21.02.2021 14:15
B.v. Helgafell RE 280. TFZD.
Nýsköpunartogarinn Helgafell RE 280 var smíðaður hjá
Cochrane & Sons Ltd í Selby í Englandi árið 1947 fyrir samnefnt hlutafélag
í Reykjavík. 654 brl. 1.000 ha. 3 þennslu gufuvél. 54,00 x 9,17 x 4,58 m. Smíðanúmer 1321. Skipaskrárnúmer 194. Helgafell
var annar nýsköpunartogarinn sem kom til landsins, hinn 25 mars sama ár.
Ingólfur Arnarsson RE 201, sá fyrsti, kom til Reykjavíkur hinn 17 febrúar.
Skipið var selt 2 febrúar 1953, Útgerðarfélagi Akureyringa hf á Akureyri, hét Sléttbakur
EA 4. Togarinn var seldur 18 apríl árið 1974, Manuel Hevia Gonzales í Gijon á
Spáni til niðurrifs. Það var Kaldbakur EA 1 sem dró Sléttbak, en hann hafði
einnig verið seldur til sama aðila á Spáni í brotajárn.
B.v. Helgafell RE 280 á Pollinum á Ísafirði. Úr safni Kjartans Traustasonar.
B.v.
Helgafell kemur næsta fimmtudag
Bv. Helgafell, annar Nýbyggingarráðstogarinn, sem fullgerður
er, fór í reynsluför á þriðjudag. Visir átti í gær tal við Skúla Thorarensen
útgerðarmann og fékk hjá honum þær upplýsingar um Helgafell, að hann hefði
reynzt í alla staði vel. Í fyrradag var hann svo tekinn í slipp til eftirlits
og botnmálunar. Gert er ráð fyrir því, að skipið fari frá Hull á morgun og komi
ef til vill við í Aberdeen á heimleiðinni. Má þá búast við því hingað á
fimmtudag.
B.v. Egill rauði, eign Neskaupstaðar, mun verða tilbúinn um næstu mánaðamót.
Vísir. 14 mars 1947.
B.v. Helgafell RE 280 með fullfermi af saltfisk á leið til Esbjerg í Danmörku. Ljósmyndari óþekktur.
Annar
nýsköpunartogarinn kominn
Togarinn Helgafell, RE 280, sem er annar nýsköpunartogarinn,
kom hingað til Reykjavíkur í gærmorgun, eftir fjögra sólarhringa siglingu frá
Hull. Eigandi Helgafells er samnefnt hlutafjelag hjer í bæ. Helgafell er byggður
eftir sömu teikningum og b.v Ingólfur Arnarson. Á leiðinni frá Englandi hrepti
skipið slæmt veður og náði veðurhæðin 9 vindstigum. Skipstjórinn, Þórður
Hjörleifsson, skýrði svo frá, að skipið hefði farið vel í sjó, enda þó að
sjólag hafi verið slæmt. Skipið var með 160 smálestir af sementi, og með
eldsneytisforða var það á hleðslumerkjum fyrir vöruflutninga. Strax í gær hófst
vinna við að setja lýsisvinsluvjelar í skipið og að búa það undir fyrstu
veiðiför sína. Búist er við að togarinn fari á veiðar fyrir hátíðar.
Eins og fyrr segir er skipstjóri Helgafells Þórður Hjörleifsson. Fyrsti
stýrimaður er Pjetur Guðmundsson og yfirvjelstjóri er óskar Valdimarsson.
Morgunblaðið. 26 mars 1947.
B.v. Sléttbakur EA 4 á toginu. Eftir fuglagerinu að dæma, eru þeir að fiska. (C) Ásgrímur Ágústsson.
Eigendaskipti
á togurum
Togarinn Helgafell, sem var eign samnefnds félags í
Reykjavik, en framkvæmdastjóri þess var Skúli Thorarensen, var seldur til
Akureyrar, og er Útgerðarfélag Akureyrar kaupandinn. Skipið heitir nú
Sléttbakur og hefur einkennisstafina EA 4. Útgerðarfélag Akureyrar á þar með
orðið fjóra togara, og á enginn einn aðili fleiri togara hér á landi nema
Bæjarútgerð Reykjavíkur. Frá Akureyri eru því gerðir út fimm togarar, og er það
einungis einum togara færra en í Hafnarfirði. Togarinn Helgafell var seldur
fyrir kr. 5.500.000.00. Greiðsluskilmálar eru þessir:
Við undirskrift samningsins greiddust 500 þús kr. Upphæð þá tók Útgerðarfélag
Akureyrar að láni hjá Samvinnutryggingum, til 4 ára, og fer fyrsta afborgun
fram í sept. næsta ár. Þá er 500 þús. kr. víxill til sex mánaða til fyrri
eigenda. Þá er skuldabréf til 10 ára til fyrri eigenda að upphæð kr.
3.084.667,30, yfirtekin skuld við stofnlánadeild sjávarútvegsins kr.
1.322.000,00 og loks yfirtekin skuld við ríkissjóð kr. 93.132,80. Skipið var
afhent hinum nýju kaupendum 8. september, en þá var það tilbúið á veiðar.
Skipstjóri á því er Finnur Daníelsson, sem verið hefur 1. stýrimaður á Kaldbak.
Tímaritið Ægir. 9-10 tbl. 1 september 1953.
Landað úr Sléttbak EA 4 á Akureyri. Ljósmyndari óþekktur.
Stjórnpallur og skorsteinn togarans Sléttbaks EA 4. Úr safni Sæmundar Þórðarsonar.
Þeir gömlu
seldir í brotajárn
Nú þegar hver skuttogarinn á fætur öðrum kemur til landsins
vaknar sú spurning hvað gert verði við gömlu síðutogarana. Við leituðum til
Félags ísl. botnvörpuskipaeigenda og spurðum þar þessarar spurningar. Þar
fengum við það svar að þeim yrði lagt og sennilega yrðu þeir seldir í
brotajárn. Þeim er lagt, einum á móti hverjum einum skuttogara sem kemur til
landsins hjá þeim aðilum sem eiga gamla síðutogara fyrir. Þannig verður til að
mynda Jóni Þorlákssyni hjá BÚR lagt, þegar Bjarni Benediktsson RE er kominn til
landsins. Þá verður Hallveigu Fróðadóttur lagt þegar skuttogarinn Ingólfur
Arnarson RE kemur, en hann er af sömu gerð og Bjarni Ben. Þá verður Þorkeli Mána
lagt þegar Snorri Sturluson RE kemur, en hann er einnig af sömu gerð og Bjarni.
Þá mun ákveðið að Sléttbaki frá Akureyri verði lagt þegar fyrsti nýi
skuttogarinn kemur þangað, og svo Kaldbak þegar annar skuttogarinn kemur.
Bæjarútgerð Hafnarfjarðar á von á nýjum skuttogara, en ekki mun síðutogaranum
Maí verða lagt þegar hann kemur og að sjálfsögðu verður Sigurði ekki lagt þegar
Einar ríki fær sinn skuttogara. Það er semsagt ljóst að elztu síðutogurunum
verður lagt, en þeim sem enn eru í góðu lagi, eins og Maí og Sigurði, svo dæmi
séu nefnd, verður ekki lagt.
Þjóðviljinn. 21 janúar 1973.