Færslur: 2019 Október
31.10.2019 19:31
Reykjavíkurhöfn í dag.
2944. Guðrún Þorkelsdóttir SU 211 í slippnum í dag.
29.10.2019 21:24
B. v. Goðanes NK 105 að landa afla sínum í gúanó.
B.v. Goðanes NK 105 að landa í gúanó. (C) Magnús Hermannsson.
Heimalöndun
togaranna
Það varð tilefni til verulegrar óánægju í bænum, að Egill
rauði skyldi ekki leggja afla sinn upp í heimahöfn nú síðast, eins og áformað
hafði verið, en ýmis atvik réðu því að frá því var horfið. Í fyrsla Iagi var
afli í minna lagi og því afar óhagstætt að sigla með hann svo langa leið, sem
um var að ræða. Í öðru, lagi var óttast um gæði fisksins, enda kom það á
daginn, að mikill hluti hans var ekki flökunarhæfur og enn meira hefði án efa
skemmst, ef siglt hefði verið alla leið til Norðfjarar. Í þriðja lagi stóð
fyrir dyrum skipstjóraskipti og var hinn nýji skipstjóri í Reykjavík. Við þetta
bættist svo það, að útgerðin berst nú mjög í bökkum fjárhagslega og við
ráðstöfun afla verður að taka mikið tyllit til hagsmuna útgerðarinnar. Sé það ekki
gert, getur það áður en varir, haft örlagaríkar afleiðingar. Það er eðlilegt,
eins og nú er ástatt með atvinnu í bænum, að það valdi vonbrigðum og óánægju
þegar vinna gengur mönnum úr greipum. En menn verða að setja sig inn l
krigumstæðurnar og gera sér Ijós þau atvik, sem valda viðburðanna rás. Menn
mega vera þess fullvissir, að forráðamenn togaranna, gera það ekki að gamni
sínu að láta skipin leggja upp annarsstaðar en hér. Heyrzt hafa raddir um það
að Egill rauði hafi gert lítið að því, að leggja, upp heima og hefir óspart
verið undir þær raddir ýtt af sumum. Fyrir því þykir mér hlýða að gera grein
fyrir þessum efnum, svo menn sjái hvernig í þessu liggur.
Sjálfir geta menn svo dæmt um það, hvort með sanngirni var til þess ætlast, að
um frekari heimalandanir hafi verið að ræða. Frá áramótum til 5. október hefir
Egill rauði landað innanlands 2.960 tonnum af ísfiski. Af þessu magni hafa 2.075
tonn verið lögð upp í Neskaupstað, en í öðrum höfnum 885 tonn, þar af voru
losuð á Eskifirði og Fáskrúðsfirði 198 tonn, vegna þess, að löndun fékkst ekki
í Neskaupstað, af því frystihúsin voru full. Fram að síðustu mánaðarmótum
hafði. Egill aðeins lagt á land á þessu ári 376 tonn utan þeirra hafna, sem hér
eru nefndar, eða sem svarar rúmlega einum farmi. Það virðist því ekki ástæða
til getsaka um að sneitt sé hjá löndun heima, enda hefir þvert á móti verið
landað heima þegar tök voru á og þá ekki alltaf farið eftir því, sem hagkvæmast
var útgerðinni. Síðasti farmur Egils lagði sig á rúmar 100 þúsund krónur. Að
sigla með hann hingað austur hefði haft í för með sér að minsta kosti 20 - 30
þúsund króna aukakostnað, og getur hver maður séð að frá sjónarmiði
útgerðarinnar var þetta frágangssök. Um Goðanes gegnir nokkru öðru máli. Það
hefir losað miklu meira af ísfiski sínum utan heimahafnar, en Egill. Alls hefir
Goðanes lagt upp innanlands á þessu ári 2.259 tonn af ísfiski þar af í
Neskaupstað 1.097 tonn, en 1.168 annarsstaðar. Auk þess hefir það lagt upp hér
heima einn góðan saltfiskfarm. Báðir togararnir hafa þá á þessu ári lagt upp í
bænum 3.172 tonn af ísfiski. Hve mikil vinnu,laun hafa verið greidd við löndun
og vinnslu á þeim afa, get ég ekki gízkað á, en væn fúlga hlýtur það að vera.
Hætt er við, að margir hefðu misst spón úr aski sínum, ef þessi afli hefði ekki
borizt á land hér. Það veldur vissum erfiðleikum með að fá afla heim, að nú um
þriggja mánaða skeið hefir aðeins annað skipið stundað ísfiskveiðar. Ef þau
hefðu bæði veitt í ís, var miklu hægara um vik, til dæmis að láta skipin leggja
upp heima til skiptis. En fullvíst má telja, að Goðanes leggi ekki upp meiri
afla hér á þessu ári, því þegar það kemur úr yfirstandandi Grænlandsferð,
liggur fyrir að skipið fari í lögboðna klössun og verður henni varla lokið fyrr
en um hátíðar. Við verðum því um skeið að láta okkur nægja útgerð eins togara
og vinnu við þann afla, sem hann kann að leggja hér á land. Ég hefi nú gert
grein fyrir þessum málum eins og þau liggja fyrir. Sjálfir verða lesendur að
beita dómgreind sinni til að dæma um það, hvort ástæða sé til að áfellast forráðamenn
Bæjarútgerðarinnar fyrir að hafa haldið illa á spilunum hvað heimalöndun snertir.
Austurland. 26 október 1952.
27.10.2019 11:19
1137. Barði NK 120 í slipp í Neskaupstað.
Barði NK í slipp Dráttarbrautarinnar hf í Neskaupstað. (C) Guðmundur Sveinsson.
Barði NK að koma til löndunar í Neskaupstað með fullfermi. (C) Guðmundur Sveinsson.
Barði NK 120
í slipp
Barði kom úr veiðiferð á föstudag í fyrri viku með um 114
tonn. Hefur þá skipið fengið um 2.200 tonn síðan það hóf veiðar um miðjan
febrúar. Skipið hefur ekki farið út aftur eftir losun fyrir helgina, vegna
viðgerða og lagfæringa. Í gær fór það í slipp til botnhreinsunar og málunar og
er stærsta skip, sem tekið hefur verið í slipp í Neskaupstað.
Að því er verulegt hagræði og sparnaður fyrir útgerðina, að hægt er að taka
Barða hér í slipp. Fyrir áhöfnina er það líka miklu hagkvæmara og
Dráttarbrautin fær við þetta aukin viðskipti. Sem sagt: Allir aðilar hagnast á
þessu og er það gott. Barði fer væntanlega til veiða aftur um miðja næstu viku.
Austurland. 24 september 1971.
23.10.2019 18:00
904. Vísir BA 44.
Vélbáturinn Vísir BA 44. Ljósmyndari óþekktur.
Nýr bátur
Hlutafélagið Fram í Hnífsdal hefir eignazt nýjan bát. Heitir
hann Jóakim Pálsson og er 15,75 smálestir. Báturinn er smíðaður í Skipasmiðastöð
Marzeliusar Bernharðssonar og er hið myndarlegasta skip. Framkvæmdastjóri
félagsins er Ingimar Finnbjörnsson. Hafa Hnífsdælingar nú fetað myndarlega í
fótspor Ísfirðinga um að koma sér upp nýjum og vönduðum fiskiflota.
Skutull. 27 febrúar 1943.
Vélbáturinn Vísir HU 10 við bryggju á Skagaströnd. (C) Stefán Jósepsson.
Þriggja
rækjubáta með sex mönnum saknað
Óttast er um afdrif þriggja rækjubáta, tveggja frá Ísafirði
og eins frá Bíldudal. Tveir skipverjar eru á hverjum báti. Í gærkvöldi fannst
gúmbátur af einum bátanna við Skarð á Snæfjallaströnd og stíuborð fundust við
Auðkúlu í Arnarfirði, sem talið er að séu af Bíldudalsbátnum. Bátarnir, sem
saknað er, eru Vísir BA 44,16 tonna eikarbátur frá Bíldudal. Gullfaxi ÍS 594,19
tonna eikarbátur frá Ísafirði, og Eiríkur Finnsson ÍS 26. 17 tonna eikarbátur
frá Ísafirði. Ekki er hægt að greina frá nöfnum mannanna sex, sem eru á
bátunum, að svo stöddu.
Rækjubátar réru frá Ísafirði í sæmilegu veðri í gærmorgun og fóru bátarnir, sem
saknað er frá Ísafirði, til veiða í innanverðu Djúpi. Upp úr hádegi var skollið
á aftakaveður af suðvestri. Um klukkan 15 voru bátarnir beðnir um að tilkynna
sig og þá kom í ljós, að tveggja báta, Gullfaxa og Eiríks Finnssonar, var
saknað. Síðast er vitað um Gullfaxa úti af Arnarnesi á leið til Ísafiarðar, og
um Eirík Finnsson þar sem hann var að hífa innan við Ögurhólma skömmu eftir
hádegi, en hafði ekki leitað vars. Þrír línubátar frá Ísafirði fóru til
aðstoðar og leitar fyrir klukkan 3 í gærdag og björgunarsveitarmenn frá
Súðavík, Ísafirði, Hnífsdal og Bolungavík voru tilbúnir. Línubáturinn Guðný fór
með átta björgunarsveitarmenn og kom þeim í land á Sandeyri á Snæfjallaströnd
við erfiðar aðstæður. Þeir munu ganga ströndina í dag og bændur á
Snæfjallaströnd byrjuðu leit á landi þegar síðdegis í gær og menn frá Unaðsdal
fundu í gærkvöldi gúmbát, sem talinn er vera úr Eiríki Finnssyni, við Skarð á
Snæfjallaströnd. Í dag verður leitað á sjó, landi og úr lofti ef veður leyfir.
