En svo kom varðskipið
Ægir, sem þátt tók í leitinni, með annan bátinn og skömmu síðar fann finnskt
móðurskip, Petsamo, hinn og voru báðir mannlausir. Þá var öll von úti og
leitinni hætt. Það var hinn 11. ágúst. Fjöldi skipa tók þátt í leitinni; allt
sem fannst var björgunarhringur og koddi á reki, vestur af Mánareyjum. Hvarf
skipsins er leyndardómur og enginn getur komið fram með rétta skýringu um, hver
sé orsök hvarfsins. Getgátur um ketilsprengingu, eða hrottalega ásiglingu, sem
leyna á, geta vart komið til mála, vegna þess, að þegar slíkt á sér stað, þá
losnar ætíð svo mikið af við úr skipum, að það verður áberandi á sjónum og í
þessu tilfelli, myndi hinum mörgu leitarskipum, varla hafa skotist yfir það, ei
heldur þeim, sem um fjörurnar fóru. Rannsókn á hvarfi þessu, gæti leitt
eitthvað í ljós, ef hafin væri. Það er gert í öðrum löndum, þegar eins stendur
á og hér, þótt enginn geti mætt, sem veit hið rétta. Öll skipshöfnin fórst með
»Örn«, 19 að tölu, Ægir. 8 tbl. 1 ágúst 1936.
Skipið var smíðað úr stáli, í Moss í Noregi, fyrir 33 árum og kom fyrst hingað
til lands um 1927 og hét skipið þá »Batalder«. Keypti 0. Ellingsen heitinn, það
frá Færeyjum og seldi síðar þrem bræðrum í Reykjavik, sem skírðu það um og
nefndu »Pétursey«. Núverandi eigendur voru Samvinnufélagið Ernir í Hafnarfirði.
Þeir breyttu nafni skipsins og nefndu »Örn«; reyndist það happaskip í þeirra
höndum. Þeir sem drukknuðu við slys þetta, eru eftirtaldir menn:
Úr Reykjavík:
Ólafur V. Bjarnason, skipstjóri, 60 ára, Frakkastíg 26, kvæntur og átti
uppkomin börn.
Steinn Ásbjörnsson, stýrimaður, 28 ára, Rauðará við Hverfisgötu, ókvæntur.
Eggert Ólafsson, 1. vélstjóri, 27 ára, Grettisgötu 79, kvæntur en barnlaus.
Frá Hafnarfirði:
Guðmundur Guðmundsson, nótabassi, 57 ára, Gunnarssundi 3. Hann var kvæntur og
átti 2 börn innan við fermingu og 3 uppkomin.
Skúli Sveinsson, 2. vélstjóri, 34 ára, Brekkustíg 25. Hann var kvæntur en
barnlaus.
Guðmundur Albertsson, matsveinn, 23 ára, Vesturbraut 22, kvæntur og átti eitt
barn.
Sigurður Sveinsson, háseti 53 ára, Hverfisgötu 7, kvæntur og átti eitt barn
innan við fermingu. Þorsteinn Guðmundsson, háseti, 40 ára, Merkurgötu 14,
kvæntur og átti 1 barn.
Jón Bjarnason, háseti, 37 ára,
Selvogsgötu 16 B. Kvæntur og átti 3 börn í ómegð.