08.08.2016 09:59
B. v. Skúli Magnússon RE 202. TFYD.
SKÚLI MAGNÚSSON, annar nýsköpunartogari Reykjavíkurbæjar,
sigldi fánum skreyttur hjer inn á höfn í gærmorgun. Nokkru fyrir hádegi fór
borgarstióri bæjarráðsmenn og útgerðarráð bæjarins, um boð í skipið til að
skoða það. Skúli Magnússon er nokkru lengri en Ingólfur Arnarson. Þilfarslengd
skipsins er 180 1/2 fet, en togarinn þarf 199 feta langt bryggjupláss, þar sem
hann liggur við Faxagarð. Ferðin heim gekk mjög vel og láta skipverjar vel yfir
skipinu. Einkennisstafir Skúla Magnússonar eru RE-202. í reykháf skipsins er
hið nýja merki Bæjarútgerðar Reykjavíkur, en það er bókstafurinn R í skildi,
sem málaðir eru á fánalitirnir. Þetta merki teiknaði Halldór Pjetursson.
Skipstjóri á Skúla Magnússyni er Halldór Guðmundsson, er lengi var á Júní.
Fyrsti stýrimaður er Sigurður Þorleifsson er var skipstjóri á Skutli og fyrsti
vjelstjóri er Loftur Ólafsson, en hann var á Max Pemperton um langt skeið.
Morgunblaðið. 9 júlí 1948.