Fyrrnefndar björgunarsveitir munu hafa aðstöðu í húsi SVFÍ í Bolungarvík, en í
gær tóku auk fyrrnefndra aðila þátt í leitinni starfsmenn Slysavarnafélagsins í
Reykjavík, Landhelgisgæzlu og Ísafjarðarradíós. Upp úr hádegi var farið að
óttast um rækjubátinn Vísi frá Bíldudal, Frigg BA var þá inni á Bíldudal og var
strax beðinn um að fara og svipast um eftir bátnum. Þá var varðskipi, sem var
miðsvæðis úti af Vestfjörðum, snúið við og stefnt í Arnarfjörð. Það hafði áður
verið beðið um aðstoð vegna Ísafjarðarbátanna, en snúið við þar sem færri skip
voru til leitar í Arnarfirði. Vísir hafði verið að hífa fyrir innan Gíslasker
þegar síðast fréttist, en bátarnir Vísir og Pílot BA 6 höfðu haft samband sín á
milli. Varðskipið fór inn fyrir Gíslasker, inn á Dynjandisvog og Borgarfjörð,
en sá ekki neinn bát. Hins vegar fannst ómerktur rækjukassi og lestarborð út af
bænum Auðkúlu. Bændur á Auðkúlu fundu síðan í gærkvöldi grámáluð stíuborð með
rauðum röndum, sem talið var að væru frá Vísi. Björgunarsveitarmenn fara með
varðskipi í dag og taka land á Rafnseyri til þess að leita fjörur við
norðanverðan Arnarfjörð.
Morgunblaðið. 26 febrúar 1980.
Sjómennirnir
taldir af
19 börn misstu feður sína
Sjómennirnir sex af vestfirsku rækjubátunum þremur sem
saknað var á mánudag eru nú taldir af og formlegri leit hætt í Ísafjarðardjúpi
og Arnarfirði. Flugvél frá flugfélaginu Örnum flaug leitarflug í gær án
árangurs, en næstu daga verður gengið á fjörur eftir því sem aðstæður leyfa.
Vitað er um flökin af Gullfaxa og Eiríki Finnssyni á 50 og 36 faðma dýpi skammt
norður af Vigur og brak hefur fundist úr Vísi.
Með Gullfaxa fórust bræðurnir Ólafur S. Össurarson og Valdimar Þ. Össurarson
Ísafirði. Ólafur var 48 ára gamall, kvæntur og þriggja barna faðir.
Valdimar var 40 ára, kvæntur og átti fjóra syni.
Með Vísi fórust Pétur Valgarð Jóhannsson og Hjálmar Einarsson frá Bíldudal.
Pétur var 44 ára, kvæntur og fimm barna faðir.
Hjálmar var 36 ára, kvæntur og fjögurra barna faðir, en hann átti einnig
stjúpbarn.
Með Eiríki Finnssyni fórust Haukur Böðvarsson og Daníel Jóhannsson frá
Ísafirði. Haukur var 31 árs og ókvæntur en Daníel var 35 ára, kvæntur og tveggja
barna faðir.
19 börn urðu föðurlaus þegar þessir þrír bátar fórust.
Morgunblaðið. 28 febrúar 1980.
17.10.2019 19:29
1277. Ljósafell SU 70 að landa afla sínum í Reykjavíkurhöfn.
1277. Ljósafell SU 70 í Reykjavíkurhöfn. (C) Þórhallur S Gjöveraa. 4 október 2019.
Kaupfélagið hefur frá upphafi haft forustu
í fiskvinnslu og útgerð og tryggt atvinnu Viðtalið við Pál Jónsson kaupfélagsstjóra á Fáskrúðsfirði
Fáskrúðsfjörður er einn Austfjarða og er bæði langur og
mjór. Skrúður, vakir í fjarðarmynninu norðanmegin, ábúðarfullur og fagur, og
það virðist óendanlega langt að aka inn Skriðurnar eftir brattri
fjallshliðinni, fram hjá Kolfreyjustað, þar sem hann Páll Ólafsson fæddist og
inn þar sem heitir Búðir, en svo nefnist 700 manna þorp á Fáskrúðsfirði. Innar
er skógivaxinn dalbotn, djúpur og friðsæll, en það stingur í stúf við
brimsjóinn úti við Skrúð. Talið er að verzlun hafi verið stunduð lengi i
Fáskrúðsfirði, og þar hefur ávallt verið útgerð. Verzlun hófst þar árið 1890 og
í eina tíð var staðurinn mikil bækistöð franskra skútumanna og er
Fáskrúðsfjarðarfranskan ef til vill bezti minnisvarðinn um það.
Fáskrúðsfirðingar og Flandrarar skópu nýtt tungumál, sem raunverulega var hægt
að nota í mannlegum samskiptum. Frakkar reistu hér sjúkrahús og kapellu og
gerðu sér kirkjugarð fyrir þá sem féllu. En síðan er mikið vatn runnið til
sjávar. Nú talar enginn frönsku á Fáskrúðsfirði, en lífið heldur áfram og við
finnum að það er ekki laust við að sérstakur lífsstíll hafi fest hér rætur í
þröngum firðinum, þótt ekki sé lengur töluð franska yfir búðarborðið eða á
götunum.
Timinn kynnir að þessu sinni Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga, en kaupfélagið þar, er
eitt þeirra kaupfélaga, sem neyðzt hafa til djarfra fjárfestinga á stundum, til
þess að fólkið í firðinum mætti hafa í sig og á, hefur með öðrum orðum haft
forystu í atvinnulífi staðarins. Fyrir fjórum árum kom hér ötull
kaupfélagsstjóri, vestan frá Snæfellsnesi, Páll Jónsson, og það er mál manna,
að hann hafi reynzt réttur maður á réttum stað, því að eftir erfið ár og
samdrátt á öllum sviðum, er nú blómleg verzlun á Fáskrúðsfirði og næg atvinna
er handa öllum, sem vilja vinnu. Timinn átti stutt viðtal við Pál Jónsson,
kaupfélagsstjóra og sagðist honum frá á þessa leið um kaupfélagið og útgerðina:
- Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga mun hafa verið stofnað árið 1933 og er félagssvæði
þess Fáskrúðsfjörður allur og fáeinir bæir í Reyðarfirði, sunnanverðum.
Kaupfélagið var einkum bændaverzlun og afurðasala, eins og þá tíðkaðist, enda
kaupfélögin einkum stofnuð til að tryggja félagsmönnum sínum hagstæða verzlun.
Hér á fjörðunum var þá mun meiri sveitabúskapur, en núna er, en þó er hér
talsverður landbúnaður og slátraði kaupfélagið, t.d. um 5000 fjár í
sláturhúsinu á síðasta hausti. Þá er nokkur mjólkurframleiðsla, en mjólk er
lögð inn hjá mjólkurbúinu á Egilsstöðum. Búskapur hefur þó ávallt verið í
nokkrum tenglsum við sjóinn hér á fjörðunum, og bændur hafa jafnframt stundð
handfæraveiðar og minniháttar útgerð og er svo enn þann dag í dag. Róið er frá
Eyri og Vattarnesmenn róa og eins hann Guðjón á Kolmúla, en þótt hér áður og
fyrr væri sjórinn nytjaður mest af bændum og vinnuhjúum þeirra, er þetta óvíða
svo, enn þann dag í dag, nema helzt hér á Austfjörðum.
Fiskverkun hefur ávallt verið talsverður þáttur í atvinnu manna hér og það eru
áratugir síðan kaupfélagið hóf beina þátttöku í vinnslu sjávarafla, þótt hins
vegar sé verzlunin, sem fyrr aðalstarfið. Hér munu vera um 300 félagsmenn í
kaupfélaginu og kaupfélagsverzlunin mun fara með um 70% af viðskiptum hér. Var
heildarvörusala í kaupfélaginu um 30 milljónir króna á síðasta ári. Er þetta að
langmestu leyti almenn verzlun við fólkið í héraðinu og við rekum tvær búðir,
sláturhús, gistihús, og seljum oliur og bensín. Hjá kaupfélaginu starfa nú um
20 manns. Kaupfélagið er aðaleigandi og rekur Hraðfrystihús Fáskrúðsfjarðar hf.
og þá um leið fiskimjölsverksmiðju og útgerð tveggja skipa, 180 tonna
stálskips., sem ber nafnið Hoffell og skuttogarann Ljósafell, sem smíðaður var í
Japan og kom til landsins 30. maí síðastliðinn. Hefur togarinn síðan aflað vel
og hefur landað hér á Fáskrúðsfirði, þar sem aflinn er hraðfrystur og unninn.
Togarinn hefur reynzt mjög dýrmætt atvinnutæki og hefur undanfarna tvo mánuði
lagt hér á land um 880 lestir af fiski, en þessi mikli afli gjörbreytir
auðvitað málunum hér, þar eð hráefnisöflun var mikið vandamál hjá okkur og tímabundið
atvinnuleysi gat verið hér á stundum. Skuttogarinn kostar 140-150 milljónir
króna, sem er mikið fé fyrir ekki stærra félag, enda varð að selja ágætt skip, Búðafell,
til þess að hægt væri að leggja fram fé til smíða togarans, en auðvitað munar
mest um forgöngu ríkisstjórnarinnar og stjórnarflokkanna í málinu, en þeir
lögðu sem kunnugt er grundvöll að eflingu togaraútgerðarinnar.
Kaupfélagið rekur eitt elzta hraðfrystihús landsins og voru framleiðsluafköstin
árið 1970 og 1971 um 30.000 kassar af hraðfrystum fiski.
Árið 1972 minnkaði
þessi framleiðsla verulega þar eð við urðum að selja Búðafellið en í júlílok
vorum við búnir að frysta um 25.000 kassa, svo heildarframleiðslan mun aukast
verulega á þessu ári. Hjá frystihúsinu starfa um 70 manns og má segja að nokkur
skortur sé á vinnuafli þessa síðustu daga, vegna togaraaflans. Eins og áður
sagði, er hraðfrystihúsið okkar eitt af þeim elztu, sem fyrir eru á landinu.
Þar hefur verið unnið við erfið og kostnaðarsöm vinnuskilyrði, þar sem erfitt
er að koma við fullkomnu hreinlæti og nútíma hagræðingu. Því var hins vegar svo
farið, að ekki var hægt að hugleiða endurbyggingu, þar er reksturinn var
bágborinn og stöðvaðist alveg um tíma. Nú er hins vegar kominn fullur skriður á
hraðfrystihúsmálið. Unnið hefur verið að undirbúningi um alllangt skeið, bæði
af tæknimönnum og svo forráðamönnum hér á staðnum og er nú búið að teikna nýja
vinnslueiningu, þ.e. hraðfrystihús, fiskmóttöku vélasal og frostgeymslu í 2.200
fermetra stálgrindarhúsi, sem reist verður á hafnarbakkanum, eða á hafsbotni,
ef svo má orða það, en það þýðir að ekki þarf að aka fiskinum frá bátunum, því
að þeir landa beint í fiskmóttökuna og útskipun á frosnum fiski verður beint úr
geymslunum í skip. Nýja hraðfrystihúsið teiknuðu þeir Örn Baldvinsson og Karl
Bjarnason og verður það stálgrindahús og allt reist úr viðhaldsfríu efni.
