20.02.2019 04:54
2904. Páll Pálsson ÍS 102. í slippnum í Reykjavík.
2904. Páll Pálsson ÍS 102 í slippnum í Reykjavík. (C) Þórhallur S Gjöveraa. 19 febrúar 2019.
Heimkomuhátíð Páls Pálssonar ÍS 102
Nýjum og glæsilegum togara Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf,
Páli Pálssyni ÍS 102 sem kom til Ísafjarðar 5. maí var fagnað með formlegri
heimkomuhátíð laugardaginn 19.maí.
Séra Magnús Erlingsson sóknarprestur á Ísafirði blessaði skipið
auk þess sem karlakórinn Ernir söng nokkur lög.
Guðrún Aspelund er guðmóðir skipsins og gaf hún því nafn
og sagði við það tækifæri "Gæfa fylgi þér og áhöfn þinni Páll Pálsson."
Gestum var síðan boðið að skoða skipið og þar á eftir var boðið
uppá veitingar í Edinborgarhúsinu þar sem hönnun og smíði skipsins var kynnt
ástamt því að ferðasögur úr ævintýralegri heimsiglingu voru sagðar. Nú
eru starfsmenn Skagans - 3X Technilogy að vinna við uppsetningu búnaðar á
millidekk og í lest og tíminn jafnframt nýttur við ýmsilegt annað eins og að
gera veirafæri klár.
"Þetta er stór dagur fyrir okkur eigendur og starfsfólk
Hraðfrystihússins-Gunnvarar, þetta eru tímamót í Vestfirskum sjávarútvegi og
það er einkar gleðilegt að koma með nýtt og fullkomið skip heim. Skip sem búið
er fullkomnasta búnaði sem völ er á.
Það er okkar bjargfasta trú að til að standast sífellt meiri
áskoranir í sjávarútvegi þurfum við á hverjum tíma að hafa á að skipa bestu
tækjum sem völ er og þannig geta laðað til okkar hæfasta starfsfólkið", sagði Einar Valur Kristjánsson framkvæmdastjóri í sínu ávarpi
við athöfnina.
Forsvarsmenn HG þakkar öllum þeim sem komu til að skoða skipið
og í móttökuna í Edinborgarhúsinu fyrir komuna.
Heimasíða H.G. 1 júní 2018.