18.02.2017 17:12
Vitaskipið Hermóður. TFSB.
Hörmulegt
sjóslys við Reykjanes
Í Fyrrinótt varð íslenzka þjóðin fyrir öðru stóráfallinu á
sjó á skömmum tíma, er vitaskipið Hermóður fórst með allri áhöfn, 12 mönnum,
undan Reykjanesi. Í gærkvöldi sendi Landhelgisgæzlan út svohljóðandi
fréttatilkynningu um þennan hörmulega atburð: Talið er víst að vitaskipið
Hermóður hafi farizt með allri áhöfn í stórsjó og ofviðri undan Reykjanesi í
nótt. Var síðast haft samband við það frá öðru skipi um kl. 4 í nótt. Var
Hermóður þá staddur við Reykjanes, en síðan hefur ekkert heyrzt eða sézt til skipsins.
Hermóður var á leið frá Vestmannaeyjum, þar sem hann hafði verið við bátagæzlu
á vegum Landhelgisgæzlunnar undanfarinn hálfan mánuð, og var væntanlegur til
Reykjavíkur í morgun. Strax þegar ekki heyrðist til skipsins í morgun og það
var heldur ekki komið til Reykjavíkur, sendi Landhelgisgæzlan gæzluflugvélina
Rán til þess að leita að því og nokkru síðar var Slysavarnafélagið beðið um að
láta leita meðfram ströndinni frá Grindavík og vestur og norður fyrir Reykjanes
allt að Garðskaga. Brugðu slysavarnadeildirnar í Grindavík og Höfnum, svo og
þrír leitarflokkar frá Reykjavík skjótt við og fundu skömmu eftir hádegi brak
úr skipinu rekið undan bænum Kalmanstjörn sunnan við Hafnir. Leitað var allt
til dimmu, en mun verða haldið áfram strax í birtingu á morgun.
Á Hermóði var 12 manna áhöfn og voru það þessir menn:
Ólafur G. Jóhannesson skipstjóri, Skaptahlíð 10, Rvík, 41 árs. Hann var kvæntur
og auk konu lætur hann eftir sig sjö börn á aldrinum 10, 8, 7, 5, 4 og tvö
tveggja ára. Sveinbjörn Finnsson, 1. stýrimaður, Útgerði við Breiðholtsveg,
Rvík, 24 ára. Hann lætur eftir sig konu og eitt barn árs gamalt. Foreldrar hans
búa vestur í Grundarfirði. Eyjólfur Hafstein, 2. stýrimaður, Bústaðavegi 65, 47
ára. Hann lætur eftir sig konu og 4 börn, 12, 9, 7 ára og 8 mánaða. Móðir hans
öldruð, er á lífi. Guðjón Sigurjónsson, 1. vélstjóri, Kópavogsbraut 43,
Kópavogi, 40 ára. Kvæntur og auk konu lætur hann eftir sig 5 börn á aldrinum
5-14 ára. Guðjón Sigurðsson, 2. vélstjóri, Freyjugötu 24, 65 ára. Lætur eftir
sig konu og uppkomin börn. Birgir Gunnarsson, matsveinn, Nökkvavogi 31, 20 ára.
Ókvæntur. Var í foreldrahúsum. Magnús Ragnar Pétursson, háseti, Hávallagötu 13,
46 ára. Ókvæntur. Jónbjörn Sigurðsson, háseti, Gnoðarvogi 32, 19 ára. Var hjá
foreldrum sínum og er elztur 10 systkina. Kristján Friðbjörnsson, háseti, 27
ára, til heimilis austur á Vopnafirði. Davíð Sigurðsson, háseti, Samtúni 32, 23
ára. Elztur 5 syskina. Einar Björnsson, aðstoðarmaður, frá Vopnafirði, 30 ára.
Helgi Vattnes Kristjánsson, aðstoðarmaður í vél, Þinghólsbraut 23, Kópavogi, 16
ára. Var hann á heimili foreldra sinna.