Byrjað er að steypa undirstöður fyrir húsið sem standa mun á steyptum staurum,
sem reknir verða í fjöruborðið. Útboði er lokið og verður innan skamms tekin
ákvörðun um það, hverjum verður falin smiði stálgrindahússins.
Við hér bindum að sjálfsögðu miklar vonir við þetta nýja hraðfrystihús og
vinnslueiningu og erum bjartsýnir á rekstur þess. Afkastageta hússins verður 40
tonn á 10 klukkutímum, en það er hæfilegt til að taka á móti afla af 2-3
skuttogurum, eins og hann er núna. Hraðfrystihúsið rekur fiskimjölsverksmiðju,
sem tók á móti 13.500 tonnum á síðustu loðnuvertið. Þar af voru fryst um 400
tonn af loðnunni, hitt fór í bræðslu. Nú er verið að bæta löndunaraðstöðuna hér
og gerum við ráð fyrir að geta brætt svolítið meira á næstu vertið, en
verksmiðjan bræðir 200 tonn á sólarhring. Það, sem við beinum orkunni að nú, er
að auka þróarrýmið, en á síðustu vertið vorum við með loðnu hreint út um allan
bæ, en það er að sjálfsögðu kostnaðarsamara, en að geyma hana á hentugu
löndunarplani. Framleiðsluverðmæti fiskvinnslu okkar og
fiskimjölsverksmiðjunnar voru á árinu 1972 milli 70 og 80 milljónir króna, en
við erum þegar komnir á annað hundrað milljón krónur á þessu ári, enda berst
stöðugt fiskur að hér á Fáskrúðsfirði, bæði af togaranum og bátnum og svo er
aragrúi smábáta að veiðum hér og leggur upp aflann hjá Hraðfrystihúsinu, segir
Páll Jónsson, kaupfélagsstjóri að lokum. Sem fram kemur í þessu stutta spjalli,
þá snúast hjólin hratt hjá þeim á Fáskrúðsfirði. Meira að segja kominn togari
frá Japan og verkfræðingar og tæknimenn rýna í reislur og kvarða til að kanna
sjávarbotn. Þeim sem kunnugir eru atvinnuástandi á Fáskrúðsfirði fyrir aðeins
fáeinum árum, sem og öðrum afskekktum fjörðum, er það ljóst, að mikil breyting
hefur orðið á til hins betra. Sumt vilja menn og eiga að þakka breyttri
stjórnarstefnu, alhliða sókn í atvinnulífi, en samt má ekki ganga framhjá
dugnaði Fáskrúðsfirðinga sjálfra, sem lagt hafa nótt við dag, til að endurreisa
atvinnulíf staðarins og skapa nýja lífstrú í hinum langa firði.
Tíminn. 19 ágúst 1973.
17.10.2019 17:04
B. v. Ýmir GK 448. LCDP / TFKC.
Botnvörpungurinn Ýmir GK 448
var smíðaður hjá George Seebeck A.G. í Geestemunde (Bremerhaven) í Þýskalandi
árið 1915 fyrir Fiskiveiðahlutafélagið Ými í Hafnarfirði. 269 brl. 500 ha. 3
þennslu gufuvél. Smíðanúmer 356. 133,3 ft. á lengd, 23,4 ft. á breidd og djúprista 12,6 ft. Skipið var selt í ágúst 1928, Þórði Flygenring
í Hafnarfirði, hét hjá honum Eldey GK 448. Skipið var selt í nóvember 1928,
Fiskiveiðahlutafélaginu Kára í Viðey, hét Þorgeir skorargeir GK 448. Eftir að
Kárafélagið í Viðey fór í þrot haustið 1931, eignaðist Útvegsbankinn allar
eignir félagsins,þ.m.t. togarann Þorgeir skorargeir GK. Selt 27 október 1932,
Sameignarfélaginu Kópi í Reykjavík, skipið hét Kópur RE 33. 4 febrúar 1937 var
Útvegsbanki Íslands eigandi. Selt 1937-38, Hlutafélaginu Aski í
Reykjavík, hét Þorfinnur RE 33. Þegar h/f Askur í Reykjavík kaupir togarann
Skutul ÍS 451 af h/f Val á Ísafirði, 20 mars 1942, taka Ísfirðingarnir togarann
Þorfinn RE 33 upp í kaupin. Skipið var selt 22 nóvember 1945, p/f Tór í
Þórshöfn í Færeyjum, fékk nafnið Tórfinnur TN 78. Seldur 1951, p/f Steyrur í
Þórshöfn (Jákup Jensen), sama nafn og númer. Seldur 1955, Alfred Johansen í
Þórshöfn, hét Bakur VN 356. Seldur 1956, G Hansen í Þórshöfn, sama nafn og númer.
Togarinn hefur sennilega farið í brotajárn fljótlega eftir árið 1956.
B.v. Ýmir á toginu út af Jökli. (C) Guðbjartur Ásgeirsson.
B.v. Ýmir GK 448 á siglingu, sennilega fyrir norðan land. (C) Guðbjartur Ásgeirsson.
"Ýmir"
»Ýmir« hinn nýi botnvörpungur Hafnfirðinga, kom í nótt eftir
7 daga ferð frá Kaupmannahöfn Hann er smíðaður í Þýskalandi, og fór norður með
Noregsströndum, allt að Álasundi. Um borð voru 7 farþegar.
Vísir. 6 júní 1915.
B.v. Kópur RE 33 á Reykjavíkurhöfn. Ljósmyndari óþekktur.
B.v. Þorfinnur RE 33. (C) Guðbjartur Ásgeirsson.
Trolarinn Torfinnur TN 78. Ljósmyndari óþekktur.
B.v. Ýmir GK 448. Málverk eftir Elston Hull.
Togaraútgerð
Hafnfirðinga
Auk þeirra Hafnfirðinga, sem ráku útgerð í byrjun 20.
aldarinnar, koma nokkuð margir útlendingar við sögu, en þeir höfðu mikla
útgerðarstarfsemi hér fyrstu þrjá áratugi þessarar aldar. Fyrstu tilraunir, sem
gerðar voru með botnvörpu hér við land, voru gerðar af þýzkum manni árið 1889,
en Englendingar hófu hér veiðar með botnvörpum 1891. Frá Hafnarfirði er fyrst
gerð tilraun með botnvörpuveiðar af brezkum fiskikaupmanni, Pike Ward að nafni,
árið 1899, en togarinn nefndist "Utopia". Þessi útgerð stóð aðeins þetta
eina ár og varð Ward að hætta henni vegna ýmissa erfiðleika.
Erlendum togurum, knúnum gufuafli, fjölgaði nú við strendur landsins, og voru
þeir mjög fengsælir. íslendingar tóku brátt að gera tilraunir með útgerð
togara, en þær misheppnuðust flestar í byrjun. Þá var það árið 1904, að nokkrir
íslenzkir útvegsmenn og kaupmenn tóku sig saman og réðust til kaupa á litlum og
nokkuð gömlum enskum togara, sem bar nafnið "Coot". Þeir voru Arinbjörn
Ólafsson, Keflavík, Björn Kristjánsson, Reykjavík, Guðmundur Þórðarson, Gerðum,
Þórður Þórðarson, Reykjavík, Indriði Gottsveinsson, Reykjavík, sem varð
skipstjóri á Coot og Einar Þorgilsson, Óseyri, sem jafnframt varð
framkvæmdarstjóri fyrir félaginu.
Var þetta fyrsta íslenzka togaraútgerðin, sem heppnaðist og var Coot gerður út
frá Hafnarfirði. Útgerð þessi stóð nokkuð skammt, því Coot strandaði við
Keilisnes í desember 1907 og var þá að koma úr viðgerð í Reykjavík. Íslenzkir
togarar eru ekki gerðir út frá Hafnarfirði, frá því Coot ferst, þar til 1915.
Þá eru smíðaðir í Þýzkalandi tveir togarar, Ýmir og Víðir, sem voru eign
samnefndra hlutafélaga, en Ágúst Flygenring veitti því fyrra forstöðu, en
Þórarinn Böðvarsson því síðara. Með tilkomu þessara tveggja togara til
Hafnarfjarðar, hefst raunverulega innlend stórútgerð hér. Hefur innlend togara útgerð
verið rekin í Hafnarfirði stöðugt síðan 1915. Erlendir aðilar höfðu töluverða
togaraútgerð hér framan af þessari öld, þó með nokkrum hvíldum. Höfðu flestir
þeirra aðsetur í "Svendborg", en hinir síðustu hurfu héðan um 1929. Var
það firmað Hellyers Brothers Ltd., Hull, sem gerði út 6 togara frá Hafnarfirði
á árunum 1923-1929.
Hafnfirzkir útgerðarmenn juku á næstu árum botnvörpuskipastól sinn mjög mikið
og voru flestir gerðir út 12 íslenzkir togarar frá Hafnarfirði, en í dag eru
gerðir út 6, og eru það að sjálfsögðu allt nýsköpunartogarar. Árið 1931 hóf
Bæjarútgerð Hafnarfjarðar starfrækslu sína og festi kaup á togaranum Maí. Hefur
Bæjarútgerðin verið starfrækt síðan og gerir nú út 3 togara og 1 mótorbát.
Forstöðumaður Bæjarútgerðarinnar var ráðinn Ásgeir G. Stefánsson, og hefur hann
komið töluvert við sögu útvegsmála í Hafnarfirði síðan. Hafði hann áður haft
töluverð afskipti af vélbátaútgerð hér í bæ. Aðrir togarar sem gerðir eru út
frá Hafnarfirði í dag, eru Röðull, sem Venus h.f. gerir út, Surprise, sem Einar
Þorgilsson & Co. h.f. gerir út og Bjarni riddari, sem Hrafnaflóki h.f.
gerir út. Eftir síðari heimsstyrjöldina var allur skipastóll
togaraútgerðarinnar í Hafnarfirði endurnýjaður. Er nú svo komið, að engir af hinum
gömlu togurum eru gerðir hér út lengur. Fyrsti nýsköpunartogarinn, sem kom til
Hafnarfjarðar, var togarinn Bjarni riddari, er kom í september árið 1947.
