27.07.2016 10:19
Alden GK 247. TFBE.
Línuveiðarinn Alden GK 247 var smíðaður í Moss í Noregi árið 1907. Stál 111 brl. 175 ha. 2 þjöppu gufuvél. Fyrsti eigandi hér á landi var Anton Jacobsen frá 17 febrúar 1925. Hét þá Alden RE 264 en skipið hét Svalen áður. Selt 20 janúar árið 1927, Fiskveiðahlutafélaginu Hrólfi í Reykjavík. Skipið var selt 27 febrúar 1931, Samvinnuútgerðinni í Stykkishólmi, skipið hét Alden SH 1. Selt 27 mars 1940, Hlutafélaginu Fossi í Hafnarfirði, skipið hét Alden GK 247. Selt 3 febrúar 1945, Hlutafélaginu Búa á Dalvík, hét Alden EA 755. Skipið var selt úr landi til niðurrifs í júní árið 1956.

Alden GK 247 á stríðsárunum. Ljósmyndari óþekktur. Mynd í minni eigu.
Skrifað af Þórhalli S Gjöveraa.
Flettingar í dag: 11473
Gestir í dag: 117
Flettingar í gær: 1066
Gestir í gær: 90
Samtals flettingar: 1272615
Samtals gestir: 86450
Tölur uppfærðar: 17.5.2025 15:06:00