12.12.2020 09:12
B.v. Hávarður Ísfirðingur ÍS 451. LBKV / TFIC.
Botnvörpungurinn
Hávarður Ísfirðingur ÍS 451 var smíðaður hjá Cochrane & Sons Ltd í Selby á
Englandi árið 1919. 314 brl. 600 ha. 3 þennslu gufuvél. Smíðanúmer 885. Hét
fyrst Daniel McPherson og var í eigu breska flotans. Seldur árið 1919-20,
Pickering & Haldane's Steam Trawling Co Ltd í Hull, fékk þá nafnið Lord
Halifax H 79. Skipið var selt í janúar árið 1925, Togarafélagi Ísfirðinga h/f á
Ísafirði, fékk nafnið Hávarður Ísfirðingur ÍS 451. 18 febrúar 1936 er skráður
eigandi h/f Hávarður á Ísafirði, sama nafn og númer. Selt 29 desember 1938, h/f
Val á Ísafirði, hét Skutull ÍS 451. Selt 20 mars 1942, Hlutafélaginu Aski í
Reykjavík, hét Skutull RE 142. Ísfirðingar tóku togarann Þorfinn RE 33 upp í
kaupin. Árið 1948 stóð til að selja Skutul til Oddsson & Co í Hull, (Jón
Oddsson skipstjóri) en þau kaup gengu til baka. Mun togarinn hafa legið í höfn
í Hull þar til hann var rifinn í brotajárn árið 1952.
B.v. Hávarður Ísfirðingur ÍS 451 á toginu. (C) Guðbjartur Ásgeirsson.
Nýr
botnvörpungur
Hávarður Ísfirðingur, hinn nýi botnvörpungur Ísfirðinga, kom
hingað í gær frá Englandi.
Dagblað. 21 tbl. 25 febrúar 1925.
B.v. Hávarður Ísfirðingur ÍS 451. (C) Guðbjartur Ásgeirsson.
Frá Hávarði
Ísfirðingi
Svo er sagt, að hann sé í bestu togara röð eftir stærð. Kom
inn 11. þ. m. úr sinni fyrstu veiðiför, eftir 12 daga útivist, með 92 tunnur
lifrar. Leggur upp í Viðey meðan hann veiðir fyrir sunnan. En þegar hingað
kemur mun hann leggja upp í Hæsta. Sennilega verður sá fiskur Hávarðar, sem í
Viðey er saltaður, fluttur hingað til verkunar. Fari svo er vonandi að Loptur,
rían, geti haft eitthvað að telja í sumar á reitunum í Hæsta.
Skutull. 13 tbl. 27 mars 1925.
B.v. Hávarður Ísfirðingur á siglingu. (C) Guðbjartur Ásgeirsson.
Togarafélag
Ísfirðinga,
hf. Hávarður og hf. Valur
Togarafélag Ísfirðinga h.f gerði út togarann Hávarð Ísfirðing frá 1925, en félagið komst í þrot árið 1935. Landsbankinn tók þá togarann af því og gerði hann út sjálfur um stuttan tíma. Síðan var hlutafé félagsins aukið og nafni þess breytt í Hf. Hávarður, um leið og bæjarsjóður Ísafjarðar gerðist hluthafi. Skemmst er frá því að segja að Hf. Hávarður fór á hausinn árið 1938. Forráðamönnum bæjarins þótti samt sem ekki mætti missa skipið úr bænum, og var þá stofnað nýtt hlutafélag um rekstur þess, og hlaut það nafnið Valur. Það fékk togarann, hann var skírður upp og nefndur Skutull og félagið gerði hann út um nokkurra missera skeið eða þar til síðla árs 1941, þegar hann var seldur til Reykjavíkur. Lá svo togaraútgerð frá Ísafirði niðri þar til Ísborgin kom árið 1948.
Heimild: 4. bindi Sögu Ísafjarðar.