Hamar. 1 júní 1958.
16.10.2019 22:05
2944. Guðrún Þorkelsdóttir SU 211. TFDD.
Uppsjávarveiðiskipið Guðrún
Þorkelsdóttir SU 211 var smíðuð hjá Vakaru Baltijos í Klaipeda í Litháen og
skipið síðan klárað hjá Karmsund Maritime Service A/S í Kopervik í Noregi árið
1999. 1.773 bt. 5.220 ha. MaK 8M32 vél, 3.480 Kw. Smíðanúmer 14. Hét fyrst Ventla H-40-AV
og var í eigu Ventla A/S í Torangsvag í Noregi. Frá júlí 2013 hét skipið Ventla
ll. Skipið var selt í febrúar 2015, Arctic Prime Fisheries ApS í Qaqortoq á
Grænlandi, fékk nafnið Qavak GR 2 1. Selt í september 2017, Eskju hf á
Eskifirði. Fékk nafnið Guðrún Þorkelsdóttir SU 211 er gert út af Eskju hf á
Eskifirði í dag. Sannarlega fallegt skip. Ég tók þessar myndir af Guðrúnu í
morgun þegar hún lá við Grandagarðinn í Reykjavíkurhöfn.
2944. Guðrún Þorkelsdóttir SU 211.
2944. Guðrún Þorkelsdóttir SU 211.
2944. Guðrún Þorkelsdóttir SU 211. (C) Þórhallur S Gjöveraa. 16 október 2019.
Guðrún Þorkelsdóttir SU 211
Eskja á Eskifirði tók í byrjun
september á móti nýju skipi sem fengið hefur nafnið Guðrún Þorkelsdóttir.
Skipið hefur þegar farið í fjórar veiðiferðir.
Skipið er upphaflega smíðað í Noregi árið 1999
og var gert út frá Bergen undir nafninu Vendla til ársins 2015. Það var þá selt
til dótturfélags Brims í Grænlandi og hét Qavak.
Qavak gekk síðan upp í kaupin að hluta þegar
grænlenska útgerðin keypti Aðalstein Jónsson af Eski fyrr á árinu.
Skipið er tæp 1800 brúttótonn, 68.1 metrar að
lengd og 12,6 metrar að breidd. Skipið landaði síðast á Eskifirði á miðvikudag.
Uppistaðan í aflanum voru 1500 tonn af kolmunna.
Með tilkomu Guðrúnar má segja að fjölskyldan sé
sameinuð á ný en foreldrar Aðalsteins, stofnanda Eskju, hétu Guðrún
Þorkelsdóttir og Jón Kjartansson. Nokkur ár eru hins vegar síðan skip með
Guðrúnarnafninu voru í flota fyrirtækisins.
Hjálmar Ingvason er skipstjóri á Guðrúnu
Þorkelsdóttur.
Austurfrétt. 23 október 2017.
14.10.2019 11:10
Söguleg veiðiför á togaranum Skallagrími RE 145.
Þessi frásögn hér að neðar skrifar Guðmundur Jónsson skipstjóri á Skallagrími í Sjómannablaðið Víking í febrúar árið 1946, eða 19 árum eftir þennan örlagaríka atburð. Guðmundur lést nokkrum mánuðum síðar, eða hinn 5 september 1946, aðeins 56 ára að aldri.
B.v. Skallagrímur RE 145 á siglingu. (C) Guðbjartur Ásgeirsson.
Söguleg
veiðiför á togaranum Skallagrími
Árið 1926, í byrjun desembermánaðar, eða fyrir réttum 19
árum, er haldið í veiðiför úr Reykjavíkurhöfn seinni hluta dags. Og eins og
sjálfsagt var um þetta leyti árs, var ákveðið að fara á miðin fyrir Vestfjörðum
norðan Ísafjarðardjúps, eða Halann. Þegar komið var út og norður af Gróttu, lét
ég kalla á stýrimanninn, sem var Sigurður Jónsson frá Bakka á Seltjarnarnesi.
Sigurður kom að vörmu spori, og ég segi við hann: "Taktu hér við stjórninni, ég
ætla að leggja mig. Stefnan er N. N.V., og hafðu svo góðar gætur á öllu".
Ég bjóst ekki við að sofa lengi. Ég fór niður í herbergi mitt, og er að líta í
kortið af Faxaflóa. Dettur mér í hug að gaman væri að reyna vestur Hvalfellið
eitt "hal" um leið og farið er þar framhjá. Veðri var svo háttað, að stinningskaldi
var á af austri, úrkomulaust en skýjað. Útlit var ekki sem bezt. Þetta mið er
ágætt fiskimið; er þá komið vestur og norður fyrir vestara hraun. Gengur oft
fiskur þarna um, um áramótin, nýskriðinn vestan úr Jökuldjúpi. Ég kalla til
Sigurðar upp á stjórnpallinn, og segi við hann: "Við skulum reyna eitt
"hal" þarna á áðurnefndu miði, eða þegar komið er um 19 mílur á loggið frá
Akureyjarbauju. Þú getur kastað og togað í einn klukkutíma". Sigurður
þessi var þaulkunnugur á flestum slóðum flóans, eins og þeir Seltirningar
aðrir. Eftir þetta líður ekki á löngu þar til ég er fallinn í væran svefn.
Eftir fjóra tíma vakna ég, og skynja undir eins að skipið er enn á fullri ferð.
Ég fer því upp á stjórnpallinn, og held að þar hafi ekki verið kastað, eða að
það hafi orðið lítið vart við fisk, og Sigurður hafi haldið af stað vestur af
þeim sökum, því það hafði ég sagt honum að gjöra ef honum litist ekki á
veiðina. Hafði verið sett vakt og var Sigurður stýrimaður farinn niður. Ég spyr
nú vökuformann um veiðina. Sagði hann að það hafi verið sæmilegur poki í
drættinum af laglegum þorski, og ýsu hafði orðið vart í því.
Pokinn tekinn innfyrir en nokkrir eftir enn í belgnum. (C) Guðbjartur Ásgeirsson.
En með því að veðurútlit fór versnandi, og ég bjóst við verra veðri í vændum
vestra, lét ég snúa skipinu inn um aftur og hugði að reyna betur á þessu miði.
Þegar þangað er komið, læt ég vörpuna út, og fer eftir dýpi, því að engin merki
sáust vegna náttmyrkurs. Dreg ég nú í einn og hálfan tíma. Þegar varpan kemur
upp, eru í henni tveir dágóðir pokar af þorski og stórýsu. Þykir mér nú vænkast
útlitið, því að sannfærður var ég um það að ekki væri kastandi fyrir vestan.
Læt ég nú út dufl á því dýpi sem mér fannst ráðlegast. Held ég síðan áfram
veiðinni og fæ 2-3 poka í drætti meðan dimman er. Þegar birti af degi, örfaðist
veiðin allt upp í 5-6 poka í drætti meðan birtunnar naut, meðfram af því að nú
sá ég til miðanna. Um hádegisbil kom til mín enskur togari. Virtist mér hann
gjöra sér lítið gagn, líklega vegna lélegra veiðarfæra. Var hann ávallt að
sprengja belginn, því að aldrei fékk hann meira en poka í drætti, og gat það stafað
af belgrifrildi. Þegar dimma tók, tregaðist veiðin aftur, en var þó sæmileg
alla nóttina. Jafnframt versnaði veður, og gjörði þunga undiröldu. Var nú
auðséð að uppgangs illviðri var í vændum af vestri eða norðri, og
loftþyngdarmælir mjög lágur. Haldið var samt áfram við veiðina þótt aðstaða öll
versnaði til muna. Reittist vel meðan verið var að, en undir dimmumótin
versnaði svo að ekki þótti mér fýsilegt framhaldið. Tók ég upp duflið og
hugsaði mér að reyna á Bollasviði og Leirukletti, en þau mið eru í
suðurflóanum, eins og kunnugt er. Hafði vindur gengið um daginn í vestrið, og
þá þyngt undirsjóinn svo að minnstu munaði að hryggjaði á hraununum. Ég hélt nú
suður í flóann og var vont að ferðast suðureftir. Kom ég þar undir kvöldið,
leist ekki á að kasta vegna dimmviðris og drungaútlits.
Varð það úr að ég fór inn undir Keflavík og lagðist þar. Einnig fannst mér
réttast að hvíla skipverja, sem höfðu haft undanfarið langa vinnustund og
erfiða. Það er skemmst frá að segja, að við lágum þarna í tvo daga og eina
nótt. Illviðri var á, mestan tímann.
Fiskur flattur um borð í togara. (C) Guðbjartur Ásgeirsson.
Undir birtuna annars dags hægði lítið
eitt. Fór ég því út að athuga hvernig umhorfs væri. Var slarkfært togveður
fyrst og fór batnandi. Þó var útlit afar illt. Þegar bjart var orðið, varð ég
var við tvö skip fyrir norðan hraun. Vegna þess að lítið var að hafa þar sem ég
var, kippti ég norður að þessum skipum sem ég sá þar. Voru það Hannes ráðherra
og útlendingurinn, sem hafði verið með mér áður. Þarna varð vel vart um daginn
og héldum við okkur norðarlega í Akurnesingaforum. Stórt og öflugt dufl var
þarna, sem Englendingur átti, og á því gott gasljós. Vindur var hægur þennan
dag, en biksvartur sorti í suðvestrinu og allt upp í norðvestrið. Undan þessum
sorta ýfðist undiraldan ótrúlega, svo að öðru hvoru braut úr toppnum á stærstu
öldunum, sem sýndi það að þær kenndu grunns. Þegar svona stendur á, og
veðurútlit þannig, að augljóst er hvað er í vændum, er öruggast að hafa tímann
fyrir sér og forða sér meðan má og komast í var, sérstaklega þar sem staðurinn
er stórhættulegur, eins og hér var um að ræða. En það fer svo fyrir flestum
fiskimönnum, að ef vel er vart fiskjar, er þeim um og ó að hætta veiðum meðan
stætt er, og því fer stundum sem fer, að slysin verða. Eins fór fyrir mér í
þetta sinn. Eftir að dimma tók skellti hann á stórviðri af suðvestri og kl. um
10 e. h. er komið ofsarok. Við höfðum tekið inn vörpuna undir eins og byrjaði
að hvessa, bundum hana vel og gengum frá öllum lúkugötum eins og bezt varð. Við
héldum okkur við duflið, sem stóð á 30 faðma dýpi. Vonaði ég að duflið stæði af
sér veðrið og sjóinn, en svo varð ekki, því að um lágnættið hverfur ljósið, og
var nú ekki að treysta á annað en lóðið, sem var handlóð, og því ekki vel
nákvæmt. Um kvöldið, áður en fullhvessti, hafði Hannes ráðherra, skipstjóri
Guðmundur Markússon, farið innar í Flóann og komst hann inn á Reykjavíkurhöfn.
