Færslur: 2016 Október
01.10.2016 08:31
42. Eldey KE 37. TFAZ.
Eldey KE 37 var smíðuð í Molde í Noregi árið 1960. Stál 139 brl. 300 ha. Wichmann díesel vél. Eigandi var Eldey h/f í Keflavík frá 2 mars árið 1961. Skipið fórst um 60 sjómílur suðaustur af Dalatanga (Rauðatorginu), 23 október árið 1965. Áhöfnin, 12 menn, bjargaðist í gúmmíbjörgunarbát og þaðan um borð í vélskipið Brimi KE 104, frá Keflavík, sem fór svo með mennina til Neskaupstaðar.


Eldey KE 37. Ljósmyndari óþekktur.
Eldey KE 37. Líkan Gríms Karlssonar. (C) Þórhallur S Gjöveraa.
Síldarskipið
Eldey sökk í fyrrinótt
Síldarskipið Eldey KE 37 sökk í fyrrinótt á síldarmiðunum um
60 mílur suðaustur af Dalatanga og bjargaðist skipshöfnin um borð í
síldarskipið Brimi KE 104, það hét áður Hólmanes frá Eskifirði. Mörg síldarskip
voru á þessum slóðum í fyrrakvöld og var þar leiðindaveður. Um klukkan 21 fékk
Eldey á sig kviku og lagðist þá skipið á hliðina, var þá langt komið að háfa
síld í lestar skipsins. Skipshöfnin brá þegar við og fór í gúmbjörgunarbáta og
var bjargað um borð í Brimi. Þrír skipverjar fóru aftur um borð í Eldey og
dvöldu þar á þriðju klukkustund til þess að freista þess að rétta skipið aftur
á kjöl og tókst það ekki og urðu þeir að hverfa frá borði rétt áður en skipið
sökk. Skipið sökk um kl. 2.20 um nóttina. Skipstjóri á Eldey heitir Pétur Sæmundsson
og var þetta eitt af aflahæstu síldveiðiskipum flotans. Eldey var 5 ára gamalt
stálskip, byggt í Molde í Noregi 1960, og var 139 lestir að stærð. Eigandi þess
var Eldey h.f. í Keflavík. Brimir fór með skipbrotsmennina til Neskaupstaðar og
þar stigu þeir beint upp í flugvél Flugsýn og flugu til Reykjavíkur. Komu þeir
þangað síðdegis í gær. Þá lagðist annað síldveiðiskip á hliðina um líkt leyti á
sömu slóðum. Það heitir Pétur Sigurðsson og er af líkri stærð og Eldey, einnig
aflasælt skip og tókst skipverjum að rétta skipið aftur og kom það heilu og höldnu
til Seyðisfjarðar í gærmorgun.
Þjóðviljinn 24 október 1965.
Skrifað af Þórhalli S Gjöveraa.
Flettingar í dag: 1882
Gestir í dag: 116
Flettingar í gær: 421
Gestir í gær: 22
Samtals flettingar: 1192284
Samtals gestir: 83672
Tölur uppfærðar: 31.3.2025 22:39:31