11.06.2016 09:12
Huginn. LCFR.
3 m. skonnortan Huginn var smíðaður í Essex í Massachusetts í Bandaríkjunum árið 1916. Eik 216 brl. Útgerðarfélagið Kveldúlfur í Reykjavík keypti skipið 15 janúar árið 1917. Huginn var einkum í saltfiskflutningum til Spánar og annarra Miðjarðarhafslanda og flutti salt og ýmsar aðrar vörur til Íslands. Hugin rak upp í Rauðarárvíkina í Reykjavík árið 1923 og eyðilagðist þar.

Huginn á sundunum við Reykjavík um 1920. Ljósm: Magnús Ólafsson. ?
Skrifað af Þórhalli S Gjöveraa.
Flettingar í dag: 414
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 393
Gestir í gær: 13
Samtals flettingar: 2405579
Samtals gestir: 99351
Tölur uppfærðar: 11.7.2026 03:15:48