Ég stóð á stjórnpalli og lét lóða öðru hvoru, dýpið ávallt um og yfir 30
faðmar. Nú er eitt að nefna. Reynslan hefur sýnt, að í slíkum ofveðrum getur
verið stýrt óaðfinnanlega í veður og sjó, og því gæti virtzt að skipið fari
áfram, en svo hefur orðið sú staðreynd, að skipið hefur farið aftur á bak. Þar
sem við vorum staddir, hagar svo dýpi, að áll eða dýpi er, sem kallast Forir.
Dýpi þetta gengur inn fyrir Akranes, beygir til suðurs fyrir utan Gróttu og er
þar kallað Djúp. Nær þessi áll allt suður á móts við Vatnsleysur.
Áhöfnin á Skallagrími RE 145 árið 1924. Ljósmyndari óþekktur.
Utan við og út í Flóanum er mikið grynnra, svo að þar sem grynnst er, eru 8-9
faðmar á Vestrahrauni, en um 5-6 faðmar á Syðrahrauni, eins og kunnugt er
sjófarendum. Ég vissi það, að ekki mátti mikið grynna dýpið, því að þá væri
voðinn vís. Samt var nú farið að grynna þegar leið á nóttina, upp í 25 faðma.
Nú var spurningin: "Hefur skipið farið aftur á bak í þessu voðaveðri, og er því
að nálgast Mýraskerin, eða hefur það tekið áfram og erum við að nálgast
grunnbrotin úti í Flóanum? Það var ekki auðvelt að ákveða það með vissu, en ég
þóttist viss um, að öllu væri óhætt meðan við værum á yfir 20 faðma dýpi.
Klukkan 4 um nóttina lægði mesta ofsann. Það skal nefnt hér, að eftir að duflið
hvarf, var Englendingurinn ávallt kippkorn fyrir aftan skip okkar, og reyndi
hann auðsjáanlega að vera sem næst okkur og tapa okkur ekki úr augsýn. Var það
okkur ekki til baga. Eins og áður er sagt, var farið að hægja kl. um 4, og kl.
tæpt 5 var stöðvað og lóðað. Reyndist dýpi um 19 faðmar. Kalla ég nú á Sigurð
stýrimann, því að nú ætlaði ég niður að hvíla mig, vegna þess hve veður fór
batnandi. Lét ég reka undan vindi meðan við töluðumst við. Vorum við báðir
staddir í herbergi mínu. Um þetta leyti var á verði á stjórnpalli
vaktarformaður, sem var Þórður Þorsteinsson, síðar skipstjóri á botnvörpungnum
Baldur. Hann fórst með mótorskipinu Þormóði í því stóra slysi. Þeir, sem með
honum voru á verðinum, voru Aðalsteinn Jónsson, nú lögregluþjónn í Reykjavík,
frændi minn, og Ólafur Jónasson, giftur systur konu minnar. Hann dó seinna af
slysi um borð í Skallagrími á síldveiðum (hryggbrotnaði). Klukkan 5 voru
vaktaskipti. Fór Ólafur þá fram í híbýli háseta til að kalla út næstu vakt. Ég
kalla til Þórðar og segi honum að andæfa í vindinn, vélin var að byrja gang og
skipið var komið skáhalt í vindinn.
B.v. Skallagrímur til hægri. Myndin er tekin frá Garðari GK 25. (C) Guðbjartur Ásgeirsson.
Kallar þá Þórður að það sé að koma brotsjór yfir skipið. Er ekki að sökum að
spyrja. Sjórinn kom yfir stjórnborðskinnung og aftur yfir. Skipið kastast á bakborðshlið
og á hvolf, þó þannig að það fór ekki hringinn yfir, heldur réttist aftur og lá
síðan alveg á hliðinni með möstrin í sjó. Streymdi nú sjór í skipið þar sem op
voru á, einnig ofan um uppgönguna í herbergi mínu, en þar stóðum við niðri,
eins og áður er sagt, ég og stýrimaðurinn. Loftskeytamaðurinn, Einar
Benediktsson, lá á þverbekk í herbergi mínu. Í kastinu, sem kom á skipið, tókst
hann upp af bekknum og barst með loftinu inn í hvílurúm mitt, en það var
bakborðsmegin. Þar mættumst við og rákumst saman, því ég hafði einnig komizt
upp í loft og inn í "kojuna". Á meðan hafði Sigurður stýrimaður skorðast
við stigann. Uppi í stjórnpalli hafði allt brotnað, sem brotnað gat, svo sem
timburbygging kringum gluggana, hurðir og gólfflekar. Þórður hafði fleygt sér á
gólfið og hélt sér um fót vélsímans. Aðalsteinn hafði verið við stýrishjólið.
Krækti hann báðum höndum í gegnum hjólið og hélt fast, en fætur hans voru
einhversstaðar utan við stýrishúsið, því að maðurinn er allra manna lengstur,
röskir 2 metrar á hæð. Niðri hjá okkur leit ekki vel út. Við reyndum að komast
á fætur, og stóðum þá að brjósti og hálsi í sjó, eftir hæð hvers og eins.
"Þetta dugar ekki" segi ég við Sigurð, sem enn stóð í stiganum. "Við
verðum að komast upp, annars köfnum við hér eins og kettlingar". Enn
streymdi sjór niður, og þó minna, svo að við komumst allir upp. Þegar þangað
kom," urðum við að standa á þilinu,. því að gólfið var lóðrétt. Þegar ég
komst upp, og fór að virða fyrir mér ástandið, gat ég ekki séð annað en að skipið
væri að sökkva. Ég áleit það óhjákvæmilegt sökum þess, að þegar skipið fór á
hvolf, heyrðist brak og brestir ógurlegir, sem ég hélt að stöfuðu af því að
skipið væri að springa og rifna.
Skipið lá alveg á bakborðshlið. Formastrið var heilt, en stöngin í toppnum af.
Barðist mastrið í bárutoppana.
Með gott hal á síðunni. Myndin er tekin um borð í Ver GK 3. (C) Guðbjartur Ásgeirsson.
Skipsskrokkurinn var að hálfu upp úr sjó,
sjómálið um lúgugötin. Einstaka bára skall upp undir hástokkana á stjórnborða.
Mér varð það fyrst fyrir að miða við þetta hvort skipið lækkaði í sjónum og
væri því að sökkva. Bað ég þá menn, er voru þarna með mér, að grennslast eftir
hvort nokkuð væri til sem hugsanlegt væri að nota sem flot fyrir fólkið ef til
kæmi. Ég vissi það að bátarnir voru horfnir. Mér var einnig ljóst, að ég yrði
að koma skipinu úr stórbrotunum, sem voru skammt frá. Klifraði ég því upp að vélsímanum,
sem í þessu tilfelli mátti segja að væri uppi í loftinu. Hringdi ég niður í
vélarúmið á ferð áfram, og það undarlega skeði, að vélamaðurinn svaraði - og
vélin fór í gang.. Og það sem mér þótti einnig undarlegt; Skipið lét að stjórn,
þótt það lægi svona. Þegar ég fór að virða fyrir mér sjólagið, var til kuls að
sjá brimskafl slíkan sem skriðjökull væri; bar hann undarlega hátt við loft að
sjá. Þaðan heyrðist voðalegt brimhljóð, hærra en svo að ég geti líkt því við neitt,
sem ég þekki. Þarna úti voru aðalbrotin. Þetta, sem við fengum á okkur, var
aðeins afleiðing þaðan, enda var skipið á ca. 20 faðma dýpi. Fyrir það að vélin
fór í gang, komumst við svo langt frá brotunum, að ekki var hætta á að við
fengjum annað. Gufuþrýstingurinn minnkaði ört á katlinum, og var því ekki hægt
að halda vélinni í gangi nema stutta stund, en þetta bjargaði þó því að nú var
öruggt fyrir brotunum. Veðrið var nú orðið dágott og bjart í lofti, vindur
genginn meir til vesturs. Sá ég nú Reykjavíkurljósin, og virtumst við vera
staddir um Melakrikann eða Kambsleiru.
B.v. Skallagrímur RE 145 á toginu. (C) Guðbjartur Ásgeirsson.
Nú er að lýsa því hvernig umhorfs var í skipinu. Frammi í hásetabyrginu, sem er
neðan þilfars, var ástandið svo að það meira en hálffylltist af sjó. Kom það af
því, að niðurgangur í það er bakborðsmegin út við byrðinginn undir hvalbak og
streymdi þar sjórinn viðstöðulaust niður. Þar voru staddir allir hásetar, sem
þar bjuggu, nema þeir sem voru uppi á verði. Ólafur, sem áður er nefndur, var
nýsloppinn niður þegar áfallið varð. Allir þeir er lágu í rúmum sínum í
stjórnborðssíðu, hentust fram úr. Hinir komust úr rúmum sínum með erfiðismunum.
Auðséð var að ekki varð komizt upp um aðaluppgönguna, því að þar kom blár
fossinn niður. Þó varð einn hásetanna til að freista uppgöngunnar. Stakk hann
sér þrisvar í fossinn, eins og lax, en kom jafnharðan niður aftur. Sagðist hann
líklega hafa komizt upp ef ekki hefðu vírar og annað rusl verið þar fyrir og
hálflokað hurðunum. Þessi harðgerði piltur var Benedikt R. Steindórsson, vestan
úr Hnífsdal, og hefur nú verið mörg ár heppnisformaður á vélbátum þar vestra.
