Rán ÍS 51 var smíðuð í Skipasmíðastöð Marselíusar Bernharðssonar á Ísafirði árið 1958 fyrir Rán h/f í Hnífsdal. Eik. 59 brl. 280 ha. MWM díesel vél. Báturinn var seldur 22 október 1965, Hafbjörgu h/f á Akranesi, báturinn hét Rán AK 304. Ný vél (1974) 350 ha. Caterpillar díesel vél. Seldur 25 apríl 1975, Ármanni Stefánssyni á Akranesi, hét Rán AK 34. Báturinn var endurmældur í september 1975, mældist þá 58 brl. 3 júní 1983 voru skráðir eigendur Ármann Stefánsson og Símonía Ellen Þórarinsdóttir á Akranesi. Seldur 7 nóvember 1986, Útvegsmiðstöðinni h/f í Keflavík, báturinn hét Rán KE 37. Seldur 18 maí 1988, Helga Grétari Helgasyni í Reykjavík, hét þá Rán BA 57. Báturinn var tekinn af skrá haustið 1988 og endaði á áramótabrennu í Njarðvík árið 1990.
Rán ÍS 51. Ljósmyndari óþekktur.
Rán AK 304. Líkan Gríms Karlssonar skipstjóra. (C) www.museum.is
Rausnarleg gjöf á
Byggðasafnið að Görðum
Þann 3. janúar 2015 afhentu ættingjar Helga Ibsen
Byggðasafninu líkan af bátnum Rán 304 til minningar um Helga Ibsen. Helgi
Ingólfur Ibsen fæddist á Suðureyri við Súgandafjörð 8. september 1928, hann
lést á Sjúkrahúsi Akraness 28. ágúst 2004.
Árið 1965 stofnuðu Helgi og Vilhjálmur Guðjónsson
útgerðarfyrirtækið Hafbjörgu hf. á Akranesi. Eitt fyrsta verk þeirra félaga var
að fara vestur til Hnífsdals og festa kaup á skipi sem hét Rán ÍS 51. Báturinn
var smíðaður í skipasmíðastöð Marselíusar á Ísafirði 1958.
Helgi og Vilhjálmur ráku útgerð og fiskvinnslu með myndarbrag,
þeir áttu Rán AK 304 í 10 ár og reyndist hún þeim vel. Árið 1975 seldu þeir
Ármanni Stefánssyni bátinn, síðari eigendur voru Útvegsmiðstöðin í Keflavík
(1986) og Helgi Grétar Helgason (1988). Ránin var úrelduð haustið 1988 fyrir
Fanney SH. Það var sérstakt við þennan bát að hann hét aldrei annað en Rán
þrátt fyrir eigendaskipti, en nafnið Rán merkir alda.
Endalok Ránarinnar urðu þau að báturinn var brenndur á
áramótabrennu í Njarðvík árið 1990, þá var rafkerfi og stýrishús orðið lélegt
en skrokkurinn var í góðu lagi. Ránin var alla tíð mikið happafley.
Grímur Karlsson módelsmiður í Reykjanesbæ smíðaði
líkanið af Ráninni í tilefni af 70 ára afmæli Helga Ibsen.
Af vefsíðu Safnasvæðisins á Akranesi.
Skrifað af Þórhalli S Gjöveraa.