05.06.2018 21:42

Cuxhaven NC 100. við bryggju á Akureyri á sjómannadaginn.

Þýsk-Íslenski frystitogarinn Cuxhaven NC 100 var smíðaður hjá Myklebust Verft A/S í Gursken í Noregi árið 2017 fyrir Deutsche Fischfang Union (DFFU) í Þýskalandi sem er dótturfyrirtæki Samherja hf á Akureyri. 3.969 brl. 3.600 Kw. Rolls Royce NVC 374 WP vél. Haukur Sigtryggur Valdimarsson sendi mér þessa mynd af togaranum þar sem hann lá í höfn á Akureyri um sjómannadagshelgina. Sannarlega glæsilegt skip.


Cuxhaven NC 100. DFQH við bryggju á Akureyri í gær.            (C) Haukur Sigtryggur Valdimarsson.

   Cuxhaven NC 100 heldur í sína                       fyrstu veiðiferð.

Cuxhaven NC 100 nýtt skip Deutsche Fischfang Union, dótturfélags Samherja í Þýskalandi hefur haldið á veiðar. Cuxhaven NC100 sem hannað er af Rolls Royce er 81,22m langt og 16m breitt, smíðað í Mykleburst skipasmíðastöðinni í Noregi. Cuxhaven er fyrsta nýsmíði Deutsche Fischfang Union í 27 ár en það skip bar einnig nafnið Cuxhaven.
Eigendur Samherja ásamt Haraldi Grétarssyni framkvæmdastjóra Deutsche Fischfang Union og Óskari Ævarssyni útgerðastjóra tóku á móti skipinu 15.ágúst sl. í Álasundi. Þá voru veiðarfæri tekin um borð og skipið gert klárt að öðru leyti. Cuxhaven hélt svo til veiða í Barentshafi 20.ágúst. Skipstjórar eru Stefán Viðar Þórisson og Hannes Kristjánsson. 
Cuxhaven er afar vel búið á allan hátt bæði hvað varðar vélbúnað, vinnslu og aðbúnað áhafnar sem getur orðið allt að 35 manns. Með nýjustu tæknilausnum er skipið mun hagkvæmara í rekstri og umhverfisvænna en eldri skip. Vinnsludekk er hannað og smíðað af Slippnum á Akureyri og hefur búnað m.a. frá Vélfag á Ólafsfirði. 
"Þetta eru mikil tímamót í rekstri DFFU hér í Þýskalandi. Meðal annars hefur allur aðbúnaður áhafnar og vinnuaðstaða verið stórbætt. Það er mikil áskorun að fá allt til að virka í svona tæknilega flóknu skipi og næstu vikur verða því spennandi hjá okkur," segir Haraldur Grétarsson framkvæmdastjóri Deutsche Fischfang Union GmbH.

 

Af heimasíðu Samherja hf. 25 ágúst 2017.


Flettingar í dag: 462
Gestir í dag: 42
Flettingar í gær: 906
Gestir í gær: 50
Samtals flettingar: 719189
Samtals gestir: 53449
Tölur uppfærðar: 19.4.2024 10:41:46