Þá varð að reyna aðra útkomu. Svo er háttað á enskbyggðum togurum, að uppi yfir
miðju byrgi er hreyfanlegur gluggi, sem er hafður svo stór að maður getur
smogið upp í gegnum hann ef þörf krefur. Þverslá úr greiðum og traustum viði er
höfð í hæfilegri hæð, svo að menn geti með góðu móti komizt þar upp og út um
gluggann. Þessi útbúnaður er mjög nauðsynlegur, bæði þegar svona stendur á, og
eins í árekstri við önnur skip, sem gæti ef til vill Iokað fyrir uppgönguna.Þarna var nú ekki um annað að ræða en að nota þennan glugga, og var það gjört.
Að vísu sögðust sumir ekkert fara upp, það væri sama hvort þeir dræpust þarna
niðri eða uppi, skipið væri auðsjáanlega sokkið eða það sykki bráðlega. Samt
komu nú allir upp. Ég benti þeim að koma til mín. Það varð ekki gengið eftir
þilfarinu eins og venjulega, heldur komu þeir utan á byrðing skipsins, sumir
skríðandi, aðrir gangandi, hver eftir sínum geðþótta og hæfni. Enginn sýndi
minnsta vott um ótta, heldur jafnvel hið gagnstæða. Í þann sama mund eru allir
komnir til mín úr káetunni, sem eru híbýli manna aftast í skipinu, eins og
kunnugt er.
Togarar við bryggju á Hesteyri í Jökulfjörðum. Þarna eru 3 Kveldúlfstogarar. Togarinn næstur í mynd er Hafnarfjarðartogarinn Ver GK 3. (C) Guðmundur Ásgeirsson.
Þeir lýstu því fyrir mér, að þar væri mikill sjór, og sérstaklega
væri orðið mikið af sjó í véiarúminu. Ég spurðist fyrir um hvort nokkur hefði
orðið var við bilun á skipinu sjálfu, þannig, að hætta væri á að það sykki.
Þess sögðust þeir ekki hafa orðið varir, við fljóta athugun. Ég var nú orðinn
viss um að skipið héldist á floti. Skipt var nú liði og skyldu vera tveir hópar,
annar hópurinn ætti að ausa vélarúmið, hinn átti að brjótast fram í fisklest og
fleygja fiskinum úr bakborðshlið upp í stjórnborðssíðu. Í þessa hópa skipaði ég
mönnum þannig að ég ávarpaði hvern með nafni, og sagði um leið í hvorum hópnum
hver skyldi vera, ásamt smáuppörvun, sem þó þurfti ekki. Fyrir liðunum voru:
Ólafur Teitsson bátsmaður, frægur dugnaðarmaður, skyldi hann sjá um verkið í
fiskilestinni, en Jónas Ólafsson fyrsti vélstjóri skyldi sjá um austurinn úr
vélarúmi. Sigurður stýrimaður átti að vera milligöngumaður milli mín og
flokkanna. Sjálfur ætlaði ég að hafa gát á öllu frá stjórnpalli. Verkið var nú
hafið umsvifalaust og orðalaust, og var þá klukkan orðin rúmlega hálf sjö.
Þeir, sem í lestina fóru, urðu að brjóta tréhlera mjög öflugan, sem lokaði
göngum aftur í ketilrúmið, en göng þessi eru notuð þegar kol eru geymd í
lestinni, annars er þeim lokað með þessum hlera. Það, sem margir hafa dáðst að,
bæði útlendir og innlendir menn, sem eru dómbærir á þetta ástand sem skipið var
í, var, að hver maður skyldi hlýða orðalaust skipun undir þessum kringumstæðum,
þar sem enginn vissi með vissu hvort skipið sykki eða ekki, og jafnvel meiri
líkur á að það mundi ekki fljóta, vegna þess að enn rann sjór í hásetabyrgið
fremst í skipinu. En einmitt af þessari ástæðu var okkur lífsnauðsyn að rétta
skipið við, svo mikið, að uppgangan kæmi úr sjó, og það sem fyrst. Unnið var af
miklu kappi niðri í skipinu. Var af miklu að taka. Til dæmis voru öll eldholin
á gufukatlinum (þau eru 4) í kafi, og segir sig sjálft hvaða óhemju vinna var
að ausa þetta allt með venjulegum vatnsfötum. Mikið lán var það, að veður og
sjór lægði mikið þegar leið á morguninn, og gjörði það okkur kleift að hamast
við verkið, einkanlega við austurinn. Klukkan milli 11 og 12 á hádegi er búið
að ausa svo að hugsanlegt var að lifað gæti í eldholnnum og var þá kveikt upp.
B.v. Hannes ráðherra RE 268 var á sömu slóðum þegar óveðrið gekk yfir. Togarinn náði til hafnar í Reykjavík. (C) Guðbjartur Ásgeirsson.
Skömmu áður var búið að kasta hverjum fiski úr bakborðshlið upp til
stjórnborðs. Var skipið orðið hálfreist, eða möstrin mynduðu ca. 45° horn.
Meira var ekki hægt að rétta, vegna þess að ógjörlegt var að kasta til kolum,
en þau fóru öll úr stjórnborðs- yfir í bakborðshólf. Það gekk illa að láta lifa
í eldunum undir katlinum, sökum þess að ekki "trekkti", en það kom af því
að sjór hafði komizt í sótrör öll, en sótið varð að þéttri klessu, sem hleypti
ekki vindgusti í gegn. Samt varð komið upp smáþrýsting það miklum, að hægt var
að hreyfa vélina með hægri ferð. Það mátti ekki tæpara standa, því að nú hafði
rekið allan tímann undan vindi og var skipið komið í mynni Hvalfjarðar, átti skammt
í land við Andriðsey. En alltaf leggst eitthvað til, og hefðum við líklega
rekið í land ef ekki hefði viljað svo til, að þegar skipið fékk áfallið, hafði
fremri vörpuhlerinn á bakborða farið fyrir borð og rutt með sér allri vörpunni
með rúllum og öðru, og hékk þetta við afturhlerann, sem fastur var inni í
afturgálga. Dró þetta drifakkari úr ferð skipsins, og varð líklega til þess að
ekki strandaði, ofan á allt annað. Merkilegt má það heita, að engin teljandi
meiðsli urðu á neinum manni við þetta ógnaráfall. Þó urðu tveir af
skipshöfninni illa staddir um tíma. Annar var matsveinninn, Hillaríus
Guðmundsson, mjög harðgerður og duglegur maður. Hann var staddur uppi í
eldhúsi, sem er bakborðsmegin í yfirbyggingu á þilfari, en vegna þess að það
var þeim megin, fylltist það og munaði minnstu að Hillaríus drukknaði þar. Með
harðfengi kraflaði hann sig úr kafinu og komst út úr húsinu. Hinn var Tryggvi
Tómasson kyndari. Þegar sjórinn kom yfir skipið, stóð svo á fyrir honum, að
hann var að snúa loftrörinu, en loftrör eru, eins og allir vita, nokkuð hátt
sett, hærri en stjórnpallurinn. Þegar Tryggvi sér sjóinn gínandi himinhátt yfir
sér, verður honum það til lífs að í einhverju ofboði eða samkvæmt hárréttri
ákvörðun, stingur hann sér inn í loftrörið; verður þar fastur og losnaði ekki
þaðan fyrr en eftir þó nokkuð langan tíma. Hafði hann misst meðvitund og legið
í því ástandi nokkuð lengi, en fór svo að umla og kalla á hjálp.
Skipverjar vinna við trollið. (C) Guðbjartur Ásgeirsson.
Náðist í hann eftir nokkra fyrirhöfn. Hann var lengi að jafna sig eftir þetta.
Eins og fyrr var frá sagt, var vélin komin í gang. Var lónað í áttina til
Reykjavíkur, látin upp þau segl sem tiltækileg þóttu, og gekk nú hægt í áttina.
Vindur hjálpaði til, því nú var hann genginn í norðvestrið, en hægur. Þegar tók
að nálgast, höfðu menn tekið eftir því að ekki mundi allt með feldu á þessu
skipi. Sendur var á móti okkur mótorbátur, tilheyrandi höfninni í Reykjavík.
Lagðist hann við síðuna og létti undir, svo að allt gekk vel inn á höfn. Margt
manna var viðstatt þegar komið var að bryggju. Undruðust menn yfir hvað skipið
var illa komið, ekki tannstöngulsefni til laust ofan þilja. Allt fór, sem
losnað gat: kistur, tunnur og margt sem geymt var á bátapalli, báðir
lífbátarnir með bátauglurnar með sér. Það af því, sem ekki fór af járni, var
kengbeygt. Gátu menn varla skilið, þótt skýrt væri fyrir þeim, hvernig slíkt
mætti ske. Allir vorum við skipsmenn orðnir slæptir og þreyttir, ekki þurr
þráður á neinum og enginn hafði fengið í sig neitt, utan kaldan vatnssopa öðru
hvoru, síðan daginn áður. Urðu allir að fara í land og heim, því að öll föt,
sem áttu að vera til skipta, voru auðvitað blaut. Svona er nú sagan af því
hvernig farið getur úti í Flóanum ef ekki er öll varúð viðhöfð til að forðast
grunnin, í vestan- eða suðvestan illviðrum, einkanlega ef ólga er í hafinu. Það
er ótalið, hvað margir hafa orðið fyrir barðinu á brimbrotum þeim. Frá því að
ég fór að stunda sjó, í rúm 40 ár, man ég eftir nokkrum skipum sem áttu leið
hér inn í Flóann og ekki komu fram, bæði þýzk og ensk fiskiskip, ásamt
innlendum fleytum. Og ekki munaði miklu í þetta sinn að við kæmum ekki í land,
aðeins því að skipið lagðist á bakborðshliðina en ekki á stjórnborðshlið.
Niðurganga í vélarúm og káetu er stjórnborðsmegin í þilfarsbyggingunni, og var
því ofan sjómáls meðan skipið lá á hliðinni. Það hlífði því að ekki fylltist
allur afturhluti skipsins, en það hefði skipið ekki afborið og orðið að hverfa
í djúpið með allri áhöfn, eins og svo mörg önnur. Þótt illviðri þessu tækist ekki að fyrirfara Skallagrími þessa nótt, þá varð
annað skip fyrir því. Skip, sem var mörgum sinnum stærra.
Saltfiski landað úr Skallagrími í Reykjavíkurhöfn. (C) Magnús Ólafsson.
