17.08.2020 23:15
2895. Viðey RE 50 á sjómannadaginn 2020.
Tók þessar myndir af togaranum Viðey RE 50 á
sjómannadaginn þar sem hann lá við bryggju í Reykjavíkurhöfn. Körin voru
tilbúinn á bryggjunni og einungis eftir að hífa þau um borð. Viðey RE 50 var smíðuð
hjá Celiktrans Shipyard í Istanbúl í Tyrklandi árið 2017 fyrir H.B. Granda h/f
í Reykjavík. 1.827 bt. 2.445 ha. MAN B&W 6L27/38, 1.799 Kw. Smíðanúmer CS
50. Skipið er hannað af Nautic, Skipahönnun og ráðgjöf í Reykjavík. Viðey kom
til heimahafnar sinnar, Reykjavíkur á vetrarsólstöðum, hinn 21 desember árið 2017.
Móttökuathöfn var haldin daginn eftir út í Örfirisey, og við það tækifæri var
skipinu formlega gefið nafn. Viðey er glæsilegt skip eins og systurskip hennar
sem þegar eru komnar til landsins, Engey RE 1, ( selt til Rússlands á síðasta
ári) og Akurey AK 10.
Skipstjóri á Viðey er Jóhannes Ellert Eiríksson,
sem áður var skipstjóri á Ottó N Þorlákssyni RE 203.
2895. Viðey RE 50 í Reykjavíkurhöfn.
2895. Viðey RE 50 við Grófarbryggjuna.
Körin tilbúin á kæjanum.
Góður og fallegur fiskur úr Viðey RE 50. Ég flakaði um 80 kör af afla Viðeyjar um síðustu mánaðarmót hjá Erik the Red Seafood ehf í Keflavík. Stærð fisksins var að meðaltali 4 til 8 kíló sem er mjög vænn fiskur sem gott er að vélflaka. (C) Þórhallur S Gjöveraa.