22.05.2019 09:13
744. Sigurfari MB 95. TFZK.
Sæbjörg VE 56 í innsiglingunni til Vestmannaeyjahafnar. Ljósmyndari óþekktur.
Nýr fiskibátur
Skipið er byggt á skipasmíðastöð Þorgeirs Jósefssonar á
Akranesi. Yfirsmiður, Eyjólfur Gíslason, skipasmíðameistari, Reykjavík. Stærð:
Lengd 65,8 fet. Breidd 17,1 fet. Dýpt 8,8 fet. Rúmmál 61,41 smálest brúttó.
Djúprista án farms 7 fet, fullfermt 10 fet. Byggður úr eik. Innrétting:
Hásetaklefi með 14 hvílum, lestarrúm, vélarrúm, skipstjóraklefi með 2 hvílum.
Aflvél: Alpha dieselmótor 140 /160 ha. Burðarmagn skipsins ca. 75 smálestir.
Kostnaðarverð 115 þúsund krónur. Styrkur frá Fiskimálanefnd kr. 21,350.00.
Eigendur: Bergþór Guðjónsson skipstjóri og Sigurður Þorvaldsson vélstjóri,
báðir ungir og efnilegir menn, til heimilis á Akranesi, fæddir og uppaldir þar.
Báturinn stundar nú þorskveiðar með línu, í venjulega 7-8 daga veiðiferðum.
Ætlar að stunda síldveiði á sumri komandi. Svo er og hugsað til að fá
"troll" útbúnað á bátinn og ef til vill fleiri tegundir veiðarfæra, ef
heppni leyfir og tilefni gefast. "Víkingur" óskar eigendunum til hamingju
með bátinn.
Sjómannablaðið Víkingur. 5-6 tbl. 1 mars 1940.