Hér norður í Flóanum var stórt flutningaskip, norskt, Balholm að nafni, sem
ekki réði við neitt í slíku ofviðri og varð að hrökkiast undan veðri og sjó
ósjálfbjarga, án vonar um hjálp, því að strönd sú, sem stefnt var á, skilar
engu með lífi. Fórust þar 20-30 menn, þar á meðal ung kona skipstjórans, í
brúðkaupsferð, og nokkrir Íslendingar. Skallagrímur lá lengi í höfn til
viðgerðar, eins og að líkum lætur. Fiskinum var komið á markað í Englandi, með
aðstoð annars skips, sem átti leið út um þetta leyti. Aflinn var óvenju mikill,
sem hafði komið þennan stutta tíma sem veiðiveður var, ca. 36 tíma. Leit fiskurinn
furðu vel út eftir allt þetta hnjask, sem hann hafði orðið fyrir, og var í
óaðfinnanlegu ástandi þegar á markaðinn kom. Ekki man ég nú hvað hann seldist
fyrir, enda skiptir það minnstu máli. Ég hef oft hugsað um það, og fyrir löngu,
að láta koma lýsingu af slysi þessu fyrir almenningssjónir. Vakti það eingöngu
fyrir mér að það gæti orðið til aðvörunar öðrum sjófarendum. Að frásögn þessi
kemur ekki fyrr, kemur til af því, að mörg ár eftir þennan atburð var hann
mönnum í fersku minni. En nú fer þetta að falla í gleymsku og fyrnast, eins og
annað, og finnst mér því rétt að birta frásögn þessa um þennan einstæða atburð.
Mætti það kannske verða einhverjum í huga þegar hann á leið inn eða út Faxaflóa
í vestanrokum með stórsjóum, að víkja skipi sínu framhjá hraununum, sem mér er
ekki grunlaust um að sé að grynna á, á seinni árum, svo að ekki fari fyrir þeim
eins og fór fyrir mér í þetta sinn, en sem af einskærri heppni, - eins og
frásögnin ber með sér - varð ekki afdrifaríkara. Viti sá, er settur hefur verið
á Þormóðssker, verður ómetanleg stoð öllum sjófarendum sem eiga leið um Flóann
norðan hrauna, og hefði vitinn átt að vera þar löngu fyrr. Æskilegt væri að
ljós hans gæti lýst sem fyrst, en það hefur dregizt að koma því á sinn stað af
óviðráðanlegum ástæðum.
Frásögn Guðmundar Jónssonar skipstjóra.
Sjómannablaðið Víkingur. 2 tbl. 1 febrúar 1946.
09.10.2019 20:50
Maður féll milli skips og bryggju í Neskaupstað.
Ég á margar góðar minningarnar um Sigurjón Jónsson (Góa). Hann og faðir minn voru mörg ár saman til sjós á gamla Bjarti NK 121. Hann kom oft í heimsókn til foreldra minna og ekki spillti fyrir þegar Guðmundur Ölversson var með í för. Þá var kátt á hjalla og sögurnar þeirra ógleymanlegar. Þá lærði ég að drekka kaffi, þá á barnsaldri. Gói var bæklaður á fæti. Hann lenti í slysi á togaranum Goðanesi NK 105, veit ekki hvort það var þegar skipið fórst á Skálafirði, eða áður. Held að það hafi verið þegar togarinn fórst.
Ég hitti Góa síðast sumarið 1987, þá var hann í endurhæfingu á Reykjalundi í Mosfellssveit. Það var virkilega gaman að sjá hann. Hann hafði ekki mikið breyst frá því ég sá hann áður. Mér er það nú skylt að halda nafni hans á lofti, eins og hann var mikill öðlingur og drengur góður. Blessuð sé minning þessa mæta manns.
1278. Bjartur NK 121. Það hefur verið á þessum stað sem Sigurjón féll á milli skips og bryggju í höfnina. Fyrir aftan Bjart er 226. Beitir NK 123 og 1548. Barði NK 120. (C) Mynd úr safni mínu.
Gói að uppfarta um borð í gamla Bjarti NK 121. Kristján Vilmundarson til hægri.
Úr safni Gunnars Þorsteinssonar.
Gói við eldavélina um borð í gamla Bjarti NK 121. Úr safni Gunnars Þorsteinssonar.
Þrjá
stundarfjórðunga í sjónum
áður en hann komst upp á bryggju
"Þegar ég komst upp á bryggjuna missti ég rænu, en þá var ég
líklega búinn að vera um þrjá stundarfjórðunga í sjónum," sagði Sigurjón
Jónsson, matsveinn á skuttogaranum Bjarti frá Neskaupstað, en Sigurjón féll
niður á milli skips og bryggju s.l. fimmtudag þegar hann var að ljúka við að
ganga frá vistum skipsins. Þegar atvikið átti sér stað var enginn maður nálægur
og varð Sigurjón að vinda sig upp eftir bryggjufríholtum, sem þó var mjög
erfitt, þar sem skipið lá alveg utan í þeim. Við þad rifnuðu neglur á honum og
æðar slitnuðu. Þykir mörgum sem til þekkja, það ganga kraftaverki næst, að
Sigurjón skyldi geta vegið sig upp á bryggjuna, en hann er fatlaður. Ég fór inn
í skip um kl. 18 á fimmtudaginn til að taka á móti vistum skipsins." sagði
Sigurjón, mér til aðstoðar fyrst var útkeyrslumaður kaupfélagsins, en þeir sem
voru að vinna í skipinu, fóru yfirleitt í mat á svipuðum tíma. Þegar maðurinn
var búinn að aðstoða mig, fór hann burtu, en ég lauk við að ganga frá. Síðan
ætlaði ég í land og vissi ég ekkert fyrr en ég féll niður á milli skips og
bryggju við landganginn. Ekki þýddi að hrópa á hjálp, því enginn var nálægur.
Þá var erfitt að komast meðfram hlið skipsins, þar sem þad lá fast utan í
gúmmífríholtunum, og einnig varð ég mjög kaldur fljótlega og þorði því ekki að
synda að stigum, sem þarna eru ekki fjarri." Ég tók það því til bragðs. að
reyna að vega mig upp meðfram gúmmífríholtunum, en það var mjög erfitt, því lítið
var um handfestu. Þegar ég var hálfnaður upp, varð ég að henda gleraugunum af
mér, þar sem ég sá ekkert vegna olíu, sem hafði sest á þau.
Við það missti ég
þá litlu handfestu, sem ég hafði og féll því niður aftur. Ekki var annað að
gera en að leggja af stað aftur og að lokum komst ég upp á bryggjuna, þá var ég
aðframkominn af þreytu og missti ég rænu um leið og ég kom upp," sagði
Sigurjón. Þá sagði hann ennfremur, að þegar hann hefði rankað við sér, hefði
hann ekið bíl sínum heim til sín og ekki farið að líða verulega illa fyrr en
seinna um kvöldið. Þá hefði orðið að flytja hann á sjúkrahúsið. Þar hefði komið
í Ijós, að mikil olía hefði komist í lungun og einnig hefðu margar æðar í
handleggjunum slitnað við áreynsluna þegar hann var að hífa sig upp. Þá hefðu
flestar neglur verið brotnar og sumar hverjar nær horfnar. Að lokum sagði
Sigurjón, að líklega hefði hann verið um þrjá stundarfjórðunga í sjónum og einn
og hálfur tími hefði liðið frá þvi að hann féll í sjóinn, þangað til hann var
kominn heim til sín.
Morgunblaðið. 6 júní 1974.
09.10.2019 06:55
2 m. kt. Björn Ólafsson GK 21. LBWJ / OXMN.
Þilskipið Björn Ólafsson FD 556 ex GK 21, sennilega í Færeyingahöfn á Grænlandi. (C) www.vagaskip.dk
Björn Ólafsson FD 556 á veiðum. 22 menn með færið úti. (C) www.vagaskip.dk
Bjorn Olafsson af Köbenhavn / Nudde. (C) Handel & Söfart museet.dk
Þilskip seld
til Færeyja
4 íslenskir kútterar voru í byrjun mánaðarins seldir til
Færeyja; voru það skipin »Ragnheiður«, »Björn Ólafsson«, »Greta« og »Sljettanes«.
Allt góð skip. Þá fara þau nú að týna tölunni íslensku þilskipin.
Ægir. 11 tbl. 1 nóvember 1914.
04.10.2019 11:50
1868. Helga María RE 1 ísuð og köruð fyrir næstu veiðiferð.
Allt er í heiminum hverfult þegar Guðmundur Kristjánsson forstjóri Brims er annarsvegar.
1868. Helga María RE 1 við bryggju í Örfirisey.
Starfsmaður löndunar. (C) Þórhallur S Gjöveraa. 24 september 2019.
03.10.2019 12:17
189. Skarðsvík SH 205. TFSO.
189. Skarðsvík SH 205. (C) Snorri Snorrason. Úr safni Atla Michelsen.
Ný Skarðsvík
komin
Hellissandi, 27. ágúst.
Nýlega kom annar bátur til Hellissands fyrir Skarðsvíkina, sem fórst í vetur.
Er það stálbátur, 155 lestir að stærð og eigendur sömu og áður. Þetta er
glæsilegt skip með öllum nýtizku tækjum. Skarðsvík er smíðuð í Austur-Þýzkalandi.
Skipstjóri er Sigurður Kristjónsson, sami og var á gömlu Skarðsvík. Skipið fór
strax á síldveiðar. Þrír bátar héðan eru á síldveiðum, og tveir á humarveiðum.
Morgunblaðið. 1 september 1962.
Arnþór EA 16 að sökkva út af Hvalsnesi 12 október 1989. (C) Morgunblaðið. / RAX.