Skip það, sem minnzt er á í tilkynningu
Landhelgisgæzlunnar að Hermóður hafi haft samband við um kl. 4 í fyrrinótt, er
flutningaskipið Vatnajökull, en hann hafði nokkrum klukkustundum áður farið
fyrir Reykjanes. Einnig hafði þar farið um á leið til Reykjavíkur,
strandferðaskipið Esja, sem fór kl. 3,30 á þriðjudaginn frá Vestmannaeyjum, en
vitaskipið Hermóður fór þaðan kl. 4 þennan sama dag. Brak það, sem fannst við
Kalmanstjörn, var björgunarbátur frá Hermóði og léttbáturinn, en báðir voru
bátarnir lítt brotnir er þeir fundust þar í fjörunni. Að áliti siglingafróðra
manna, mun Hermóður hafa verið kominn í gegnum Reykjanesröstina, er slysið bar
að höndum. Um það leyti, sem frá Hermóði heyrðist, var vindur og sjór orðinn
suð- vestanstæður á þessum slóðum. Telja þessir sömu menn það sennilegast, að
hnútur hafi komið á skipið og fært það á kaf. Gizkað er á, að skipið hafi verið
2,5-3 sjómílur undan ströndinni.
Vitaskipið Hermóður var viðurkennt sjóskip, þó ekki væri það stærra en 200
lestir. Skipið var byggt í Svíþjóð 1947 fyrir vitamálastjórnina, en auk þess að
vera á vegum hennar, hefur Hermóður verið við landhelgisgæzlu. Hefur skipið t.
d. verið undanfarin ár á miðum Vestmannaeyjabáta á vetrarvertíðum og verið
bátaflotanum til ómetanlegs gagns, sagði fréttaritari Mbl. í Vestmannaeyjum.
Ólafur G. Jóhannesson skipstjóri, hefur verið stýrimaður á Hermóði frá því
skipið kom og hefur hann ætíð farið með skipstjórn á Hermóði þá er Guðni Thorlacius
skipstjóri, hefur verið í orlofi, og svo var nú. Ólafur var að þeirra dómi er
bezt þekkja, mjög traustur skipstjóri. Aðrir yfirmenn skipsins áttu að baki sér
lengri eða skemmri feril hjá Landhelgisgæzlunni eða á skipum
Skipaútgerðarinnar. Geta má þess og að Guðjón Sigurðsson, vélstjóri, Freyjugötu
24, hætti vélstjórastarfi á Hermóði í haust er leið, vegna aldurs, en var í
afleysingum nú. Hann hafði áður verið vélstjóri á Hermóði allt frá því skipið
kom til landsins, en þar áður var hann á gamla Hermóði. Geta má þess og að hinn
reglulegi matsveinn Hermóðs er í sjúkrahúsi um þessar mundir.
Sterkar líkur þykja benda til, að vitaskipið Hermóður hafi farizt um sjö
sjómílur fyrir norðan Reykjanes á tæplega 100 metra dýpi. Blöðunum var afhent
um þetta svofelld fréttatilkynning frá Landhelgisgæzlunni: "Eins og kunnugt er,
þá hefur Landhelgisgæzlan undanfarna daga verið að leita að, hvar vitaskipið
Hermóður muni hafa farizt. Ennþá er ekkert fullvíst í því efni, en sterkar
líkur benda þó til, að skipið hafi sokkið um 4,5 sjómílur vestur frá Höfnum, á
tæplega 100 metra dýpi, eða um 7 sjómílum fyrir norðan Reykjanes. Á þessum
slóðum hefur orðið vart við olíu á sjónum á sama stað í fleiri daga, og
dýptarmælar hafa sýnt þar ójöfnu (þúst) á botninum, sem annars er rennisléttur.
Í leitinni hafa tekið þátt varðskipin Þór, er fyrstur varð var við
olíublettinn, María Júlía, er varð vör við þústina, svo og Ægir og
gæzluflugvélin Rán. Leitinni mun verða haldið áfram eftir aðstæðum". Í
fréttatilkynningu Landhelgisgæzlunnar segir ennfremur, að öll 3 róðraduflin í
Faxaflóa, nefnilega 2 út af Garðskaga og 1 út af Akranesi, hafa slitnað upp í
óveðrunum undanfarið. Tvö þeirra eru þegar fundin.
Morgunblaðið. 19 febrúar 1959.
Sjómannabl. Víkingur. 1 mars 1959.