Arnþór
EA 16 sökk austur af Hvalsnesi
Áhöfnin
hafði yfirgefið skipið
nokkrum klukkustundum áður
Síldveiðiskipið Arnþór frá Árskógsströnd sökk 4,5 mílur
austur af Hvalsnesi um klukkan 13.00 í gær. Áhöfnin var þá komin um borð í
annan síldarbát, Sigurfara frá Ólafsfirði, og var hún ekki í hættu. Arnþór fékk
á sig mikla slagsíðu um klukkan eitt í fyrrinótt er verið var að dæla síld um
borð úr nótinni. Við tilraun til að keyra bátinn upp, lenti nótin í skrúfunni
og aðalvélin stöðvaðist. Sigurfari kom til aðstoðar, en vegna mikillar kviku
reyndist ekki unnt fyrir hann að leggjast upp að Arnþóri til að dæla úr bátnum
með síldardælunni. Var því brugðið á það ráð að taka Arnþór í tog í birtingu og
ætlunin var að draga hann upp að landi, jafnvel inn á Berufjörð, þar sem
auðveldara yrði að athafna sig. Það tókst ekki og sökk Arnþór eins og fyrr
segir upp úr hádeginu í gær.
Sigurfari kom með áhöfnina af Arnþóri til Reyðarfjarðar í gærkvöldi. Skipverjar
af báðum bátunum vildu sem minnst tjá sig um atburðinn fyrr en að loknum
sjóprófum, en þau hafa ekki verið haldin enn. Talið er að óhappið hafi vilja
til með þeim hætti að skilrúm í lest hafi gefið sig, þegar verið var að dæla
síldinni um borð. Við það hafi slagsíðan svo komið á skipið stjórnborðsmegin og
nótin þyngt það að auki. Því brugðu skipverjar á það ráð að skera pokann frá
til að auðveldara yrði að keyra skipið upp. Nótin lenti þá í skrúfunni og
aðalvélin drap á sér. Vegna mikillar kviku ákvað áhöfnin á Arnþóri þá að
yfirgefa skipið og fór um borð í Sigurfara. Ekki var talið á það hættandi að
Sigurfari legðist að Anrþóri til að dæla úr honum og reyna að halda honum uppi.
Það hefði getað valdið miklum skemmdum á Sigurfara og stefnt bæði skipverjum og
skipinu í verulega hættu. Vír var settur á milli skipanna og stefnan sett á
land. Drátturinn sóttist seint enda lá Arnþór nær alveg á stjórnborðssíðunni.
Ljósavélin í honum gekk lengi vel og báturinn lensaði því, en um hádegið var
hallinn orðinn það mikill að drapst á ljósavélinni og þá hættu lensidælurnar að
virka. Við það jókst sjórinn mjög hratt og skipið seig ört að framan unz það
stóð á endann og sökk snögglega um eitt leytið. Björgunarbátnum og ýmsu öðru
lauslegu skaut upp skömmu síðar. Skipverjar á Varðskipinu Ægi fóru á gúmmíbátum
á staðinn þar, sem báturinn sökk og tíndu saman dótið og settu það um borð í
Sigurfara. Þá fór kafari af varðskipinu niður að nótinni af Arnþóri, sem náði
upp á 10 metra dýpi, til að skera af henni korkateininn. Það var gert til að
koma í veg fyrir að nótin færi í skrúfu annarra skipa, sem ættu leið þarna um.
Nákvæm staðsetning á flakinu er 64 gráður, 24 mínútur og 72 sekúndur norðlægrar
breiddar og 14 gráður, 22 mínútur og 03 sekúndur vestlægrar lengdar. Varðskipið
Ægir var á Bakkaflóa, þegar því baðst beiðni um aðstoð um klukkan fjögur í fyrri
nótt. Það var komið á staðinn um. klukkan 11.30 um morguninn, en þá var orðið
ljóst að Arnþóri yrði varla bjargað. Skipherra á Ægi var Höskuldur
Skarphéðinsson.
Arnþór var 155 tonna stálbátur, smíðaður í Austur-Þýzkalandi 1962 og lengdur
1966. Hann hét áður Valdimar Sveínsson VE.
Morgunblaðið. 13 október 1989.
01.10.2019 20:21
1137. Barði NK 120 á toginu ásamt gömlu Nýsköpunartogurunum.
Greinin hér að neðan er svolítið pólitísk, enda er það Sverrir Hermannsson sjálfstæðismaður og eigandi í útgerðarfélaginu Ögurvík í Reykjavík sem er að skjóta á þáverandi sjávarútvegsráðherra, Lúðvík Jósepsson. Ég tek enga pólitíska afstöðu í þessu, en þessi grein á vel við í þessu stjórnmála ástandi sem ríkti hér á landi á þessum tíma. Ég held að sveitungur minn, Lúðvík Jósepsson sjávarútvegsráðherra hafi haft nógu breytt bak til að taka þessum aðfinnslum Sverris.
Skuttogarinn Barði NK 120 á toginu innan um gömlu síðutogarana. (C) Ásgrímur Ágústsson.
Skuttogaraöldin
hófst í tíð Viðreisnar
með kaupum á 17 skuttogurum
Á síðustu árum hefur mikill fjöldi skuttogara verið keyptur
til landsins eins og kunnugt er og gjörbreytt atvinnuástandinu víða úti um
landsbyggðina. Þessi uppbygging skuttogaraflotans hófst á tímum
Viðreisnarstjórnarinnar og var að hennar frumkvæði búið að semja um kaup á eða
festa kaup á 17 skuttogurum, þegar stjórnarskiptin urðu í júlí 1971 þ. á m.
ýmsum stærstu skuttogurum landsins. Morgunblaðið hefur rætt við Sverri
Hermannsson, einn af eigendum Ögurvíkur h/f um uppbyggingu skuttogaraflotans,
en eins og kunnugt er, hleyptu skuttogarakaup Ögurvíkur frá Póllandi skriðunni
af stað.
Í upphafi samtalsins sagði Sverrir Hermannsson, að ef menn vildu gera sér grein
fyrir þróun þessara mála, yrði að líta nokkuð lengra til baka en síðustu 2-3
árin. Það fékkst enginn útvegsmaður til að tala um útgerð á togurum meðan
síldarævintýrið stóð yfir, fram til ársins 1967, sagði Sverrir Hermannsson. Sem
dæmi um það má nefna, að á tímum fyrri vinstri stjórnar 1956-'58 hafði Lúðvík
Jósepsson samið um kaup á einum fjórtán tappatogurum frá Austur Þýzkalandi, en
öllum þessum skipum var breytt í síldveiðiskip og eru enn í dag hringnótarar
eftir að loðnan kom til sögunnar. Þetta sýndi hvert stefndi hjá áhugamönnum um
útgerð á þeim tíma, því allt fram til ársins 1967 var ástandið þannig, að
enginn leit við öðru en síldveiðum og enginn mannskapur fékkst á togaraflota
landsmanna. En þegar síldveiðin brást árið 1967 fóru einstaklingar að hugsa um
kaup á skuttogurum. Það ár skipaði ríkisstjórnin sérstaka skuttogaranefnd, sem
hóf þá störf, en vissulega hefði hún mátt vinna hraðar. Í nóvember 1969 gerðum
við eigendum Ögurvíkur svo samning um kaup á tveimur skuttogurum í Póllandi og
1970 var samið um kaup á 6 togurum frá Spáni og stuttu síðar um smiði á 5
miðlungsstórum skuttogurum fyrir Vestfirðinga í Noregi. Í kjölfar þessa keyptu
Norðfirðingar og Eskfirðingar sinn hvorn skuttogarann og Sauðkræklingar og
Siglfirðingar komu rétt á eftir. Þannig var í tíð Viðreisnarstjórnarinnar samið
um smíði á eða keyptir til landsins 17 skuttogarar, sagði Sverrir Hermannsson.
Óhætt er að fullyrða, að íslenzkur skipastóll hefur aldrei verið byggður eins
hratt upp eins og á árunum 1960-'67 og þegar menn voru að taka út stækkun
skipastólsins á síldarárunum voru þessir 14 tappatogarar, sem Lúðvík samdi um
kaup á frá Austur Þýzkalandi, gjarnarn taldir með, vegna þess, að þeir komu til
landsins á árunum 1959 og 1960 og voru auðvitað borgaðir á tíma
Viðreisnarstjórnarinnar. En Lúðvík Jósepsson stóðst aldrei reiðari en þegar
þetta var gert. Hann benti á með réttu, að frá samningum og kaupum á þessum
tappatogurum var gengið í hans ráðherratíð. Nú er þess að vænta að hann verði
sjálfum sér samkvæmur, þegar talað er um uppbyggingu skuttogaraflotans síðustu
árin og viðurkenni, að búið var að semja um og kaupa 17 skuttogara áður en hann
tók við ráðherraembætti á ný. Hitt er svo annað mál, að stundum má skilja
sjávarútvegsráðherra á þann veg, að hann hafi keypt þessi skip og borgað þau,
en því fer fjarri að svo sé. Það eru einstaklingar og bæjarfélög, sem hafa
ráðizt í kaup á þessum skuttogurum með hið opinbera að bakhjarli, fyrst
Viðreisnarstjórnina og síðan núverandi ríkisstjórn, en mér sýnist á öllu, að
Lúðvík Jósepsson muni ekki standa fyrir greiðslu á þeim skuttogurum, sem
keyptir hafa verið til landsins síðustu misseri fremur en það kom í hans hlut
að borga tappatogarana frá Austur Þýzkalandi. Það mun koma í annarra hlut að
sjá um greiðslur af þeirri fjárfestingu, sem lögð hefur verið í sjávarútveginn
síðustu árin. En einn þáttur þessa máls þarf að koma skýrt fram í dagsljósið. Öll
togaraútgerð á Íslandi er rekin með bullandi tapi. Í rúmlega heilt ár hefur
Lúðvik Jósepsson stráð um sig með loforðum um að finna rekstrargrundvöll fyrir
hana. Þau loforð hefur hann öll svikið. Fyrir rúmu ári skipaði hann sérstaka
rannsóknarnefnd í málinu, hún skilaði áliti og tillögum til úrbóta. Þær hafa
farið í bréfakörfuna hjá Lúðvík og nú blasir rekstrarstöðvunin við. Einmitt
þessa dagana eru fjórir embættismenn í sjávarútvegsráðuneytinu á reisu kringum
land á vegum Lúðvíks Jósepssonar að útdeila loforðum, eftir því sem
höfðingjunum hentar bezt. Ekki er mér þó kunnugt um, að hann hafi sent neinn
fulltrúanna til Hafnar í Hornafirði að tilkynna þeim þar, hversu stóran flota
hann ætlar að senda á humarveiðar þar í sumar til þess að skrapa upp síðustu
leifar humarstofnsins.
Morgumblaðið. 21 maí 1974.
- 1